Erlent
292 293 294 295 296 297 298 299 300 … 334 ›
Tugir líka hafa þegar fundist Farþegaflugvél með um hundrað og sextíu farþega og tíu manna áhöfn um borð hrapaði í austur hluta Úkraínu í dag. Vélin var á leið frá Suður-Rússlandi til Sánkti Pétursborgar. Vélin hrapaði um fjörutíu og fimm kílómetra norður af bænum Donetsk og er flakið sagt standa í ljósum logum. Erlent 22.8.2006 13:26
Kynferðisafbrot í Kambódíu Tveir Þjóðverjar og þrír Kambódíumenn voru handteknir í gær fyrir að misnota tvær ungar stúlkur í Kambódíu. Þar á meðal var fjörutíu og tveggja ára gamall grunnskólakennari frá München sem starfaði í einkaskóla í Phnom Penh, höfuðborg landsins. Erlent 22.8.2006 12:30
Ítalir setja Ísraelum skilyrði Ítalir munu ekki leiða alþjóðlegt friðargæslulið í Líbanon ef Ísraelsher hættir ekki árásum sínum á Suður-Líbanon. Utanríkisráðherra Ítalíu, Massimo D'Alema, greindi frá þessu í morgun. Erlent 22.8.2006 11:48
Ánægður með hagvöxt í Frakklandi Hagvöxtur í Frakklandi jókst um 1,1 prósent í júní. Landsframleiðsa jókst um 0,5 prósent á fyrsta ársfjórðungi og er búist við að framleiðslan aukist um 1,9 prósent á árinu. Thierry Breton, fjármálaráðherra landsins, er hæstánægður með aukninguna, sem er sú mesta í 20 ár. Viðskipti erlent 22.8.2006 09:44
Lestarslys á Spáni Lest fór af sporinu á Norður-Spáni í gær með þeim afleiðingum að sex manns létust og um sextíu særðust. Erlent 22.8.2006 09:15
Ellefur ákærðir fyrir hryðjuverka ráðabrugg Ellefu einstaklingar voru ákærðir í gær fyrir að leggja á ráðin um að sprengja tíu farþegavélar á leið sinni frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Erlent 22.8.2006 09:08
Elsti maður í heimi Elsti maður í heimi, Rican Emiliano Mercado frá Púertó Ríkó hélt upp á hundraðasta og fimmtánda afmælisdaginn sinn í gær með fjölskyldu sinni. Erlent 22.8.2006 09:01
Mikil eyðilegging í Srifa Af þeim 180.000 flóttamönnum sem flúðu yfir til Sýrlands þegar átök Hizbollah og Ísraelshers stóðu yfir, hafa meira en 140.000 snúið aftur til Líbanon. Það var ekki fögur sjón sem beið íbúa þorpsins Srifa í Suður-Líbanon er þeir sneru til síns heima eftir að vopnahléið milli skæruliða Hizbollah og Ísraelshers tók gildi fyrir viku. Erlent 22.8.2006 08:18
Þjóðverjar handteknir vegna kynferðisafbrota í Kambódíu Tveir Þjóðverjar og þrír Kambódíumenn voru handteknir í gær fyrir kynferðisafbrot á ungum stúlkum í Kambódíu. Þar á meðal var fjörutíu og tveggja ára gamall grunnskólakennari frá Munchen sem starfaði í einkaskóla í Phnom Penh, höfuðborg Kambódíu. Erlent 22.8.2006 08:12
Guðalíkneski drekka mjólk Hundruð þúsunda Indverja flykktust í musteri víðs vegar um Indland í gær, eftir að fregnir bárust þess eðlis að líkneski af guðinum Ganesh væru farin að drekka mjólk. Erlent 21.8.2006 21:58
Öll lönd hafa skrifað undir Rauði krossinn tilkynnti í gær að öll fullvalda ríki heims, 194 talsins, hefðu undirritað Genfarsáttmálann um stríðsátök. Þetta er í fyrsta sinn sem nokkur samningur telst algildur í samfélagi þjóða. Svartfellingar voru síðastir þjóða til undirskriftar, í byrjun ágúst. Erlent 21.8.2006 21:58
Ellefu ákærðir í London Ellefu menn hafa verið ákærðir í Bretlandi í tengslum við hið meinta samsæri um að sprengja í loft upp allt að tíu farþegaþotur á leiðinni milli Bretlands og Bandaríkjanna. Átta þeirra voru ákærðir fyrir samsæri um að fremja morð. Einni konu var sleppt úr haldi án ákæru, og sitja ellefu aðrir, sem ekki hafa verið ákærðir, í gæsluvarðhaldi. Erlent 21.8.2006 21:58
Ný lota réttarhalda yfir Saddam Hussein Þótt dómur hafi ekki enn verið kveðinn upp í fyrstu réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseta, var í gær byrjað að rétta yfir honum fyrir fleiri ógnarverk sem framin voru í stjórnartíð hans. Að þessu sinni fjöldamorð á Kúrdum. Erlent 21.8.2006 21:59
Vatnsskortur í vændum Vísindamenn vara við því að þriðjungur jarðarbúa standi frammi fyrir yfirvofandi vatnsskorti. Þetta kom fram á alþjóðlegri vatnsráðsstefnu sem fram fer þessa vikuna í Stokkhólmi í Svíþjóð. Erlent 21.8.2006 21:59
Eftirlitssveitin dregur sig í hlé Kólombó Ulf Henricsson, yfirmaður norrænu eftirlitssveitarinnar, SLMM, kallaði í gær alla starfsmenn sína til höfuðborgarinnar Kólombó, þar sem átök í landinu hafi harðnað og sveitinni sé meinaður aðgangur að ýmsum svæðum til að fylgjast með brotum á vopnahléssamkomulaginu. Erlent 21.8.2006 21:58
Ítalir vilja leiða friðargæslu Unnið er að nýrri ályktun SÞ. Ehud Olmert sætir harðri gagnrýni heima fyrir og kennir forverum sínum í starfi um að hafa sofið á verðinum. Erlent 21.8.2006 21:58
Hamas-foringi handtekinn Ísraelskir hermenn réðust inn á heimili og handtóku aðstoðarforsætisráðherra Palestínumanna, Nasser Shaer, á Vesturbakkanum um helgina. Erlent 21.8.2006 21:58
Fjarvera Mladic óafsakanleg Réttarhald hófst í gær fyrir Stríðsglæpadómstólnum í Haag í Hollandi yfir sjö mönnum sem voru háttsettir í her Bosníu-Serba og eru ákærðir fyrir meinta hlutdeild þeirra í fjöldamorðunum á um átta þúsundum Bosníu-múslima í bænum Srebrenica. En fjarvera æðsta yfirmanns þeirra, hershöfðingjans Ratko Mladic, varpaði skugga yfir réttarhaldið. Erlent 21.8.2006 21:58
Fann slöngu í kjallaranum Karlmaður í Eskilstuna í Svíþjóð varð óþægilega undrandi þegar hann fór niður í kjallara hjá sér aðfaranótt sunnudags. Í kjallaranum hafi eins og hálfs metra eiturslanga hringað sig á gólfinu. Erlent 21.8.2006 21:58
Þjóðverjar handteknir Tveir Þjóðverjar voru meðal fimm manna sem handteknir voru í Kambódíu, grunaðir um að hafa misnotað ungar telpur kynferðislega. Hinir þrír eru Víetnamar. Annar Þjóðverjinn var handtekinn eftir að hann reyndi að flýja lögreglu með því að stökkva af svölum íbúðar sinnar. Í íbúð hans fann lögregla fjórar víetnamskar stelpur og myndband sem sýndi hinn Þjóðverjann, barnaskólakennara í Kambódíu, hafa kynmök við tvær þeirra. Lögreglan í Kambódíu hefur undanfarið handtekið þó nokkra erlenda íbúa landsins, grunaða um að misnota börn. Erlent 21.8.2006 21:59
Krefjast úrbóta á flugvöllum Forsvarsmenn lággjaldaflugfélagsins Ryanair hótuðu því á föstudag að höfða mál gegn breskum yfirvöldum, uppfylli þau ekki kröfur félagsins um að öryggiseftirlit með farþegum verði fært aftur til fyrra horfs og að bætt verði innan viku úr starfsmannaskorti á flugvöllum landsins. Erlent 21.8.2006 21:59
Sprenging banaði tugi manna Sprenging varð á yfirbyggðum markaði í Moskvu í Rússlandi í gærmorgun með þeim afleiðingum að tíu fórust og 31 slasaðist. Tveir hinna látnu voru börn. Erlent 21.8.2006 21:58
Grunnt á því góða milli fylkinga Skothríð upphófst í Kinshasa, höfuðborg Kongó, annan daginn í röð í gær, en spenna er mikil í borginni vegna nýafstaðinna forsetakosninga. Svo virtist sem skothríðin hefði átt sér stað nærri heimili fyrrverandi uppreisnarleiðtoga sem keppti við Joseph Kabila, sitjandi forseta, um embættið í kosningunum. Erlent 21.8.2006 21:59
Létu vísa tveimur frá borði Breskir flugfarþegar neituðu að hleypa flugvél á loft fyrr en tveir karlmenn af asískum uppruna, sem þeir grunuðu um að vera hryðjuverkamenn, yrðu færðir frá borði. Þetta kemur fram á fréttavef breska dagblaðsins Daily Mail. Erlent 21.8.2006 21:58
Þrír látnir og tveggja saknað Þrír menn fórust í miklu óveðri sem gekk yfir Búdapest í Ungverjalandi á sunnudag. Tveggja er enn saknað, en nær 300 særðust í veðrinu, þar af 40 lífshættulega. Erlent 21.8.2006 21:58
Fangelsaður fyrir að kveikja í hænsnabúi Dani nokkur hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi í Taílandi fyrir að hafa kveikt í hænsnabúi nágranna síns. Þetta kemur fram á fréttavef danska blaðsins Politiken. Erlent 21.8.2006 21:58
Meiri hætta á krabbameini Verkamenn á olíuborpöllunum í Norðursjó eru í miklu meiri hættu á alvarlegum sjúkdómum eins og krabbameini en aðrir Norðmenn. Í frétt Norska Dagbladet segir að á hverju ári láti tólf til þrjátíu og tveir verkamenn á olíuborpöllum lífið vegna áhrifa vinnunnar á heilsu þeirra. Rannsóknir sýna að dánarlíkur karlmanna á olíuborpöllunum eru allt að 41 prósentum hærri en hjá norskum körlum almennt. Erlent 21.8.2006 21:58
Íranar meina eftirliti aðgang Íranar hafa meinað eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna aðgang að neðanjarðarkjarnorkuvinnslustöð þeirra. Segja erindrekar SÞ þetta auka grun um að ekki sé allt með felldu í kjarnorkuáætlun þeirra. Erlent 21.8.2006 21:58
58 fórust þegar lestir rákust á Að minnsta kosti 58 manns fórust þegar tvær járnbrautalestir rákust á í norðurhluta Egyptalands á háannatíma í gærmorgun. Líklegt þykir að tala látinna fari hækkandi, því að á annað hundrað manns slösuðust jafnframt í slysinu, margir lífshættulega. Erlent 21.8.2006 21:59
Bush hvetur til friðargæslustarfa í Líbanon George Bush, Bandaríkjaforseti, hvatti til þess í dag að alþjóðlegt herlið kæmi sem fyrst til friðargæslustarfa í Líbanon. Erlent 21.8.2006 18:12