Viðskipti innlent

Á von á fleiri fyrir­tækjum í hópmálssókn gegn Booking.com

Auðun Georg Ólafsson skrifar
Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að áhættan fyrir fyrirtækin að taka þátt í hópmálssókninni sé lítil sem engin.
Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að áhættan fyrir fyrirtækin að taka þátt í hópmálssókninni sé lítil sem engin. Vísir

Nálægt hundrað íslensk hótel og gistiheimili taka þátt í hópmálsókn gegn Booking.com vegna misnotkunar þess á markaðsráðandi stöðu. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunar á ekki á von á að Booking refsi fyrirtækjunum fyrir það sækja rétt sinn.

„Við höfum orðið vör við töluverðan áhuga hjá fyrirtækjunum sem eru að skoða núna að taka þátt,“ segir Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. „Við höfum fengið mikið af fyrirspurnum frá rekstraraðilum sem eru að velta þessu fyrir sér. Við sjáum það líka í samantekt hjá þeim sem sjá um þetta í Evrópu að það fer að nálgast hundrað íslensk fyrirtæki sem hafa skráð sig til þátttöku í málssókninni þannig að það er töluverður áhugi.“

Fyrirtækin verða þá hluti af hópmálsókn með nokkur þúsund evrópskum gistifyrirtækjum. Málið verður höfðað í Hollandi gegn Booking. Jóhannes telur góðar líkur til þess að dómurinn samþykki kröfurnar. Þeir sem standa að hópmálsókninni eru bjartsýnir á að hún geti skilað góðri niðurstöðu.

Misnotkun á markaðsráðandi stöðu

Evrópudómstóllinn úrskurðaði í fyrra að svokallaðar verðjöfnunarklásúlur Booking hafi verið ólöglegar á árunum 2004 til 2024. Fyrirtæki sem voru í viðskiptum við Booking á þeim tíma hafi þessvegna orðið fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu fyrirtækisins. Hugmyndin að málsókninni, sem Samtök ferðaþjónustunnar; evrópsku hagsmunasamtökin HOTREC og yfir 25 landssamtök fyrirtækja í gistiþjónustu í Evrópu standa að, er að sækja skaðabætur. Það getur verið í formi þess að þóknun Booking séu lækkaðar eða hluti af þeim endurgreiddar með vöxtum.

Erfitt er að setja nákvæma upphæð á það sem er í húfi fyrir hvert og eitt hótel, að sögn Jóhannesar. Það fari eftir stærð og tíma sem viðkomandi hótel hefur verið í viðskiptum við Booking. Í kröfunni sé almennt verið að horfa á um það bil 30% af greiddum þóknunum auk vaxta.

Fyrirtæki í Þýskalandi ekki refsað af Booking

Jóhannes segir að áhættan fyrir fyrirtækin að taka þátt í hópmálssókninni sé lítil sem engin.

„Málsóknin er fjármögnuð af fjármögnunaraðilum í Þýskalandi sem taka svona að sér og eiga þá einhvern gróðamöguleika að fá hlut í þeim skaðabótum sem vinnast eins og þessir hlutir ganga fyrir sig. Fjárhagsleg áhætta hjá fyrirtækjunum er því engin og það á ekki að vera nein lagaleg áhætta heldur að taka þátt í málsókn af þessu tagi. Það eina sem fólk hefur sett fyrir sig er að Booking niðurfæri fyrirtækin einhvernvegin í kerfinu hjá sér. Þær áhyggjur eru ekki á rökum byggðar. Við höfum farið í gegnum þetta með okkar erlendu samstarfsaðilum. Það hafa um tvö þúsund þýsk fyrirtæki verið í samskonar málsókn og þau hafa ekki orðið vör við neinar slíkar aðgerðir af hálfu Booking. Enda væru þær alveg ólöglegar og gætu komið sér verulega illa við fyrirtækið ef upp um það kemst á meðan á þessu stendur.“

Jóhannes á von á að fleiri fyrirtæki bætist við en frestur til að skrá þátttöku rennur út 31. júli eins og lesa má nánar um á heimasíðu Samtaka ferðaþjónustunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×