Sport

Nisterlrooy mun snúa aftur

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United segir að í ár muni Ruud van Nistelrooy snúa aftur til fyrra forms eftir erfitt ár í fyrra, þar sem hann var mikið meiddur og fullyrðir að sá hollenski muni skjóta United á toppinn á ný. "Síðasta tímabil var dálítið erfitt fyrir Ruud, en núna er hann heill heilsu og við treystum á að hann verði duglegur að skora fyrir okkur á þessu tímabili. Hann er maðurinn í það að skjóta okkur á toppinn með hæfileikum sínum fyrir framan markið," sagði Ferguson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×