Innlent

Lýsa eftir Hlyni

Árni Sæberg skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Hlyni Gíslasyni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Hlyni Gíslasyni. Vísir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Hlyni Gíslasyni, 32 ára. Hann er um 184 sentimetrar á hæð og snöggklipptur. 

Í fréttatilkynningu þess efnis frá lögreglu segir að Hlynur, sem sé búsettur í Reykjavík, hafi haft til afnota gráa Hyundai i30 bifreið, en hún sé án skráningarnúmera.

Þeir sem geti gefið upplýsingar um ferðir Hlyns, eða vita hvar hann er að finna, séu vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 112.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×