
UMF Selfoss

„Þetta er líkamsárás“
Óskiljanlegt er að Roberta Stropé hafi sloppið við rautt spjald fyrir fólskulegt brot á Valgerði Ýri Þorsteinsdóttur í leik HK og Selfoss í 1. umferð Olís-deildar kvenna. Þetta var mat sérfræðinga Seinni bylgjunnar.

Umfjöllun og viðtöl: KR-Selfoss 3-5 | Gestirnir felldu heimakonur
KR er fallið niður í Lengjudeild eftir tap gegn Selfossi í Bestu deildinni í dag. Lokatölur í miklum marka leik 5-3 gestunum í vil. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Umfjöllun og viðtöl: HK-Selfoss 25-32 | Nýliðarnir fara vel af stað
Selfoss fór með sigur af hólmi í fyrsta leik sínum í Olís-deild kvenna í dag en liðið mætti HK og voru lokatölur 25-32.

Sif leggur landsliðsskóna á hilluna
Sif Atladóttir hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna. Frá þessu greindi hún á Instagram-síðu sinni í kvöld.

„Mér finnst bara vera risa hjarta og vilji í þessu liði“
Róbert Gunnarsson, þjálfari Gróttu, var eðlilega súr og svekktur eftir eins marks tap gegn Selfyssingum, 28-27, í Olís-deild karla í handbolta á Selfossi í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Grótta 28-27 | Dramatískur sigur heimamanna
Selfoss vann dramatískan eins marks sigur er liðið tók á móti Gróttu í Olís-deild karla í kvöld, 28-27.

„Veit eiginlega ekki úr hverju Sif er gerð“
Landsliðskonunni Sif Atladóttur var hrósað í hástert í Bestu mörkunum eftir 1-1 jafntefli Selfyssinga við Stjörnuna í Bestu deildinni.

„Er Guðmundur Hólmar að nenna þessu?“
„Þetta verður rosalega langt tímabil fyrir Selfyssinga,“ sagði Arnar Daði Arnarsson, ómyrkur í máli eftir afhroðið sem Selfoss hlaut gegn Fram í fyrstu umferð Olís-deildar karla í handbolta í síðustu viku.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss-Stjarnan 1-1 | Allt jafnt á Selfossi
Selfoss og Stjarnan gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust á Jáverk-vellinum í 15. umferð Bestu-deildar kvenna í dag.

Olís-spá kvenna 2022-23: Hanga á horriminni
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Selfossi 7. sæti Olís-deildar kvenna í vetur.

„Ánægður með okkur í dag“
Einar Jónsson, þjálfari Fram, var ánægður eftir fyrsta keppnisleik félagsins á nýja heimavellinum í Úlfarsárdal. Frammarar unnu þá Selfyssinga örugglega, 33-26.

Umfjöllun og viðtöl: Fram-Selfoss 33-26 | Draumabyrjun í nýja dalnum
Fram vann Selfoss, 33-26, í upphafsleik Olís-deildar karla tímabilið 2022-23 í kvöld. Þetta var jafnframt fyrsti keppnisleikur Fram á nýjum og glæsilegum heimavelli félagsins í Úlfarsárdal.

Olís-spá karla 2022-23: Rúnir inn að skinni
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Selfossi 9. sæti Olís-deildar karla í vetur.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Selfoss 0-2| Annar sigur Selfyssinga í röð
Selfoss fór á HS Orku-völlinn í Keflavík og vann 0-2 sigur á Keflvíkingum. Brenna Lovera kom Selfossi yfir á þriðju mínútu. Íris Una Þórðardóttir bætti síðan við öðru marki í seinni hálfleik sem innsiglaði sigur gestanna.Þetta var annar sigur Selfyssinga í röð og Keflavík sogast nær fallsvæðinu eftir tap kvöldsins.

Besta upphitun fyrir 14. umferð: Mælir með því fyrir alla unga þjálfara að fara út
Tveir leikir fara fram í fjórtándu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld og af því tilefni þá fékk Helena Ólafsdóttir góða gesti til sín í myndver Bestu markanna. Besta upphitunin er nú komin inn á Vísi.

Eyjamenn sigruðu Ragnarsmótið og heimamenn tóku þriðja sætið
ÍBV bar sigur úr býtum á Ragnarsmótinu í handbolta sem fór fram á Selfossi í vikunni, en leikið var til úrslita í dag. Eyjamenn mættu Aftureldingu í úrslitum og unnu öruggan 13 marka sigur, 35-22.

Selfyssingar senda frá sér yfirlýsingu um meintan rasisma
Knattspyrnudeild Selfoss hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þess að Chris Jastrzembski, fyrrverandi leikmaður liðsins, sagði frá kynþáttafordómum sem hann varð fyrir þegar hann spilaði með Selfyssingum.

Fylkir á toppinn eftir sigur í sjö marka leik
Fimm leikir fóru fram í Lengjudeild karla í kvöld og var nóg af mörkum sem litu dagsins ljós. Fylkir lyfti sér á topp deildarinnar með 4-3 sigri gegn Selfyssingum og þá vann Fjölnir einnig 4-3 sigur gegn Grindavík.

Sjáðu markaflóð Þróttara, fyrstu mörk Selfyssinga í langan tíma og endurkomu Keflavíkur
Þrír leikir fóru fram í Bestu deild kvenna í fótbolta í gær þar sem alls voru 13 mörk. Þróttur Reykjavík vann ÍBV 5-1, Selfoss vann 2-0 sigur á Þór/KA og Keflavík kom til baka og vann Aftureldingu 3-2 í Mosfellsbæ.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss-Þór/KA 2-0 | Markaþurrð Selfyssinga lokið
Selfoss hafði ekki skorað í síðustu fimm leikjum áður en Þór/KA kom í heimsókn. Brenna Lovera braut ísinn á fimmtu mínútu. Þór/KA hótaði jöfnunarmarki í síðari hálfleik en gegn gangi leiksins skoraði Susanna Joy Friedrichs annað mark Selfyssinga og gulltryggði stigin þrjú. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

„Út frá gildunum okkar var þetta ekki góður leikur“
Selfoss vann 2-0 sigur á Þór/KA Í Bestu deild-kvenna. Þetta var fyrsti deildarsigur Selfoss síðan 1. júní síðastliðinn og var Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfyssinga, ánægður með sigurinn eftir leik.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Breiðablik 0-2 | Blikar í úrslit Mjólkurbikarsins eftir sigur í Mjólkurbænum
Breiðablik er á leið í úrslit Mjólkurbikars kvenna eftir 0-2 útisigur gegn Selfyssingum. Blikar eru ríkjandi bikarmeistarar og munu freista þess að verja titilinn gegn Valskonum á Laugardalsvelli.

Segist hafa orðið fyrir rasisma á Selfossi: „Ef hann drepst er fullt af Pólverjum sem geta komið í staðinn fyrir hann“
Pólski fótboltamaðurinn Chris Jastrzembski segist hafa yfirgefið Selfoss vegna kynþáttafordóma. Hann ræður öðrum pólskum leikmönnum frá því að spila á Íslandi.

Farið yfir sumarið á Selfossi: „Lið búin að lesa það og loka á þá tvennu“
„Undirbúningurinn var ekki góður, þær voru ekki komnar með mannskapinn sinn og það gekk ekki vel. Náðu ekki að vera komnar í stand þegar mótið byrjar,“ sagði Harpa Þorsteinsdóttir um stöðu mála á Selfossi en liðið er sem stendur í 6. sæti Bestu deildar kvenna í fótbolta með aðeins 15 stig þegar 12 umferðum er lokið.

Bestu mörkin: Allt í lagi að setja kröfu á dómarana
Mikill umræða skapaðist um dómgæslu, eða öllu heldur skort á dómgæslu, eftir 3-0 sigur Þróttar á Selfossi í Bestu-deild kvenna í gær.

Gary Martin tryggði Selfoss sigur á Þór
Tvö rauð spjöld fóru á loft og þrjú mörk voru skoruð þegar Selfoss vann 2-1 endurkomusigur á heimavelli gegn Þór í Lengjudeildinni í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Þróttur - Selfoss 3-0 | Markaþurrð Selfyssinga heldur áfram
Þróttur vann 3-0 sigur á Selfossi í skrítnum leik á Avis vellinum í Laugardal. Strax á 4.mínútu leiksins skoraði Danielle Julia Marcano og bætti við öðru á 38.mínútu. Það var svo Álfhildur Rósa Kjartansdóttir sem rak smiðshöggið á 80.mínútu fyrir Þróttara og þar við sat.

Ef þetta væri karlaleikur þá hefði spjald komið upp snemma í fyrri hálfleik
Sif Atladóttir var að vonum svekkt eftir 3-0 tap á móti Þrótti. Hún telur að í fyrstu tveimur mörkum leiksins hafi gripið um sig einbeitingaleysi.

Kom inn af bekknum ári eftir að hún tilkynnti að skórnir væru farnir á hilluna
Knattspyrnukonan Hólmfríður Magnúsdóttir var óvænt í liði Selfyssinga í Bestu-deild kvenna í kvöld. Liðið gerði markalaust jafntefli gegn ÍBV, en Hólmfríður lagði skóna á hilluna fyrir tæpu ári síðan.

Umfjöllun: Selfoss-ÍBV 0-0 | Markalaust í suðurlandsslagnum
Selfoss tók á móti ÍBV í sannkölluðum suðurlandsslag í kvöld. Leikurinn var kaflaskiptur þar sem að Selfyssingar voru töluvert betri aðilinn í fyrri hálfleik en ÍBV í þeim síðari. Bæði lið björguðu á línu í markalausu jafntefli í kvöld þar sem að mörg færi litu dagsins ljós.