„Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 21. desember 2024 22:43 Hanna Katrín Friðriksson er nýr atvinnuvegaráðherra og mun fara með málefni ferðaþjónustunnar í ríkisstjórn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólskins. Hér er hún ásamt stjórninni í rokinu á tröppum Bessastaða fyrr í dag. Vísir/Vilhelm Ákveðnar áhyggjur og kurr ríkir innan ferðaþjónustunnar eftir daginn í dag þegar ný ríkisstjórn sýndi á spilin og kynnti stefnuyfirlýsingu sína. Meðal annars stendur til að leggja á auðlinda- og komugjöld á greinina sem veldur nokkrum áhyggjum innan greinarinnar að sögn framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann fagnar því þó að ekki standi til að hækka virðisaukaskatt á greinina og hlakkar til samstarfs með nýjum ráðherra. „
Ég vil bara óska nýrri ríkisstjórn til hamingju. Það er bara gaman að sjá að þetta hafi tekið stuttan tíma og er komið svona fljótt á stað. Það er náttúrlega ekki mjög djúpt farið í ýmsa hluti í stefnuyfirlýsingunni,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Jóhannes Þór Skúlason er framkvæmdarstjóri Samtaka ferðaþjónustunnarVísir/Vilhelm Fram kemur í stefnuyfirlýsingu stjórnarflokkanna þriggja um ferðaþjónustuna að ríkisstjórnin hyggist ná markmiðum sínum með því að „Með því að stuðla að verðmætasköpun, öryggi og álagsstýringu í ferðaþjónustu. Vinsælustu ferðamannastaðir landsins eru í eigu þjóðarinnar og ríkisstjórnin hyggst taka upp auðlindagjald fyrir aðgang ferðamanna að náttúruperlum Íslands. Á meðan unnið er að útfærslu verða innheimt komugjöld,” líkt og það er orðað í stefnuyfirlýsingunni. Ferðaþjónustan teygir anga sína víða innan stjórnkerfisins og á eftir að koma betur í ljós hvort og hvernig þeir þættir sem snerta ferðaþjónustuna verða útfærðir. „Við hlökkum til að vinna með nýjum ráðherra ferðamála. Mér lýst mjög vel á hana,“ segir Jóhannes Þór. Málefni ferðaþjónustunnar munu heyra undir atvinnuvegaráðuneyti Hönnu Katrínar Friðriksson í Viðreisn.Vísir/Vilhelm Tvenns konar gjaldtaka á matseðlinum „Hvað varðar þau atriði sem nefnd eru sérstaklega varðandi ferðaþjónustu þá er það náttúrlega sérstaklega ánægjulegt það sem ekki er nefnt, það er að segja að það skuli ekki, og það tekið skýrt fram, hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu,“ segir Jóhannes, en fram kom á blaðamannafundi formanna flokkanna fyrr í dag að ekki standi til að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustuna. „Hins vegar eigum við eftir að sjá hvers konar útfærslur ríkisstjórnin er með í huga varðandi það sem nefnt er í aðra gjaldtöku, komugjöld og auðlindagjöld, það er eitthvað sem við þurfum bara að fá að skoða betur og sjá hvaða hugmyndir eru á bakvið það. En ég get ekki neitað því að það hefur aðeins verið kurr í greininni í dag um það að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum. Við viljum gjarnan sjá aðeins betur inn í það hvernig er verið að hugsa þetta,“ segir Jóhannes. Hvoru tveggja væri ný gjaldtaka á ferðaþjónustu sem eðli málsins samkvæmt geti haft frekari áhrif á afkomu greinarinnar. „Í grein þar sem að afkoman er ekki neitt stórkostlegt þá velta menn vöngum yfir því. Þess vegna skiptir líka gríðarlega miklu með hvaða fyrirvara svona gjaldtaka kemur á, hvenær á kjörtímabilinu þetta er hugsað.“ Vankantar komugjalda liggi þegar fyrir Komugjöld hafi margoft komið til tals áður en þá hafi oft komið á daginn að það sé oft flóknara að koma slíku í framkvæmd en að tala um að ætla að gera það. „Við höfum margoft bent á það að það sé skynsamlegra að horfa til gjaldtöku á ferðamanninn þegar hann er kominn til landsins heldur en á þá þætti sem hafa áhrif á það hvaða áfangastað hann velur sér,“ segir Jóhannes. Hann hlakki til að ræða þessi mál við nýja ráðherra. Yfirgripsmikil vinna hafi farið fram á árunum 2018 til 2019 þar sem komugjöld hafi einnig verið skoðuð og fyrir liggi ákveðin yfirsýn yfir þá vankanta sem slík gjaldtaka gæti haft í för með sér. Það þurfi að skoða vel. Það virðist að mati Jóhannesar sem hugmyndir um auðlindagjöld fylgi með einhverjum hætti því sem sé til skoðunar í tengslum við ferðamálaáætlun sem samþykkt var í vor. Það eigi hins vegar betur eftir að koma í ljós hvað ný stjórn sjái fyrir sér. Geti haft alls konar neikvæð áhrif „Ég skynja það að það eru ákveðnar spurningar sem hafa vaknað, um það þegar lögð er til víðtæk ný gjaldtaka á greinina, ég held að við getum ekki orðað þetta neitt öðruvísi, þá náttúrlega staldra menn við og velta fyrir sér hvernig það fari saman við yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar um að styðja við aukna verðmætasköpun. Þetta tvennt fer ekkert endilega alltaf saman, það fer algjörlega eftir útfærslu, fyrirvörum og hvernig hlutirnir eru lagðir upp hvort að þetta hefur áhrif. Það er ákveðin hætta á því að ef þetta er of óljóst að þá haldi fólk að sér höndum í fjárfestingum eða bíði átekta, og það getur haft alls konar neikvæð áhrif. Þannig það skiptir mjög miklu máli að það sé staðið vel að þessu,“ segir Jóhannes. „Það eru vissulega, eftir daginn í dag, ákveðnar áhyggjur um það að það sé verið að horfa til mikillar nýrrar gjaldtöku af greininni sem að mitt fólk er ekki sérstaklega hrifið af.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Telur að of mikil saltnotkun geri moksturinn enn erfiðari Innlent Andrés ekki lengur prins og látinn yfirgefa heimili sitt Erlent „Því miður er verklagið þannig“ Innlent Orðin hæsta kirkja í heimi Erlent Ökumaður stöðvaður með snjófargan á framrúðunni Innlent Reyndu að fá flugmann Maduros til að aðstoða við handtöku hans Erlent Þjóðvegi eitt lokað vegna veðurs Innlent Öldungadeildin samþykkir að ógilda tollaákvarðanir Trump Erlent Hundruð þúsunda strangtrúaðra mótmæla herkvaðningu Erlent Flóttamönnum fækkað úr 125.000 í 7.500 Erlent Fleiri fréttir Segja ríkislögreglustjóra þurfa að taka til hjá sér Telur að of mikil saltnotkun geri moksturinn enn erfiðari Þjóðvegi eitt lokað vegna veðurs Ökumaður stöðvaður með snjófargan á framrúðunni „Því miður er verklagið þannig“ Opnun Brákarborgar frestað enn á ný Ögmundur Ísak ráðinn til þingflokks Sjálfstæðisflokksins Viðbrögð hjólreiðamannsins að einhverju leyti skiljanleg Fjárhagsstaðan alvarleg og tímabundin ráðning ráðgjafans ekki endurnýjuð Formannskosningu Pírata frestað Fastur heima í þrjá daga út af engum mokstri Þurfa mögulega að fresta formannskosningu vegna formgalla Flughálka í kortunum, breytingar hjá bönkunum og formaður Pírata Reyna að lokka íslenska lækna heim Óvenjulegir smáskjálftar reyndust sprengingar Ein hinna reknu segir konunum kastað fyrir ljónin Guðmundur fetar í fótspor Sivjar Fylgjast með smáskjálftum við Bláa lónið Kirkjuþing skorar á stjórnvöld að hækka sóknargjald Ósammála ráðherra um að atkvæðajafnvægi sé mannréttindamál Ungir innflytjendur á Íslandi ekki jafn jaðarsettir og í Svíþjóð Leita til UNESCO vegna Vonarskarðs og kæra kynjahalla Aukin verðbólga áhyggjuefni og asahláka í kortunum Spyr hvort ökumenn myndu keyra á gangandi á götunni Séra Flosi Magnússon fallinn frá Að jafnaði tilkynnt um tólf kynferðisbrot í hverri viku Var ofurölvi þegar hann hljóp yfir Reykjanesbraut „Auðvitað slær þetta mig ekki vel“ Fundi slitið án árangurs og nýr ekki boðaður „Fyrstu þrjú árin sem ég var veik voru algjört helvíti“ Sjá meira