Viðskipti erlent
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 334 ›
Samkomulag um kaupin sagt í höfn: „Sýnir hversu slæm staðan er“ UBS, stærsti banki Sviss, er sagður hafa samþykkt að kaupa Credit Suisse, sem er næst stærsti banki landsins. Kaupverðið er sagt vera yfir tveir milljarðar Bandaríkjadala. Yfirvöld í Sviss eru sögð ætla að breyta hlutafélagalöggjöf landsins til að koma í veg fyrr að hluthafa bankans fái að greiða atkvæði um söluna. Viðskipti erlent 19.3.2023 17:22
UBS sagður ætla að kaupa Credit Suisse fyrir allt að milljarð dala UBS, stærsti banki Sviss, er sagður ætla að kaupa Credit Suisse, sem er næststærsti banki Sviss og rambar á barmi falls, fyrir allt að einn milljarð Bandaríkjadala. Það er einungis brot af markaðsvirði bankans við lok markaða á föstudag. Viðskipti erlent 19.3.2023 12:25
Sögð undirbúa neyðarráðstafanir vegna yfirtöku UBS á Credit Suisse Yfirvöld í Sviss eru sögð undirbúa neyðarráðsstafanir til að flýta fyrir yfirtöku svissneska bankans UBS á Credit Suisse en ríkisstjórnin þar í landi kom saman á neyðarfundi í kvöld. Titringur hefur verið á mörkuðum víða um heim en íslenska fjármálakerfið er sterkt að sögn fjármálaráðherra. Hann hefur litlar áhyggjur af áhrifum, sem gætu þó orðið einhver. Viðskipti erlent 18.3.2023 20:43
Bankar sameinast um að bjarga First Republic Nokkrir stórir bandarískir bankar hafa tekið sig saman og sett þrjátíu milljarða dollara inn í bankann First Republic til að forða honum frá falli. Viðskipti erlent 17.3.2023 07:24
Slær þúsunda milljarða króna lán frá seðlabanka Svissneski bankinn Credit Suisse ætlar að fá lánaða allt að fimmtíu milljarða svissneskra franka, jafnvirði hátt á áttunda þúsund milljarða íslenskra króna, frá seðlabankanum þar í landi til þess að styrkja stöðu sína. Hlutabréf í bankanum féllu um fjórðung eftir að stærsti hluthafi hans neitaði að setja meira fé í hann í gær. Viðskipti erlent 16.3.2023 08:36
Áfram lækkanir í kauphöllum Hlutabréf í bönkum og fjármálastofnunum hafa lækkuðu áfram við opnun markaða á suðurhveli jarðar í nótt. Viðskipti erlent 16.3.2023 07:38
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hóta að banna TikTok Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa hótað því að banna samfélagsmiðilinn TikTok ef kínverskir fjárfestar selja ekki hlut sinn í fyrirtæknu. Áhyggjur eru uppi um að gögn fyrirtækisins endi í höndum yfirvalda í Kína. Viðskipti erlent 16.3.2023 07:28
Credit Suisse dragbítur á evrópskum bönkum Svissneski bankinn Credit Suisse dróg evrópska banka niður með sér þegar hlutabréfaverð hans hríðféll í skugga óróa vegna falls tveggja bandarískra banka í dag. Gengi bréfa bankans féll um allt að þrjátíu prósent og hefur aldrei verið lægra. Viðskipti erlent 15.3.2023 17:47
Verðbólgan rýfur hundrað prósenta múrinn Verðbólgan í Argentínu er komin í 102 prósent. Verðbólgan hefur verið yfir tuttugu prósent nú í fimm ár en aldrei hefur hún farið í þriggja stafa tölu áður. Viðskipti erlent 15.3.2023 10:16
Rannsaka fall Kísildalsbankans Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar nú fall Silicon Valley Bank og gjörðir æðstu stjórnenda hans. Yfirvöld tóku bankann yfir eftir að áhlaup var gert á hann í síðustu viku. Gjaldþrot bankans er það næststærsta í sögu Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 14.3.2023 18:47
Segir aftur upp þúsundum manna Mark Zuckerberg, forstjóri Meta (áður Facebook) tilkynnti í dag að aftur væri verið segja upp fjölmörgum starfsmönnum fyrirtækisins. Að þessu sinni eru það tíu þúsund manns verið er að segja upp og á ekki að ráða í fimm þúsund lausar stöður. Viðskipti erlent 14.3.2023 15:25
Bréf í bönkum taka dýfu Hlutabréf í bönkum hafa fallið talsvert í Asíu og í Evrópu þrátt fyrir staðhæfingar Bandaríkjaforseta um að bandaríska fjármálakerfið sé öruggt þrátt fyrir fall tveggja banka á örfáum dögum. Viðskipti erlent 14.3.2023 07:16
Traust á fjármálakerfinu ekki komið aftur eftir hrun Íslenskur hagfræðiprófessor segir að óróleiki vegna falls tveggja bandaríska banka bendi til þess að traust fólks á fjármálakerfinu sé ekki komið aftur þrátt fyrir að fimmtán ár séu liðin frá bankahruninu. Fátt bendi þó til þess að bankarnir hafi fallið vegna kerfislægs vanda. Viðskipti erlent 13.3.2023 23:14
Biden segir bankakerfið standa traustum fótum Joe Biden Bandaríkjaforseti fullyrti að bankakerfið væri traust þrátt fyrir fall tveggja banka á skömmum tíma. Landsmenn þyrftu ekki að hafa áhyggjur af innistæðum sínum og skattgreiðendur yrðu ekki látnir borga reikninginn. Viðskipti erlent 13.3.2023 18:57
Öðrum banka lokað en innistæður að fullu tryggðar Etirlitsaðilar í New York ríki Bandaríkjanna hafa tekið yfir bankann Signature Bank, sem kominn var í sambærileg vandræði og SVB-bankinn sem lokað var fyrir helgi. Innistæður allra innistæðueiganda verða að fullu tryggðar svo tryggja megi trú á bandaríska bankakerfið. Bankarnir voru umsvifamiklir á rafmyntamarkaði. Viðskipti erlent 13.3.2023 08:49
Stærsti bankinn til að fara á hausinn síðan árið 2008 Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa tekið yfir allar eigur Silicon Valley-bankans (SVB) en bankinn er sá sextándi stærsti í Bandaríkjunum. Viðskiptavinir bankans geyma um það bil 175 milljarða Bandaríkjadala þar, 24 þúsund milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 10.3.2023 20:45
Musk biður Harald afsökunar Auðjöfurinn og eigandi Twitter, Elon Musk, bað Harald Þorleifsson, frumkvöðul og fyrrverandi og mögulega áframhaldandi starfsmann Twitter afsökunar í kvöld. Það er eftir miklar og áberandi deilur þeirra á Twitter í dag og í kvöld. Viðskipti erlent 8.3.2023 00:23
Þurfa að fjarlægja Matterhorn af umbúðum Toblerone Framleiðendur hins sívinsæla súkkulaðis Toblerone neyðast til þess að breyta umbúðum þess eftir að hluti framleiðslunnar var fluttur frá Sviss. Svissnesk lög kveða á um að ekki megi nota svissnesk kennileiti á umbúðum mjólkurvara sem ekki eru framleiddar að öllu leyti í Sviss. Viðskipti erlent 5.3.2023 19:56
„Besti kokkur í heimi“ missir óvænt eina Michelin-stjörnuna Veitingastaður franska meistarakokksins Guy Savoy hefur misst eina af Michelin-stjörnum sínum eftir að hafa skartað þremur slíkum í heil nítján ár. Viðskipti erlent 28.2.2023 07:48
Verða samfélagsmiðlar stéttskiptir? Tvö af stærstu samfélagsmiðlafyrirtækjum heims, Meta (áður Facebook) og Twitter, ætla að bjóða notendum að greiða mánaðargjald í skiptum fyrir aukið öryggi, vernd persónuupplýsinga og aukna dreifingu á samfélagsmiðlum. Þjónustu sem færa má sterk rök fyrir því að eigi að vera sjálfsagður hlutur fyrir almenna notendur samfélagsmiðla. Viðskipti erlent 26.2.2023 20:01
Bandarískur milljarðamæringur fannst látinn Bandaríski auðmaðurinn og fjárfestirinn Thomas H Lee, sem var einn af upphafsmönnum skuldsettra yfirtaka í bandarísku viðskiptalífi, hefur fundist látinn, 78 ára að aldri. Viðskipti erlent 24.2.2023 06:31
Saka SBF og félaga um hundruð ólöglegra kosningaframlaga Bandarískir saksóknarar saka Sam Bankman-Fried, stofnanda rafmyntafyrirtækisins FTX, og samverkamann hans um fleiri en þrjú hundruð ólögleg kosningaframlög. Þeir komust hjá reglum um hámarksframlög til frambjóðenda með því að notast við leppa og félög. Viðskipti erlent 23.2.2023 16:07
Bílarisar boða ríflegar launahækkanir Japönsku bílarisarnir Toyota og Honda hafa ákveðið að veita starfsfólki sínu í Japan mestu launahækkun í nokkra áratugi. Viðskipti erlent 23.2.2023 07:28
Rukka fyrir áskrift á Facebook og Instagram Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, tilkynnti í dag að fyrirtækið ætli að byrja að bjóða notendum upp á áskriftarþjónustu. Notendur sem borga fyrir Meta Verified munu fá aukna vernd, beinan aðgang að þjónustuveri Meta og aukna dreifingu á færslum þeirra. Viðskipti erlent 19.2.2023 23:06
Gæti stungið FTX-stjóra í steininn til að takmarka samskipti hans Dómari í máli Sams Bankman-Frieds, stofnanda rafmyntafyrirtækisins FTX, gaf í skyn að hann gæti sent hann í fangelsi til að koma í veg fyrir að hann eigi í frekari samskiptum sem yfirvöld geta ekki fylgst með. Saksóknarar telja ástæðu til að ætla að Bankman-Fried reyni að hafa áhrif á vitni. Viðskipti erlent 17.2.2023 09:06
Vonast eftir nýjum forstjóra Twitter fyrir árslok Bandaríski auðjöfurinn Elon Musk, eigandi bílaframleiðandans Tesla og samfélagamiðilsins Twitter, segist vona að hann verði búinn að finna einhvern til að taka við forstjórastöðunni hjá Twitter fyrir árslok 2023. Viðskipti erlent 15.2.2023 07:24
Allar auglýsingar Super Bowl á einum stað Kansas City Chiefs unnu sigur í æsispennandi Super Bowl leik í nótt. Það skiptir þó ekki öllu máli því Ofurskálin svokallaða er gífurlega mikilvæg þegar kemur að auglýsingum. Viðskipti erlent 13.2.2023 11:24
Setja gervigreind í farþegasætið á netinu Starfsmenn Microsoft ætla að tengja gervigreindartækni, sem byggir á ChatGPT-tækninni vinsælu, við leitarvél fyrirtækisins Bing, netvafrann Edge, Office-pakkann og aðrar vörur fyrirtækisins. Forsvarsmenn fyrirtækisins lýsa tækninni sem aðstoðarbílstjóra fyrir notendur. Viðskipti erlent 7.2.2023 19:51
Musk sýknaður af kröfum vegna meintrar markaðsmisnotkunar Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla og einn ríkasati maður heimsins, var rétt í þessu sýknaður af öllum kröfum hóps fjárfesta í félaginu vegna meintrar markaðsmisnotkunar. Hópurinn sakaði hann um að hafa blekkt fjárfesta með því að tísta um að hann gæti tekið félagið af markaði árið 2018. Viðskipti erlent 3.2.2023 23:25
Fimmtán ára gamall sími á sjö milljónir Fyrsti iPhone síminn kom út í júní árið 2007 og seldist í sex milljónum eintaka. Eitt þessara eintaka er nú til sölu á uppboði hjá bandaríska uppboðshúsinu LCG Auctions. Búist er við því að síminn seljist á yfir 50 þúsund dollara, eða rétt rúmlega sjö milljónir í íslenskum krónum. Viðskipti erlent 2.2.2023 16:56