KR

Rúnar: Eiginlega ósáttur að þeir hafi fengið rautt spjald
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, viðurkenndi að það hafi ekki hjálpað sínu liði neitt þegar KA-maðurinn Oleksii Bykov fékk rauða spjaldið í leiknum á Meistaravöllum í dag. KR-ingar sóttu stíft allan leikinn en KA-menn gáfu nánast engin færi á sér.

Aron Þórður í KR
Aron Þórður Albertsson er genginn í raðir KR eftir að hafa spilað með Fram undanfarin ár. Aron Þórður er 25 ára gamall miðjumaður og semur við KR til þriggja ára. Þetta kemur fram á vefsíðu félagsins.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 5-1 | Nýliðarnir sáu aldrei til sólar í Garðabæ
Stjarnan vann 5-1 stórsigur á KR í Bestu deild kvenna í kvöld. Mörk Stjörnunnar skoruðu Katrín Ásbjörnsdóttir, Gyða Kristín Gunnarsdóttir, Alma Mathisen, Arna Dís Arnþórsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir. Mark KR skoraði hin 15 ára Ísabella Sara Tryggvadóttir.

Dagur Kár í KR | Framlengt við Þorvald Orra og Veigar Áka
Körfuknattleiksdeild KR hefur samið Dag Kár Jónsson um að leika með liðinu næstu tvö tímabil. Þá framlengdi félagið samninga þeirra Þorvalds Orra Árnasonar og Veigars Áka Hlynssonar. Þetta kemur fram á vefsíðu KR nú í dag.

Rúnar: Ekkert sem skildi liðin að í þessum leik
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var ekki sáttur við niðurstöðuna í tapi liðs síns gegn Val í þriðju umferð Bestudeildar karla í fótbolta í kvöld. Rúnar var aftur á móti sáttur við frammistöðu lærisveina sinna þrátt fyrir tapið.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - KR 2-1 | Valur hafði betur í hörðum slag við KR
Valur lagði KR að velli með tveimur mörkum gegn einu þegar liðin mættust í þriðju umferð Bestudeildar karla í fótbolta á Origo-vellinum að Hlíðarenda í kvöld.

Valur með tak á KR fyrir stórleik kvöldsins
Það er sannkallaður stórleikur í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld þegar Reykjavíkurliðin Valur og KR mætast. Valsmenn hafa unnið síðustu þrjár viðureignir liðanna. KR vann leik liðanna á Hlíðarenda í upphafi tímabils 2020 en Valur endaði sem Íslandsmeistari það ár.

Umfjöllun og viðtöl: KR 0-4 Keflavík | Öflugur útisigur hjá Keflvíkingum
Nýliðar KR steinlágu fyrir Keflavík í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í kvöld en lokatölur leiksins voru 0-4.

KR hefur tapað fyrsta heimaleik sumarsins undanfarin þrjú ár
KR-ingum gengur illa að byrja knattspyrnusumur vel á heimavelli sínum og það varð ekki breyting á því í gærkvöldi.

Sjáðu hvernig Blikar kláruðu KR og FH-ingar snéru tapi í sigur
Tveir síðustu leikir annarrar umferðar Bestu deildar karla í fótbolta fóru fram í gærkvöldi og þar fögnuðu Blikar og FH-ingar sigri.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Breiðablik 0-1 | Loks náðu Blikar í þrjú stig gegn KR
Breiðablik vann góðan sigur á KR á Meistaravöllum í Vesturbænum í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 0-1 eftir tvískiptan leik þar sem KR hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik en Blikar í þeim síðari.

Tekst Óskari Hrafni loksins að vinna KR í kvöld?
Stórleikur kvöldsins í Bestu deild karla er heimsókn Blika í Vesturbæinn en lið KR og Breiðabliks unnu stærstu sigrana í fyrstu umferðinni og voru því í efstu sætunum áður en önnur umferðin hófst.

Hrafn Kristjánsson segir skilið við körfuboltann
Hrafn Kristjánsson, þjálfari Álftanes, tilkynnti í gær að hann ætlaði að hætta í körfuboltaþjálfun og leggja spjaldið á hilluna.

Besta spá kvenna 2022: Erfitt sumar í Vesturbænum og Keflavík
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir því að KR og Keflavík endi í 10. og 9. sæti Bestu deildar kvenna í sumar.

Sjáðu sigurmark Elfars Árna og öll fimm mörkin í Safamýri
Tveir síðustu leikir 1. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta fóru fram í gær. KA vann Leikni Reykjavík 1-0 og KR vann 4-1 útisigur á Fram er liðin mættust í Safamýri.

Umfjöllun, einkunnir og viðtöl: Fram – KR 1-4 | KR vann þægilegan sigur í Safamýri
Nýliðar Fram tóku á móti KR í fyrstu umferð Bestu deildar karla í fótbolta á gervigrasinu í Safamýri og áttu þeir ekki mikinn möguleika. KR sigraði leikinn 4-1 en voru komnir í 3-0 eftir 27 mínútur. Fram átti fína takta en í heild var þetta þægilegt fyrir KR.

Liðsstyrkur frá Svíþjóð í Vesturbæinn
KR-ingar eru að þétta raðirnar í varnarlínu liðsins fyrir Bestu deildina í fótbolta sem hefst í næstu viku.

Næstum tveir áratugir síðan KR var síðast sópað í átta liða úrslitum
Njarðvík sendi KR í sumarfrí er liðið vann þriðja leik liðanna í átta liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta. KR-ingar eru ekki vanir að láta sópa sér úr úrslitakeppninni en þegar það kemur fyrir er það venjulega Njarðvík sem heldur á sópnum.

Besta-spáin 2022: Déjà Vu í Vesturbænum
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KR 5. sæti Bestu deildar karla í sumar.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - KR 91-63 | KR-ingar komnir í sumarfrí
KR er farið í snemmbúið sumarfrí eftir 28 stiga tap gegn Njarðvík í kvöld, 91-63. Njarðvíkingar unnu alla þrjá leikina í einvíginu og sópuðu KR-ingum úr leik.

KR-ingar fara í Safamýri og KA fær Breiðhyltinga til Dalvíkur
Staðfest hefur verið á vef KSÍ að tveir af leikjunum sex í fyrstu umferð Bestu deildar karla fari ekki fram á þeim heimavöllum sem viðkomandi lið ætla að nota í sumar.

„Of margir leikmenn á Íslandi á allt of háum launum“
Rúnar Kristinsson, þjálfari knattspyrnuliðs KR, segist gjarnan hafa viljað fá þá Hólmar Örn Eyjólfsson og Aron Jóhannsson í sinn leikmannahóp en þeir fóru báðir til Vals. Hann telur að almennt fái of margir leikmenn á Íslandi of há laun.

Umfjöllun og viðtöl: KR 64–74 Njarðvík | Njarðvíkingar gerðu nóg til að komast í 2-0 í einvíginu
Leikur Njarðvíkur og KR á Meistaravöllum var skrýtinn og átti hvorugt lið góðan dag sóknarlega en ákafinn var mikill og spennustigið hátt. Njarðvíkingar gerðu nóg að lokum og sigldu sigrinum heim 67-74 og hafa tekið 2-0 forystu í einvígi liðanna í 8-liða úrslitum Subway deildar karla.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík 99-90 KR | Deildarmeistararnir náðu loks að leggja KR
Deildarmeistarar Njarðvíkur tóku á móti KR-ingum í Ljónagryfjunni í kvöld þar sem hart var tekist á. Alvöru úrslitakeppnisleikur hér í kvöld og rífandi stemming í húsinu. KR-ingar hafa haft gott tak á Njarðvíkingum í vetur og völtuðu yfir þá síðast þegar liðin mættust, svo það má segja það hafi verið smá pressa á deildarmeisturunum fyrir þennan leik.

Afmælisbarnið Bogi les áfram fréttir
Bogi Ágústsson, fréttaþulur á Ríkisútvarpinu, fagnar sjötugsafmæli í dag. Bogi hefur starfað hjá Ríkisútvarpinu síðan á áttunda áratug síðustu aldar og óhætt að segja að hann sé reglulegur gestur á heimilum landsmanna.

„Hann var ósáttur og við vildum ekki hafa einhverja neikvæðni í kringum liðið“
Helgi Már Magnússon, þjálfari KR, segir að það fyrir verið öllum aðilum fyrir bestu að Bandaríkjamaðurinn Isaiah Manderson yfirgæfi félagið.

KR lætur Manderson fara fyrir úrslitakeppnina
KR hefur ákveðið að láta Bandaríkjamanninn Isaiah Manderson fara áður en úrslitakeppni Subway-deildar karla í körfubolta hefst. KR mætir Njarðvík í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar.

ÍR hafði betur gegn KR í oddaleik
Það verður ÍR sem leikur til úrslita um sæti í Subway-deild kvenna eftir 19 stiga sigur gegn KR í oddaleik í kvöld, 84-65.

Tveir erlendir leikmenn til liðs við KR
KR hefur sótt tvo leikmenn til að styrkja hópinn fyrir komandi átök í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í sumar. Um er að ræða tvo leikmenn sem hafa báðir leikið með yngri landsliðum Ástralíu.

Framherji KR fótbrotnaði í æfingaleik
Kristján Flóki Finnbogason, framherji Bestu-deildarliðs KR í knattspyrnu, fótbrotnaði í æfingaleik gegn HK. Óvíst er hvenær hann getur snúið aftur á völlinn en hann bíður nú eftir að komast í aðgerð.