Orkumál
25 26 27 28 29 30 31 32 33 … 61 ›
Orkusjálfstæði Íslands Ef við Íslendingar ætlum að ná loftslagsmarkmiðum okkar er algerlega nauðsynlegt að flýta orkuskiptum eins og kostur er. En þótt við framleiðum mikið af grænni orku þá þurfum við að gera enn betur. Við flytjum enn inn olíu fyrir 100 milljarða króna á ári. Skoðun 4.11.2022 19:00
Jarðvarminn: Mikilvægasta auðlind Íslands Áframhaldandi orkuskipti eru ein af forsendum þess að ná loftslagsmarkmiðum Íslands og stuðla að auknu orkuöryggi og orkusjálfstæði landsins. Orkuauðlindirnar okkar – vatnsaflið, jarðvarminn og jafnvel vindurinn – eru undirstaða orkuskipta. Skoðun 1.11.2022 11:00
Utanríkisráðherra vill grípa til aðgerða gagnvart rússneskum álframleiðendum Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir, utanríkisráðherra, vill að Vesturlönd grípi til aðgerða gagnvart rússneskum áliðnaði. Um það bil helmingur evrópskar álframeiðslu hefur stöðvast vegna hækkandi raforkukostnaðar, en á sama tíma flæðir rússnesk ál inn í birgðageymslur í Evrópu. Innherji 1.11.2022 06:00
Norðurál leggst á árar með Norsk Hydro Fjöldi álframleiðenda hefur kallað eftir því að viðskiptaþvinganir Vesturlanda nái líka til rússneskra framleiðenda. Norðurál, dótturfélag Century Aluminum á Íslandi, tekur undir þann málflutning og kallar eftir því að hömlur verði settar á útflutning á rússnesku áli til Evrópu og Bandaríkjanna. Innherji 28.10.2022 11:10
IEA: Eftirspurn hráolíu heldur áfram að vaxa fram miðjan næsta áratug Þrátt fyrir að fjárfestingar í endurnýjanlegum orkugjöfum hafi tekið kipp síðastliðin tvö ár mun notkun hráolíu og olíuafurða halda áfram að aukast fram á miðjan næsta áratug. Þetta er meðal þess sem kemur fram í árlegri skýrslu Alþjóðaorkumálastofnunarinnar (IEA) um ástand og horfur á orkumörkuðum. Innherji 27.10.2022 17:30
Telja að orkukreppan geti hraðað orkuskiptunum Hækkandi orkuverð vegna stöðu efnahagsmál og stríðsins í Úkraínu gæti leitt til þess að heimsbyggðin skipti hraðar yfir í endurnýjanlega orkugjafa, að mati Alþjóðaorkumálastofnunarinnar. Hún spáir nú í fyrsta skipti að útlit að losun vegna jarðefnaeldsneytis nái hámarki um miðjan áratuginn. Erlent 27.10.2022 14:08
Tóku umhverfismálin í gegn og bjóða nú vistvæn kaffihylki „Nýjasta varan okkar eru umhverfisvæn kaffihylki sem passa í nespressovélar og sambærilegar vélar. Flest slík hylki eru úr áli eða plasti en við vildum frekar bjóða upp á kost sem þyrfti ekki að endurvinna. Hylkin eru gerð úr plöntutrefjum sem brotna álíka hratt niður í náttúrunni og margur hefðbundinn lífrænn úrgangur. Samstarf 27.10.2022 08:56
Orkuskiptin Mannkynið hefur unnið ötullega að orkuskiptum um langt skeið. Allt frá því manninum tókst að hagnýta sér eldinn hefur orkumyndun þróast, en aldrei hraðar en nú. Skoðun 27.10.2022 08:00
Raforkuverð til Rio Tinto á Íslandi hækkar vegna verðbólgu í Bandaríkjunum Raforkuverðið sem álver Rio Tinto á Íslandi greiðir til Landsvirkjunar er á svipuðum slóðum og það sem fyrirtækið greiddi áður en endursamið var við Landsvirkjun í febrúar á síðasta ári. Verðlagsþróun í Bandaríkjunum er helsti drifkraftur hækkunarinnar, en stærstur hluti raforkusamnings Rio Tinto við Landsvirkjun er verðtryggður miðað við neysluverðsvísitölu í Bandaríkjunum. Tólf mánaða verðbólga í Bandaríkjunum stendur nú í 8,5 prósentum. Innherji 27.10.2022 07:00
Stækka álverið á Grundartanga fyrir sextán milljarða Áætlað er að stækkun álvers Norðuráls á Grundartanga muni kosta sextán milljarða. Gert er ráð fyrir að framkvæmdunum ljúki árið 2024. Viðskipti innlent 25.10.2022 17:15
Selur hlut sinn í Orkufélaginu fyrir tæplega þrjá milljarða SKEL hefur samþykkt kauptilboð frá færeysku félagi í allan 48,3 prósenta hlut íslenska fjárfestingafélagsins í S/P Orkufélaginu fyrir jafnvirði um 2,8 milljarða króna. Orkufélagið er eignarhaldsfélag utan um P/F Magn sem starfar í Færeyjum. Innherji 25.10.2022 16:52
Landsvirkjun gæti orðið fjárfestir í rafeldsneytisframleiðslu Landsvirkjun gæti fjárfest í rafeldsneytisframleiðslu á næstu árum ásamt því að útvega raforku til framleiðslunnar. Þetta segir Ríkarður Ríkarðsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun, í samtali við Innherja. Innherji 25.10.2022 14:54
Gjalda varhug við torkennilegu drónaflugi við norska borpalla Norsk stjórnvöld hafa aukið eftirlit varðskipa og orrustuþotna við borpalla í Norðursjó vegna óþekktra dróna sem hafa sést á flugi nærri þeim upp á síðkastið. Óttast þau að þar kunni að vera spellvirki og bellibrögð Rússa í uppsiglingu. Erlent 24.10.2022 12:49
Úrskurður um tæmingu Árbæjarlóns falleinkunn fyrir borgina Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir nýjan úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um tæmingu Árbæjarlóns vera falleinkunn fyrir borgina og Orkuveitu Reykjavíkur. Það sé til háborinnar skammar að borgin hafi ekki stöðvað tæminguna á sínum tíma. Innlent 24.10.2022 11:53
Fordæma Rússa fyrir rán á forstöðumönnum kjarnorkuvers Leiðtogar G7 ríkjanna fordæma Rússa fyrir rán á forstöðumönnum kjarnorkuvers í Zaporizhzhia. Rússar eru hvattir til að láta kjarnorkuverið tafarlaust af hendi til réttmætra eigenda. Erlent 23.10.2022 10:27
Bar að stöðva tæmingu Árbæjarlóns tafarlaust Skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar bar að stöðva tæmingu Árbæjarlóns tafarlaust er lónið var tæmt haustið 2020. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála telur ljóst að framkvæmdin hafi verið meiri háttar framkvæmd sem borið hafi að afla framkvæmdaleyfis vegna. Innlent 22.10.2022 12:45
Rafmagnslaust eftir árásir Rússa Rafmagnsleysi er víða í vesturhluta Úkraínu vegna eldflaugaárásir Rússa í nótt en þeir eru sagðir hafa ráðist á orkuinnviðum. Takmarkanir eru á rafmagnsnotkun í Úkraínu. Erlent 22.10.2022 09:50
Búast við hlutfallslega lítilli aukningu í losun gróðurhúsalofttegunda Alþjóðaorkumálastofnunin (IEA) spáir því að losun mannkynsins á gróðurhúsalofttegundumvegna bruna á jarðefnaeldsneyti aukist um innan við eitt prósent á þessu ári í samanburði við síðasta ár. Það megi þakka uppgangi endurnýjanlegra orkugjafa og rafknúinna bifreiða. Erlent 21.10.2022 15:23
Berglind Rán frá Orku náttúrunnar til ORF Líftækni Berglind Rán Ólafsdóttir hefur verið ráðin forstjóri ORF Líftækni. Hún hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar. Viðskipti innlent 21.10.2022 14:16
Setjum samdrátt samfélagslosunar í forgang Eftirspurn eftir grænni orku hefur aldrei verið meiri og mikið er rætt um að það vanti meiri græna orku hér á landi. En fyrir hvað vantar okkur orkuna? Skoðun 20.10.2022 11:01
Rún nýr samskiptastjóri Veitna Rún Ingvarsdóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri Veitna. Rún kemur inn í teymi sérfræðinga sakskipta- og samfélags hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sem er móðurfélag Veitna. Viðskipti innlent 20.10.2022 10:01
Óhaldbær rök sjálfbærnistjórans Ómögulegt er að útvega orkuna sem til þarf svo hætta megi notkun jarðefnaeldsneytis hér á landi, eingöngu með bættri nýtingu starfandi virkjana á Íslandi. Að stilla áskoruninni upp með þessum hætti er ekki ein sviðsmynd af mörgum, líkt og sjálfbærnistjóri Orkuveitunnar staðhæfir. Heldur er þetta hreinlega markmiðið sem stjórnvöld hafa sett sér. Umræðan 20.10.2022 07:44
Ekki frítt í stæði fyrir rafmagnsbíla frá og með áramótum Reglur sem veita rétt til þess að leggja rafmagns- og metan-bílum endurgjaldslaust í gjaldskyld bílastæði í Reykjavík falla úr gildi um áramótin. Ekki er lengur talin þörf á slíkum ívilnunum. Innlent 19.10.2022 14:27
Tvöfalda þarf orkuframleiðsluna vegna orkuskiptanna Tvöfalda þarf orkuframleiðslu í landinu á næstu átján árum til að ná fram markmiðum um orkuskipti miðað við núverandi orkunýtingu Íslendinga. Umhverfis- orku- og loftslagsráðherra segir að flókið geti reynst að ná fram nauðsynlegri pólitískri samstöðu um þetta en telur alla sammála um markmiðin. Innlent 18.10.2022 19:20
Reykjavíkurborg fær rafmagn frá N1 N1 rafmagn ehf. mun sjá Reykjavíkurborg fyrir rafmagni næstu tvö árin, frá og með áramótum. Rafmagnskaup borgarinnar færast frá dótturfélagi Orkuveitu Reykjavíkur sem er í meirihlutaeigu borgarinnar. Viðskipti innlent 18.10.2022 15:15
„Leiðinlegt að þeir skuli ekki sjá þetta með opnari hug“ Ívar Ketilsson, Bitcoin-sérfræðingur sem heldur úti hlaðvarpinu Bitcoin-byltingin, vísar því á bug að horfurnar séu ekki góðar á sviði rafmynta nú um mundir. Virði Bitcoin hefur staðið í stað í um 20.000 Bandaríkjadölum frá því í sumar. Innlent 17.10.2022 08:46
Máttu nota uppfinningu nýsköpunarstjóra Íslenskar orkurannsóknir þurfa ekki að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum fyrir notkun á uppfinningum sem starfsmaðurinn fann upp á meðan hann var enn starfsmaður. Starfsmaðurinn taldi sig eiga rétt á hluta af nettóhagnaði af uppfinningunum. Innlent 14.10.2022 13:24
Gasið flæðir frá Frakklandi til Þýskalands í fyrsta sinn Gas er nú byrjað að flæða frá Frakklandi til Þýskalands í fyrsta sinn. Þetta er hluti af aukinni samvinnu ríkjanna í orkumálum vegna orkukreppu í Evrópu. Erlent 13.10.2022 22:58
Innanlandsvélar Icelandair gætu verið knúnar vetni eftir þrjú ár Tækni til að umbreyta olíuknúnum innanlandsflota Icelandair í vetnisknúnar flugvélar verður tilbúin eftir þrjú ár. Þetta kom fram á fundi um orkuskipti í flugi á Reykjavik Edition hótelinu í dag í tengslum við Hringborð norðurslóða. Innlent 13.10.2022 22:23
Hvetja Breta til að spara gas og rafmagn í vetur Orkustofnun Bretlands hvatti landsmenn til þess að spara gas og rafmagn eftir fremsta megni til þess að draga úr hættu á því að grípa þurfi til skammtana og hjálpa til við að lækka verð. Forstjóri stofnunarinnar telur þó ólíklegt að skortur verði á gasi og rafmagni. Erlent 13.10.2022 14:51