

Á fasteignavef Vísis er nú til sölu penthouse íbúð á sjöundu hæð í Borgartúninu. Eignin er auglýst sem ein glæsilegasta íbúð landsins.
Húsnæðismál hafa verið stéttarfélögunum hugleikin í ríflega hundrað ár. Þak yfir höfuðið er ein af grunnþörfum mannsins, skjól og griðastaður. Helstu baráttumál hafa snúið að húsnæðisframboði, byggingargæðum, hagstæðum fjármögnunarmöguleikum og sanngjörnu leiguverði.
Ríkiseignir hafa gert leigusamning til þrjátíu ára við Íþöku; um húsnæði sem á að hýsa starfsemi Skattsins og Fjársýslu ríkisins.
Hvernig getur fólk reiknað það út að það sé hagkvæmara fyrir almenning að leigja húsnæði af einkafyrirtæki undir Ríkisskattstjóra en að ríkið kaupi, eigi og reki sjálft húsnæðið?
Mikil aukning hefur orðið á sumarhúsakaupum hér á landi. Undirritaðir kaupsamningar um sumarhús voru 129 á fyrsta fjórðungi þessa árs og eru þeir margfalt fleiri en á sama tíma á síðasta ári.
Íbúðamarkaður hefur komið heilmikið á óvart frá því að Kórónuveiran skall á. Flestir greiningaraðilar gerðu ráð fyrir að íbúðaverð myndi standa í stað, jafnvel lækka, þegar ljóst var að faraldurinn hefði gífurleg áhrif á hagkerfið hér á landi.
Arion banki, Íslandsbanki og Landsbanki hafa allir kynnt vaxtahækkanir á útlánum sínum í kjölfar nýlegrar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands. Hækka vextir vissra lána um 0,15 til 0,25 prósentustig og tóku breytingarnar gildi í dag.
Benedikt Erlingsson leikstjóri grætur ekki brotthvarf sendiráðsins úr hverfinu. Hann segir guðsþakkarvert að losna við njósnastarfsemi og fyrirferð sem fylgt hefur Bandaríkjamönnunum.
Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar um 7,4 prósent á árinu og verður 10.340 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár, fyrir árið 2022. Þetta er töluvert meiri hækkun en tilkynnt var um fyrir ári síðan þegar fasteignamat hækkaði um 2,1 prósent á landinu öllu.
Byggja þarf um 30 þúsund nýjar íbúðir á næsta áratug til að anna húsnæðisþörf í landinu. Metár var í byggingu íbúða í fyrra en þrátt fyrir það hefur húsnæðisþörfin aukist.
Reikna má með áframhaldandi hækkunum á íbúðaverði og 2,7% hagvexti í ár ef marka má nýja þjóðhagsspá Íslandsbanka. Telur bankinn að atvinnuleysi verði komið í eðlilegra horf árið 2023 og stýrivextir komnir í 3,25% í lok sama árs.
Í mars var slegið met í fjölda seldra íbúða í einum mánuði þegar 1.300 kaupsamningar voru útgefnir. Hefur meðalsölutími íbúða aldrei verið styttri á höfuðborgarsvæðinu og seldist tæplega þriðjungur eigna þar yfir ásettu verði.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,7% milli mars og apríl. Hefur hún nú hækkað um 6,7% síðastliðna þrjá mánuði og um 13,7% síðastliðið ár.
Leiðrétting Þjóðskrár á vísitölu íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu hefur engin áhrif á mælingar Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni en greint var frá því í gær að Þjóðskrá hafi gert mistök við birtingu talnanna þann 20. apríl.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 711,7 stig í mars 2021 samkvæmt Þjóðskrá og hækkaði um 3,3% á milli mánaða en ekki 1,6% eins og fullyrt var á sínum tíma.
Viðreisn mun í dag streyma fundi þar sem rætt verður um kostnað og óvissuna við að eignast og reka heimili. Yfirskrift fundarins er: Þarf ég hagfræðipróf til að eiga heimili?
Fyrstu Svansvottuðu fjölbýlishúsin á íslenskum markaði eru risin í Urriðaholti.
Núna er hægt að kaupa gjósandi eldfjall. Landeigendur gosstöðvanna í Fagradalsfjalli segja jörðina eða hluta hennar fala fyrir rétt verð og eru þegar komnir með tilboð.
Þjóðkirkjan hefði getað fengið 921 milljón krónur fyrir Kirkjuhúsið við Laugaveg árið 2017 en húsið var selt í fyrra á 451 milljón krónur. Fyrrnefnda tilboðinu var hafnað að tillögu biskups.
Er mikill íbúðaskortur fyrirséður á Íslandi og enn ekki búið að leysa úr uppsöfnuðum skorti síðustu ára? Eða er vandamálið fyrir bí og hætta á offramboði?
Litlar líkur eru á því að skortur verði á íbúðum miðað við það magn sem er nú í byggingu og þann fjölda íbúða sem þarf til að mæta þörf.
Auknar líkur eru á því að Seðlabankinn muni grípa til vaxtahækkana á næstunni að mati aðalhagfræðings Íslandsbanka. Samkvæmt nýrri mælingu Hagstofunnar hefur íbúðaverð ekki hækkað eins mikið á milli mánaða frá árinu 2016.
Í mars voru gefnir út 1.488 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands. Ekki hafa fleiri viðskipti átt sér stað í stökum mánuði frá upphafi mælinga eða frá árinu 2006.
Seljandi fasteignar í Reykjavík upplýsti kaupendur hússins ekki um að breytingar sem hann hafði ráðist í væru gerðar í óleyfi. Kaupendurnir stefndu seljandanum eftir að sáttafundir mistókust og kröfðust bóta vegna galla á húsinu og tapaðra leigutekna. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi á mánudag seljandann til að greiða kaupendunum rúmar tíu milljónir í bætur.
Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali um 1,6% milli febrúar og mars sem er mesta hækkun sem hefur sést milli mánaða síðan í maí 2017.
Einbýli í Garðabæ sem auglýst var til sölu í dag hefur vægast sagt slegið í gegn á samfélagsmiðlum í dag. Einbýlishúsið er í Furulundi í Garðabæ og er langmest skoðaða hús dagsins á fasteignavef Vísis.
Hætta er á bólumyndun í verði á íbúðarhúsnæði þar sem byggingafyrirtækin anna ekki eftirspurninni á markaðnum á höfuðborgarsvæðinu að mati Seðlabankans. Bankinn boðar einnig vaxtahækkanir ef vöruverð lækki ekki í samræmi við styrkingu krónunnar að undanförnu en verðbólga er enn langt yfir markmiði Seðlabankans.
Velta á fasteignamarkaði er enn með mesta móti, miðað við árstíma, þó nokkuð hafi dregið úr umsvifum frá því í haust.
Í síðustu greinum okkar „Fasteignasalar á hálum ís?“og „Gerum betur í fasteignaviðskiptum“ getum við þess að tvo fasteignasala þurfi til að gæta hagsmuna beggja aðila, þ.e. kaupanda og seljanda.
Íbúi á Eiðistorgi hefur ekki getað lagfært húsnæði sitt vegna glerþaks yfir torginu í eigu Seltjarnarnesbæjar. Bærinn segist ekki hafa fengið ósk um kostnaðarþátttöku en húsfélag krafðist þess að bærinn færi í framkvæmdir á þakinu árið 2019.