Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Af hverju? - Af hverju ekki?

Á meðan jafnaldrar mínir eru farnir að huga að eftirlaunum, því að taka út séreignarsparnaðinn, hætta að vinna og taka það rólega, þá kýs ég að hefja minn stjórnmálaferil. Hvað í ósköpunum gengur þér til gamli maður?

Skoðun
Fréttamynd

„Það er ekki hægt að taka jafnaðar­manninn úr mér“

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins hélt áfram að hamast í Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vegna kosningafundar Samfylkingarinnar í Kópavogi en Sjálfstæðismenn vilja meina að þar hafi Kristrún lofað um 15 milljörðum árlega úr ríkissjóði í kosningaloforð Samfylkingar á sveitarstjórnarstigi.

Innlent
Fréttamynd

Öldu­sels­skóla skipt út fyrir Seljaskóla

Ekki verður gengið til kosninga í Ölduselsskóla í Seljahverfi í Breiðholti í ár líkt og verið hefur venjan um árabil. Þess í stað munu íbúar í Seljahverfi greiða atkvæði í Seljaskóla þegar gengið verður til sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí næstkomandi.

Innlent
Fréttamynd

Segir for­sætis­ráðu­neytið mis­notað í þágu sveitar­stjórnar­kosninga

Tómas Þór Þórðarson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins kvaddi sér hljóðs í dagskrárliðnum störf þingsins og gerði kynningarfund Samfylkingarinnar í Kópavogi að umtalsefni. Hann sagði að það kæmi sér hreint ekki á óvart að Samfylkingin notaði samstarfsflokkana í ríkisstjórn sem gólfmottur en þetta væri misbeiting á valdi.

Innlent
Fréttamynd

Skjálfti vegna Írisar innan Sjálf­stæðis­flokksins í Eyjum

Mikill skjálfti er innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum og snýr ágreiningurinn um bæjarstjóraefnið Írisi Róbertsdóttur. Hitafundur fulltrúaráðs var haldinn í gærkvöldi þar sem menn töluðu út og víst er að ekki er gróið um heilt vegna klofningsins sem varð 2018 þegar H-listinn var myndaður sem klofningur úr Sjálfstæðisflokki.

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­kjörið á Vopna­firði

Einungis einn framboðslisti barst yfirstjórn Vopnafjarðarhrepps fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og telst hann því sjálfkjörinn. Um er að ræða nýjan framboðslista sem kallar sig Sterk stoð, en Íris Edda Jónsdóttir, verkefnastjóri stjórnsýslu, leiðir listann.

Innlent
Fréttamynd

Hælis­leit­enda­málin settu þrýsting á Reykja­nes­bæ

Oddvitar flokkanna í Reykjanesbæ höfðu ekki um margt að rífast. Þau voru sammála um að starfsfólk sveitarfélagsins væri harðduglegt, það hafi tekið á vanda sem ríkið velti yfir á sveitarfélagið – að því forspurðu – á kassann, greitt þar úr og leyst.

Innlent
Fréttamynd

Ari hlær að gagn­rýni á mynd­bandið

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, segir að myndband sitt, þar sem hann keyrir um göngugötu í miðborg Reykjavíkur og finnur ekkert stæði, hafi kallað fram sprengju í viðbrögðum; 180 þúsund manns hafa horft á myndbandið – Ari segir að svo virðist sem fólk hafi hreinlega beðið eftir því að einhver léti sig þetta varða.

Innlent
Fréttamynd

Mið­flokkurinn úr leik í Ár­borg

Miðflokkurinn mun ekki bjóða fram lista í Árborg í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þingmaður flokksins í Suðurkjördæmi segir ástæðuna þá að enginn hafi mætt fyrir hönd flokksins í persónu til að staðfesta framboðið. Hann segir skorta sveigjanleika hjá fulltrúum yfirkjörstjórnar sem séu skipaðir af núverandi fulltrúum í sveitarstjórn.

Innlent
Fréttamynd

Krefja Ingu svara við leikskólaá­formum Sam­fylkingarinnar

Sjálfstæðismenn telja leikskólaloforð Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, sem hún kynnti á laugardag í Kópavogi, lið í kosningabaráttu flokksins á sveitarstjórnarstiginu og krefja Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, skýringa á því hvernig hún hyggst efna það?

Innlent
Fréttamynd

Ekur niður göngu­götu og furðar sig á stæðaleysi

Í samfélagsmiðlagjörningi ekur Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, niður Austurstræti þar sem hann furðar sig á því að þar séu engin bílastæði. Austurstræti hefur verið göngugata síðan í september og því er ólöglegt að aka bíl niður götuna, sem Miðflokksmaðurinn gerir þó.

Innlent
Fréttamynd

Góðan daginn býður góðan dag

Ellefu flokkar skiluðu nauðsynlegum gögnum fyrir komandi borgarstjórnarkosningar áður en framboðsfrestur rann út klukkan tólf. Óvænt framboð hreyfingarinnar Góðan daginn barst á elleftu stundu en þau segjast vilja bæta rekstur borgarinnar með nýjum áherslum.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt fram­boð í Reykja­vík á elleftu stundu

Undirskriftasöfnun fyrir Góðan daginn, nýtt framboð til borgarstjórnar Reykjavíkur hófst í gærkvöldi, hálfum sólarhring áður en framboðsfrestur rennur út. Hópurinn vill meðal annars endurskoða borgarlínu og Sundabraut.

Innlent
Fréttamynd

Þau skipa L-listann á Akur­eyri

Óðinn Svan Óðinsson, fyrrverandi fréttamaður Ríkisútvarpsins, er oddviti L-listans á Akureyri en listinn hefur verið samþykktur. Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi og lífeindafræðingur, skipar annað sætið.

Innlent
Fréttamynd

Karla­byltingin hefst í Mos­fells­bæ

Oddvitar þeirra flokka sem bjóða fram í Mosfellsbæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar tókust á í fyrsta kosningapallborði fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar áðan. Þeir eru allir karlar sem má heita nýtt í sveitarstjórnarmálum á Íslandi.

Innlent