Sport

Rafa hefur trú á Crouch

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, er ánægður með að hafa fengið Peter Crouch til liðs við félagið. "Crouch er góður leikmaður með marga kosti. Hann mun styrkja framlínuna og með tilkomu hans höfum fleiri kosti í stöðunni." Það kom mörgum á óvart þegar Benitez ákvað að kaupa Crouch á sjö milljónir punda, en hann var viss um að kaupin muni borga sig "Hans fyrsti leikur verður líklega gegn Olympiakos á laugardagskvöldið. Það fer eftir því í hvernig líkamlegu formi Crouch er. Hann hefur æft vel hjá Southampton þannig að ég hef engar áhyggjur af honum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×