Tilkynning barst klukkan tuttugu mínútur í sex og unnu viðbragðsaðilar á vettvangi að slökkva eldinn í Bólstaðarhlíð.
Að sögn Sigurjóns Ólafssonar, varðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, var enginn í hættu. Vel gekk að slökkva eldinn, sem var staðbundinn við bílskurinn.
Síðustu viðbragðsaðilar yfirgáfu vettvang rétt fyrir klukkan sjö.
Á ljósmyndum sem bárust fréttastofu má sjá tvo slökkviliðsbíla og tvo sjúkrabíla auk lögreglu.
Samkvæmt sjónarvottum var mikil brunalykt í loftinu.
Fréttin hefur verið uppfærð.