Sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytisins, Jack Smith, lagði fram ítarlega greinargerð með sönnunargögnum sem embætti hans hefur aflað um aðild Trump að árás stuðningsmanna fyrrverandi forsetans á þinghúsið 6. janúar árið 2021.
Smith lagði greinargerðina fram til stuðnings kröfu sinni um að hægt sé að sækja Trump til saka þrátt fyrir dóm Hæstaréttar Bandaríkjanna um að forseta njóti algerrar friðhelgi vegna embættisfærslna sinna og langt umfram þær í flestum tilfellum. Hann heldur því fram að Trump hafi framið glæpi sína til að sitja áfram sem forseti sem almennur borgari.
Vitnisburð sumra nánustu ráðgjafa Trump í Hvíta húsinu er að finna í greinargerðinni. Þeir lýstu því hvernig Trump hefði háð örvæntingafulla baráttu fyrir því að sitja áfram sem forseti þrátt fyrir að hann hefði tapað kosningunum fyrir Joe Biden árið 2020. Hann hefði haldið áfram að fullyrða ranglega að kosningasvik hefðu kostað hann sigurinn þrátt fyrir að honum hefði verið sagt að þær fullyrðingar ættu við engin rök að styðjast.
Þá er því lýst hvernig Mike Pence, varaforseti, streittist staðfastlega á móti þrýstingi Trump um að hann kæmi í veg fyrir að Bandaríkjaþing staðfesti úrslit kosninganna þrátt fyrir að varaforseti hefði engar heimildir til þess. Trump hafi þá hótað Pence að hann þyrfti að úthúða honum á samfélagsmiðlinum Twitter.

Tísti um Pence eftir að honum var sagt að árásin væri hafin
Trump er sagður hafa verið fullmeðvitaður um það sem átti sér stað 6. janúar 2021. Ráðgjafar hans hafi sagt honum að óeirðir væru í gangi og að fólk hefði brotið sér leið inn í þinghúsið þar sem þingfundur var í gangi til þess að staðfesta úrslit forsetakosninganna. Hann hafi streist á móti því að gefa út skilaboð til þess að reyna að stilla til friðar.
Samkvæmt framburði ráðgjafa hans sat Trump einn og horfði á sjónvarpið þegar hann sendi út tíst þar sem hann sagði að Pence „hafði ekki hugrekkið til þess að gera það sem hefði átt að gera til þess að verja landið okkar og stjórnarskrána“.
Um mínútu síðar komu leyniþjónustumenn Pence á öruggan stað undan æstum múgnum. Stuðningsmenn Trump höfðu meðal annars kyrjað um að hengja Pence og reistu gálga nærri þinghúsinu.
Skömmu eftir að Trump tísti um Pence sagði ráðgjafi hans honum frá því að Pence hefði verið komið í skjól. Ráðgjafinn vonaði að Trump gerði þá eitthvað til að hjálpa. „Hvað með það?“ var hins vegar svar þáverandi forsetans.
Það var ekki fyrr en tæpum tveimur tímum síðar sem Trump hvatti stuðningsmenn sína til þess að fara heim, án þess þó að fordæma árásina eða ofbeldið.

„Fyndu ástæðu fyrir því að þau séu það ekki“
Sami ráðgjafi og færði Trump fréttirnar af afdrifum Pence 6. janúar sagðist hafa heyrt ummæli Trump sem bentu til þess að honum hefði verið ljóst að hann væri ekki raunverulegur sigurvegari kosninganna.
„Það skiptir ekki máli hvort þú vannst eða tapaðir kosningunum. Þú verður samt að berjast af fullum krafti,“ á Trump að hafa sagt við fjölskyldu sína og fleiri um borð í forsetaflugvélinni.
Þá er vitnað til ummæla ýmissa ráðgjafa Trump sem virðast einnig hafa verið meðvitaður um að fullyrðingar þeirra um kosningasvik væru ekki sett fram í góðri trú.
„Fyndu ástæðu fyrir því að þau séu það ekki,“ sagði einn kosningastjóra Trump þegar hann fékk fréttir um að atkvæðabunki sem framboðið reyndi að vefengja væri vissulega rétt talinn.
Það skipti kosningastjórann ekki máli hvort að ástæðurnar væru „kjaftæði“ svo lengi sem hann gæti farið með þær fyrir dómstóla, að því er kemur fram í frétt Washington Post.