KR

KR-ingurinn mætir liðinu sem hann yfirgaf á miðju tímabil í fyrra
Augu margra verða á Shawn Derrick Glover í DHL-höllinni í kvöld þegar KR tekur á móti Tindastól í annarri umferð Subway-deildar karla í körfubolta.

Aníta og Óskar stýra Fram
Knattspyrnudeild Fram hefur ráðið þau Anítu Lísu Svansdóttur og Óskar Smára Haraldsson sem þjálfara kvennaliðs félagsins til næstu tveggja ára. Þau munu einnig þjálfa 4. flokk kvenna hjá félaginu og vinna að uppbyggingu kvennaknattspyrnunnar hjá Fram.

Þungavigtin: HK neitaði tilboði frá KR upp á fjórar og hálfa milljón í Valgeir
„KR-ingar eru með opið heftið núna og buðu fjórar og hálfa í Valgeir Valgeirsson,“ sagði Kristján Óli Sigurðsson í nýjasta þætti Þungavigtarinnar. Valgeir er leikmaður HK sem féll úr Pepsi Max deild karla í sumar.

Fór yfir það þegar Albert þóttist vera Willum er hann lék sér í FIFA
Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson lék sér í tölvuleiknum FIFA eins og margur er hann var yngri. Það sem Albert gerði sem aðrir gerðu ef til vill ekki var að þykjast vera knattspyrnuþjálfarinn – og alþingismaðurinn - Willum Þór Þórsson og skamma leikmenn fyrir slakan fyrri hálfleik.

KR fær markvörð Fylkis
Markvörðurinn Aron Snær Friðriksson er genginn í raðir KR frá Fylki. Hann skrifaði undir samning við Vesturbæjarfélagið sem gildir til næstu tveggja ára.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Breiðablik 128-117 | Lítill varnarleikur, ótrúlegt magn stiga og framlengt er KR vann Breiðablik
Það fór ekki mikið fyrir varnarleiknum þegar KR vann Breiðablik í fyrstu umferð Subway deildar karla í körfuknattleik fyrr í kvöld. Leikar enduðu 128-117 eftir framlengdan leik.

Helgi Magnússon: Við gerum atlögu að titlunum
KR lagði Breiðablik í hreint út sagt ótrúlegum leik á Meistaravöllum fyrr í kvöld. Leikurinn endaði 128-117 fyrir heimamenn en leikið var í fyrstu umferð Subway deildar karla í körfubolta. Varnarleikurinn var ekki til útflutnings en þjálfari KR, Helgi Már Magnússon, var ánægður með að ná í sigurinn þó að það væri mikið sem þyrfti að laga. Sérstaklega varnarlega.

Þungavigtin: Matthías sagði sína skoðun á stjórnlausa svartholinu Tyler Sabin
Bandaríkjamaðurinn Tyler Sabin fór á kostum með KR-ingum í körfuboltanum á síðustu leiktíð en það voru ekki allir liðsfélagarnir nógu ánægðir með hann. Matthías Orri Sigurðsson sagði sína skoðun á Sabin þegar hann mætti í hlaðvarpsþáttinn Þungavigtina.

Darri segir að körfuboltinn sé að berjast fyrir tilverurétti sínum hjá Val
Darri Freyr Atlason var í sínum fyrsta þætti af Körfuboltakvöldi í gær og þar fékk hann það verkefni ásamt hinum sérfræðingunum að meta það hversu mikil pressa væri á þjálfurum úrvalsdeildar karla fyrir fyrsta leik.

Matthías Orri og Darri úr KR í Körfuboltakvöld
Fyrsti þátturinn af Körfuboltakvöldi verður á Stöð 2 Sport í kvöld og eins og hjá öllum liðum deildarinnar þá hafa orðið mannabreytingar milli tímabila.

Vestri og Víkingur mætast í Vesturbænum
Snjóblásarar, gröfur og bænir um betri tíð dugðu ekki til að Torfnesvöllur á Ísafirði, Olísvöllurinn eins og hann heitir í dag, yrði tilbúinn fyrir komu nýkrýndra Íslandsmeistara Víkings á laugardaginn.

Nýir erlendir leikmenn KR-inga þekkja vel til í íslensku deildinni
KR-ingar staðfestu í gærkvöldi komu tveggja erlendra leikmanna til liðsins og báðir hafa þeir spilað áður í úrvalsdeildinni á Íslandi.

Pepsi Max tölur: KR-ingar spiluðu 150 mínútur af uppbótatíma í sumar
KR-ingar áttu þann leikmann í Pepsi Max deild karla sem spilaði flestar mínútur í sumar og voru það lið sem spilaði flestar mínútur í deildinni af viðbættum þeim tíma sem dómarnir bættu við.

Aðeins eitt lið í deildinni á næsta ári sem hefur ekki orðið Íslandsmeistari
Næsta sumar verða ellefu Íslandsmeistarafélög í fyrsta sinn í sögu efstu deildar karla en þetta var ljós eftir úrslit helgarinnar.

Rúnar Kristinsson: Við viljum vinna bikar á hverju einasta ári
KR-ingar unnu 0-2 sigur á Stjörnunni í Garðabæ í lokaleik þeirra í Pepsi-Max deild karla. Með sigrinum og öðrum úrslitum í dag náðu KR-ingar 3.sætinu í deildinni og eiga því veika von á því að komast í Evrópukeppni á næsta ári. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var ánægður í leikslok.

Kjartan Henry og Þórður í þriggja leikja bann
Kjartan Henry Finnbogason, sóknarmaður KR, og Þórður Ingason, varamarkvörður Víkings, hafa verið dæmdir í þriggja leikja bann af aganefnd KSÍ eftir að sauð upp úr undir lok leiks þegar að liðin mættust í Pepsi Max deild karla í vikunni.

„Erum mennskir og getum stundum horft framhjá lögunum“
„Þetta er það sem að maður myndi kalla ástríðu,“ sagði Þorvaldur Árnason dómari þegar hann útskýrði af hverju hann taldi ekki rétt að refsa Arnari Gunnlaugssyni, þjálfara Víkings, fyrir að hlaupa inn á völlinn og fagna sigurmarkinu gegn KR í Pepsi Max-deildinni á sunnudag.

„Ákváðum að taka á því allra versta“
Þorvaldur Árnason dómari viðurkennir að hægt hefði verið að spjalda fleiri leikmenn en þá Kjartan Henry Finnbogason og Þórð Ingason, eftir stimpingarnar undir lok leiks KR og Víkings í Pepsi Max-deildinni í fótbolta.

Þorvaldur um vítið: Höndin eða vindhviða og það var logn í Vesturbæ
Þorvaldur Árnason, dómarinn í miklum hitaleik KR og Víkings á sunnudaginn, mætti í heimsókn til Rikka G og fór yfir stærstu atvikin í leiknum. Vítið sem hann dæmdi á Víkinga í lokin var vegna þess að Kári Árnason handlék boltann.

Þorvaldur íhugar að leggja flautuna á hilluna: Ekki eins og maður poppi eftir svona leik og hafi gaman
„Ég skal bara viðurkenna það að manni líður bölvanlega,“ sagði Þorvaldur Árnason, dómari leiks KR og Víkings í Pepsi Max deild karla er hann ræddi tilfinningar sínar að leik loknum. Allt sauð upp úr í leik liðanna þar sem Víkingur van dramatískan 2-1 sigur og tyllti sér á topp deildarinnar.

„Ef ég ætlaði að kýla einhvern hefði þetta endað öðruvísi“
„Ég var ekki að sveifla hnefanum eða kýla neinn í andlitið. Stundum sér maður rautt en ég ætlaði mér bara að hrinda honum í burtu og gerði það óvarlega, ásamt fleirum í þessu atviki,“ segir Kjartan Henry Finnbogason um sinn þátt í ryskingunum í lok leik KR og Víkings í gærkvöld.

Kjartan biðst afsökunar eftir kjaftshöggið
Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, hefur beðist afsökunar á framferði sínu í gær undir lokin á tapi liðsins gegn Víkingi í Pepsi Max-deildinni í fótbolta.

Kjartan Henry gæti fengið langt bann eftir hnefahögg í gær
KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason fékk rauða spjaldið undir lokin í leik KR og Víkings í gær en eftirmálarnir gætu verið meira en eins leiks bann.

Vítaspyrnurnar sem breyttu gangi máli á Íslandsmótinu
Sviptingar urðu á Íslandsmóti karla í fótbolta í gær er topplið deildarinnar fóru á erfiða útivelli. Eftir að hafa setið fastur yfir Smáranum í Kópavogi sveiflaðist pendúllinn og bendir nú á Fossvoginn þar sem ótrúlegir hlutir gætu gerst á næstu dögum.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - Víkingur 1-2 | Ótrúleg dramatík er Víkingar fóru á topp deildarinnar
Baltasar Kormákur hefði sennilega ekki getað skrifað handritið að leik KR og Víkings í Pepsi Max deild karla. Einhver ótrúlegasta dramatík síðari ára. Lokatölur 1-2 Víkingum í vil og þeir komnir á topp deildarinnar þegar ein umferð er eftir.

Umfjöllun og viðtöl: KR upp í þriðja sæti með sigri á Keflavík
KR komst upp í þriðja sæti Pepsi Max deildar karla í dag eftir 0-2 sigur á Keflavík og er því aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Breiðabliks sem spilar við Val í kvöld.

Sá mikilvægasti á ferli Hannesar þurfti að berjast fyrir því að sannfæra stjórn KR
„Þetta er alveg geggjaður karakter. Svo heill í gegn og tilbúinn að leggja allt á sig til að ná árangri,“ segir Guðmundur Hreiðarsson, mikilvægasti þjálfari Hannesar Þórs Halldórssonar markvarðar á glæsilegum ferli.

Afturelding fylgir deildarmeisturum KR í efstu deild | ÍA og Grótta fallin
KR varð í kvöld Lengjudeildarmeistari kvenna í fótbolta eftir 3-0 sigur á Gróttu á Seltjarnarnesi, sem jafnframt felldi granna þeirra í 2. deild. Afturelding vann hreinan úrslitaleik gegn FH um sæti í efstu deild.

Króatinn Koljanin í KR
Króatíski körfuknattleiksmaðurinn Dani Koljanin hefur samið við KR og mun leika með liðinu í efstu deild karla í vetur. Hann er engin smásmíð og lék síðast í efstu deild í Austurríki.

VÍS Bikarinn: Grindavík áfram eftir framlengingu | KR úr leik
16 liða úrslitum í VÍS bikar karla 2021 lauk í kvöld með sjö leikjum.