
Heilsugæsla

Svandís segir það í skoðun að flytja rannsóknirnar aftur heim
Heilbrigðisráðherra segist hafa það til skoðunar að flytja rannsóknir á leghálssýnum aftur heim frá Danmörku. Hún segir það þó krefjast mikils undirbúnings.

Heilsugæslan segist ekki „henda“ sýnum
Forsvarsmenn Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu segjast ekki „henda“ sýnum sem berast Samhæfingarstöð krabbameinsskimana. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef heilsugæslunnar.

Löng röð eftir bóluefni AstraZeneca
Löng röð hefur myndast eftir bólusetningum í Laugardalshöll og nær hún langt upp á Suðurlandsbraut. Í dag er bólusett með seinni skammti af bóluefni AstraZeneca.

Læknar ræða að fá Landspítala til að rannsaka einkennasýni
Læknar skoða nú þann möguleika að Landspítalinn taki að sér rannsóknir á einkennasýnum frá leghálsi. Vísir hefur heimildir fyrir því að þetta hafi verið rætt innan Landspítalans.

Rauðglóandi símalínur vegna bólusetningar barna
Framkvæmdastjóri hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir gríðarlegan áhuga meðal foreldra á að láta bólusetja börnin sín við kórónuveirunni. Börn fædd síðar en 2005 verða ekki bólusett fyrr en í fyrsta lagi eftir að skólahald hefst í haust.

Ómaklegt að fullyrða að ekkert hafi verið gert enda fjárframlög sjaldan verið meiri
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það ómaklegt að fullyrða að ekkert hafi verið að gert innan heilbrigðiskerfisins, enda sé búið að stórauka fjárframlög til heilbrigðismála. Um þúsund læknar afhentu heilbrigðisráðherra nýverið áskorun um að bæta verulega stöðuna á Landspítalanum og heilbrigðiskerfinu öllu.

Segir kerfið virðast svo stíft að það taki yfir læknisfræðina
Fyrrverandi formaður Læknafélags Íslands vill að læknar fái ákveða sjálfir hvort leghálssýni sjúklinga þeirra verði tekin til rannsóknar eða ekki. Hann segir kerfið alltof stíft og farið að taka yfir læknisfræðina.

Með frumubreytingar og einkenni en sýninu engu að síður hent
Kona sem greindist með frumubreytingar í leghálsi í júní í fyrra og hefur verið með dæmigerð einkenni leghálskrabbameins fær sýnið sitt ekki rannsakað. Ákvörðun þess efnis var tekin af Kristjáni Oddssyni, yfirmanni Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana.

Allir geta nú bókað bólusetningu með Janssen
Allir sem ekki hafa verið bólusettir geta nú bókað bólusetningu með Janssen bóluefninu inni á netspjalli heilsuveru.is.

Ekki hægt að anna skimunum á bólusettum við landamærin
Ingibjörg Salóme Steindórsdóttir, verkefnastjóri hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir ekki hægt að anna áframhamhaldandi skimunum á bólusettum og þeim sem eru með mótefnavottorð á landamærunum.

Persónuvernd telur mögulega tilefni til að útvíkka athugun sína
Persónuvernd hefur borist svar frá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu um það hvernig leitast er við að tryggja öryggi við auðkenningu leghálssýna sem send eru til Danmerkur og upplýsinga sem verða til við rannsóknir á þeim.

Hraðpróf tekin í notkun hér á landi
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið í notkun hraðpróf til greiningar á kórónuveirunni. Prófin eru ekki notuð við einkennasýnatöku heldur eru þau einungis ætluð þeim sem þurfa að sýna fram á neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku á landamærum.

Heilbrigðisráðuneytið vill engu svara um leghálssýnarannsóknir
Heilbrigðisráðuneytið segist ekki getað svarað því hvort breytinga sé að vænta varðandi framtíðarfyrirkomulag rannsókna á leghálssýnum í tengslum við skimun eftir leghálskrabbameini.

Stirðlegt yfirtökuferli „gagnrýnivert“ en enginn gerður ábyrgur
Fátt nýtt kemur fram í skýrslu sem Haraldur Briem, fyrrverandi sóttvarnalæknir, hefur unnið fyrir heilbrigðisráðuneytið um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameinum í leghálsi.

Draga alla hópana á morgun og raða niður í bólusetningarröð
Á morgun verður dregið um hvernig hópar í handahófskenndri bólusetningarboðun á höfuðborgarsvæðinu raðast niður. Fyrirkomulagið verður því ekki með þeim hætti að hópar verði dregnir og boðaðir samstundis, heldur mun röð hópanna liggja fyrir.

Hljóp berrössuð milli bæja
Í síðustu viku dreymdi mig að ég hlypi allsnakin hér um sveitina og næstu sveitir og bankaði á hvers manns dyr en enginn kom til dyra. Nú veit ég hvernig skuli ráða þennan draum. Ég hef opinberað fyrir alþjóð mín innstu heilbrigðismál; það þarf talsvert að ganga á svo kona geri það. Mín persóna er þó að sjálfsögðu aukaatriði í stóra samhenginu en stundum þarf að tengja raunveruleikann við manneskju, ekki bara excel-skjal og reglur.

Tímafrekt að senda sýnin utan og svartíminn of langur
Of mikill tími fór í merkingar og pökkun sýna, sendingartíminn var oft langur og þá voru íslensku sýnin ekki í neinum forgangi og svartíminn í heild of langur. Þetta segir Auður Eiríksdóttir, lífeindafræðingur og fyrrverandi deildarstjóri Frumurannsóknarstofu Krabbameinsfélags Íslands, um reynsluna af því að láta rannsóknarstofu í Svíþjóð sjá um HPV-rannsóknir á leghálssýnum.

Hvers vegna eru HPV mælingar ekki framkvæmdar á Landspítalanum?
Á Fésbókarsíðunni „Aðför að heilsu kvenna“ má sjá fjölmargar reynslusögur kvenna sem beðið hafa mánuðum saman eftir svörum eftir leghálssýnatöku og fá þau ekki þrátt fyrir mikla eftirgangssemi. Boðunarkerfi virðist ekki vera í lagi þar sem margar konur kvarta yfir því að fá ekki boðun í skimun. Skimunarferli þarf að vera mjög skipulegt og eftirfylgni þarf að vera pottþétt. Skimun er gagnlaus ef engin er eftirfylgni.

„Konur geta ekki pantað skimun að eigin ósk“ segir landlæknir
Ef ágreiningur skapast milli lækna um framkvæmd krabbameinsskimana væntir landlæknir þess að hlutaðeigandi ræði málin og komist að sameiginlegri niðurstöðu þannig að öryggi konunnar sé gætt.

Heilsugæslan horfir til framtíðar í samvinnu við Hvidovre
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hyggst síðar á þessu ári bjóða konum upp á að taka sjálfar leghálssýni. Þetta er sagt munu verða gert í samvinnu við rannsóknarstofu Hvidovre-sjúkrahússins en enn er óljóst hver mun sinna umræddum rannsóknum.

Stöðvaði rannsókn sem kvensjúkdómalæknir óskaði eftir
Bryndís Sigurðardóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti sín við Kristján Oddsson, verkefnastjóra Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún segir Kristján hafa hafnað því að láta rannsaka leghálssýni sem kvensjúkdómalæknir hennar tók fyrr í þessum mánuði.

Veitt þjónusta skiptir meira máli en formið
Ég vissi það svo sem að ég myndi klóra einhverjum samfylkingarjafnaðarmanninum öfugt þegar ég í grein bar saman hlutfallslegan fjölda einkarekinna heilsugæslustöðva í Svíþjóð og á Íslandi.

Handahófskennd bólusetningarboðun eftir árgangi og kyni
Boðanir í handahófskenndar bólusetningar á höfuðborgarsvæðinu hefjast í þessari viku. Dregið verður um árganga sem verður skipt upp eftir kyni. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að stuðst verði við gamaldags kerfi þegar dregið verður.

Að vera sænskur jafnaðarmaður eða íslenskur
Ég horfi gjarnan til Svíþjóðar þegar ég leita mér fyrirmynda. Svíþjóð er ríki sem lengi hefur verið stjórnað af jafnaðarmönnum og þeirra stefna hefur verið mér leiðarljós á þeirri leið sem ég hef reynt að feta á mínum pólitíska slóða.

Segir ríkið mismuna íbúum með engri heilbrigðisþjónustu
Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir ríkið mismuna íbúum sveitarfélagsins með engri heilbrigðisþjónustu. Um sé að ræða eina sveitarfélagið á landinu þar sem íbúar fái enga heilbrigðisþjónustu í sinni heimabyggð.

Landlæknir telur Landspítala geta sinnt leghálssýnarannsóknum
Embætti landlæknis segir Landspítala eiga að geta sinnt rannsóknum á leghálssýnum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Rannsóknirnar eru nú framkvæmdar í Danmörku en fagsamtök heilbrigðisstarfsmanna hafa kallað eftir því að þær verði fluttar heim.

Konur búa nú við kvíðann sem átti að fyrirbyggja: „Lítilsvirðandi og niðurlægjandi fyrir íslenskar konur“
„Þetta er ótrúlega slæm tilfinning,“ segir Jacqueline Gudgeirsson um biðina eftir niðurstöðum úr leghálssýnarannsóknum. Hún er meðal þeirra sem hafa greint frá reynslu sinni í Facebook-hópnum „Aðför að heilsu kvenna“ en hún fór í fyrstu sýnatöku 1. október síðastliðinn og bíður enn endanlegra niðurstaða.

Fyrirspurnum um Janssen rignir inn til heilsugæslunnar
Fimm greindust með kórónuveiruna í gær og þar af var einn utan sóttkvíar. Kennarar og jaðarhópar eru meðal þeirra sex þúsund sem verða fullbólusettir með Janssen í dag. Fyrirspurnum um bóluefnið rignir inn til heilsugæslunnar.

Viðbrögð heilsugæslunnar við svörum Landspítala: Forstjórinn kannast ekki við eigin tölvupóstsamskipti
Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur skilað heilbrigðisráðuneytinu viðbrögðum vegna jákvæðra svara Landspítala um að taka við rannóknum á leghálssýnum vegna skimunar eftir leghálskrabbameinum.

Svartíminn átta vikur á næstunni: Kenna Krabbameinsfélaginu og Covid-19 um langan biðtíma
Svartími vegna leghálssýna verður átta vikur á næstunni, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að vel gangi að koma sýnum út og svör berist innan þriggja vikna frá komu á rannsóknarstofuna.