Raðmorðingi tekinn af lífi á morgun 22. ágúst 2019 20:54 Gary Ray Bowles myrti sex samkynhneigða karlmenn. Hann kenndi þeim um að hafa eyðilagt samband sitt og kærustu sinnar. Fangelsismálayfirvöld í flórída
Hinn 57 ára gamli Gary Ray Bowles verður á morgun 99. fanginn sem tekinn er af lífi í Flórídaríki frá árinu 1976. Bowles var sakfelldur fyrir þrjú morð þrátt fyrir að hafa játað á sig sex. Í frétt BBC um málið segir að Bowles hafi starfað sem vændiskarl árin áður en morðin hófust eftir að hafa flúið æskuheimili sitt í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum. Fórnarlömb hans voru samkynhneigðir menn og fundust lík þeirra við þjóðveginn sem liggur eftir austurströnd Bandaríkjanna. Við yfirheyrslu sagðist Bowles hafa kennt samkynhneigðum mönnum um að hafa eyðilagt samband sitt og kærustunnar sinnar, en hún hætti með honum þegar hún komst að því að hann hafði áður stundað vændi. Seinna meir frétti hann af því að hún hafði undirgengist fóstureyðingu sem reitti hann til mikillar reiði. Bowles var handtekinn í Jacksonville árið 1994 þar sem hann bjó undir fölsku flaggi. Hann hafði áður flutt til Daytona Beach í Flórída eftir að hafa flutt þangað eftir fangelsisvist vegna þjófnaðar, ráns, líkamsárásar og nauðgunar. Yfirvöld höfðu gert viðamikla leit að honum þegar hann loksins fannst. Fyrr í mánuðinum hafnaði hæstiréttur í Flórída áfrýjun hans og mun hann vera tekinn af lífi á morgun.
Bandaríkin Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Sjá meira