Gerum kjarasamning!
Þeir hafa sett það sem skilyrði að stjórnvöld kokgleypi þeirra hugmynd um skipan mála í sjávarútvegi til að þeir gangi til samninga við verkalýðsfélögin. Þeir eru sem sagt að taka kjarasamninga vinnandi fólks í gíslingu og reyna með því að snúa almenningi til fylgispektar við sinn málstað í sjávarútvegsmálum. Þeir eru fyrir hönd kvótakónganna, að láta kné fylgja kviði og tryggja sægreifunum framtíðareign á þjóðarauðlindinni.
Í því sambandi er fróðlegt að rifja upp hvað stendur skrifað í skýrslu starfshóps um endurskoðun á lögum um fiskveiðar, sem kom út í september 2010. Þar segir; „Starfshópurinn, að undanskildum fulltrúum LÍÚ, telur nauðsynlegt að skýrt ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum, þ.m.t. auðlindum sjávar, komi í stjórnarskrá íslenska lýðveldisins."
Þar höfum við það. LÍÚ ætlar ekki að kvitta upp á það að auðlindir Íslendinga séu sameign þjóðarinnar. Það er auðséð hverjir hagsmunir þeir eru og þeir ætla sér að verja þá hvað sem það kostar. Og nú ætla þeir að nota þann þrýsting sem er við gerð kjarasamninga til að ná fram markmiðum sínum. Þetta er forkastanlegt og algjörlega óásættanlegt fyrir launafólk í landinu.
Svarið við þessu er m.a. að samtök opinberra starfsmanna fari á fullt og geri kjarasamning við sína viðsemjendur. Með því styðja þau best við verkalýðsfélögin á hinum almenna markaði í þeirra viðleitni við að ná fram samningi við SA.
Stóra spurningin er hvort ríkisstjórn Íslands hafi kjark og þor til að ganga til samninga við ríkisstarfsmenn áður en almenni markaðurinn hafi klárað sína samninga. Eða ætlar hún að samþykkja gíslatökuna fyrir hönd almennings og heykjast á því að sýna sjálfstæði og sýna hver það er sem stjórnar landinu.
Á þetta verður látið reyna á næstu dögum af hálfu SFR-stéttarfélags. Á síðasta fundi SFR við samninganefnd ríkisins lagði félagið fram hugmyndir um rammann utan um næstu kjarasamninga.
Einn af þeim áhersluþáttum sem félagið lagði fram er að samningar verði gerðir til 18-24 mánaða. Með þeim hætti væri hægt að vinna að stöðugleika til hæfilegs tíma en binda sig ekki of lengi inn í framtíðina í því óvissuástandi sem nú ríkir í rekstrarumhverfi ríkisins.
Á samningafundinum voru einnig lagðar fram hugmyndir um launahækkanir sem tækju mið af ólíkum aðferðum. Þannig yrði lögð áhersla á krónutöluhækkanir á árinu 2011. Á árinu 2012 yrði síðan um prósentuhækkanir að ræða ásamt mögulegum krónutöluhækkunum. Á því ári myndi ný launatafla einnig líta dagsins ljós og stofnanasamningar yrðu endurnýjaðir.
Með þessari leið tækist að ná utan um marga áhersluþætti um lagfæringar á kaupmætti að mati samninganefndar SFR. Með krónutöluhækkun næðist að vinna að því markmiði að leggja áherslu á leiðréttingu lægstu launa, en prósentuhækkun myndi vinna að kaupmáttarleiðréttingu fyrir alla félagsmenn.
Launatafla félagsins þarfnast endurnýjunar í ljósi þeirra samninga sem gerðir voru 2008 og 2009. Því er nauðsynlegt að vinna að breytingu á henni. Stofnanasamningar kalla einnig á endurnýjun og endurgerð. Ýmsar breytingar hafa átt sér stað í umhverfi ríkisstarfsmanna á undarförnum árum sem þarfnast skilgreiningar í stofnanasamningum. Því er afar brýnt að taka þá samninga upp ekki síðar en á tímabilinu 2011 til 2012.
Skoðun
Hverjir munu búa á Blikastaðalandi?
Aldís Stefánsdóttir skrifar
Vatnamálalögin og Hvammsvirkjun: Almannaheill ?
Mörður Árnason skrifar
Er húmanismi komin úr tísku?
Reynir Böðvarsson skrifar
Eru landeigendur við Þjórsá huldufólk?
Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Við þurfum þjóðarstefnu
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar
Fögnum umræðunni um skólamál
Hjördís B. Gestsdóttir skrifar
Ný ríkisstjórn, traust og athygli
Guðmundur F. Magnússon skrifar
Verðmætasköpun með hugvitið að vopni
Ingvar Hjálmarsson skrifar
Fæðuöryggi þjóðar, sláum í klárinn, togum í tauminn
Helgi Eyleifur Þorvaldsson skrifar
Slökkvistarfið
Eiríkur Hjálmarsson skrifar
Hvatning til heilbrigðisráðherra
Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Bönnum íþróttamót barna fyrir kl. 10 um helgar
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Húsnæði er forsenda bata
Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar
Eignarhaldsfélag Ingu og hirðin hennar
Davíð Bergmann skrifar
Í skugga misvægis atkvæðanna
Örn Sigurðsson skrifar
Spurningar og svör um Evrópumál
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar
Skýr sýn og metnaður
Hákon Stefánsson skrifar
Er samþykki barna túlkunaratriði?
Ólöf Tara Harðardóttir skrifar
Allir geta drukknað en enginn þarf að drukkna
Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar
Agaleysi í íslenskum skólum - Kennarar þurfa valdið til baka
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Svar við greininni „Lífsstílslæknar og samsæriskenningar um mettaða fitu“
Hópur lækna skrifar
Fjórar leiðir til að verða besta útgáfan af þér
Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar
Ferðalag sálna
Matthildur Björnsdóttir skrifar
Ekkert samráð – ekkert traust
Björg Eva Erlendsdóttir skrifar
Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn og fátæka fólkið
Yngvi Ómar Sighvatsson ,Jón Ferdínand Estherarson skrifar
Að vera með BRCA-stökkbreytingu
Brynja Rún Sævarsdóttir skrifar
Opið bréf til foreldra í Stakkaborg
Jónína Einarsdóttir skrifar
Rammaáætlun og Hvammsvirkjun: Heimilt en ekki skylt
Mörður Árnason skrifar