Veita engin ný leyfi til olíuleitar Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 4. desember 2020 11:34 Olíuborpallar fá að starfa áfram til 2050. Getty/Kristian Buus Danska þingið samþykkti í gær að veita engin ný leyfi til olíuleitar í Norðursjó. Loftslagsmálaráðherra landsins sagði ákvörðunina sögulega.
Auk þess að ákveða að hætta leyfisveitingum samþykkti þingið að hætta allri olíuvinnslu fyrir árið 2050. Þannig fá þeir 55 olíu- og gasborpallar sem Danir reka að starfa áfram næstu áratugina. Danska ríkisútvarpið hafði eftir Dan Jørgensen loftslagsmálaráðherra að nú séu Danir að binda enda á tíma jarðefnaeldsneytis. Ákvörðunin sé söguleg og þar sem Danir séu stærsta olíuríki Evrópusambandsins vonist ríkisstjórnin til þess að hafa jákvæð áhrif á aðra. Breska blaðið The Guardian hafði eftir Helene Hagel hjá umhverfisverndarsamtökunum Greenpeace í Danmörku að nú gætu Danir skapað sér sérstöðu á sviði umhverfismála. Um væri að ræða meiriháttar sigur í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Danir hafa aflað um 541 milljarðs danskra króna frá því þeir hófu olíuvinnslu í Norðursjó árið 1972, andvirði um 11 þúsund milljarða íslenskra króna. Ekki er búist við því að ríkið tapi miklum tekjum á því að veita engin ný leyfi.
Danmörk Orkumál Loftslagsmál Bensín og olía Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Fleiri fréttir Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Sjá meira