Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Agnar Már Másson skrifar 17. janúar 2026 23:24 Von der Leyen og Trump tókust í hendur á Turnberry-golfvellinum í Skotlandi, sem er í eigu Trump, þar sem samningurinn var undirritaður í sumar. AP Verslunarsamningur Bandaríkjanna og Evrópusambandsins frá því í fyrra er í uppnámi þar sem meirihluti á Evrópuþingi vill ekki lengur staðfesta samkomulagið í kjölfar þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði átta Evrópulöndum með tollum í tengslum við Grænland.
Evrópuleiðtogar stilla nú saman strengi til þess að bregðast við hótunum Trumps, sem tilkynnti í dag að hann hygðist leggja tíu prósenta toll á allar vörur frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, Bretlandi, Hollandi, Finnlandi og Þýskalandi frá og með 1. febrúar vegna þess að fyrrnefnd lönd styðja ekki innlimun Bandaríkjanna á Grænlandi. Öll eiga þessi átta lönd það sameiginlegt að hafa sent hermenn til Grænlands á hernaðaræfingu. Að óbreyttu myndu tollarnir hækka í 25 prósent hinn 1. júní, bætti Trump við í færslu sinni í morgun. Í ljósi þessara hótana Trumps er útlit fyrir að Evrópusambandið muni í bili ekki staðfesta viðskiptasamning ESB og Bandaríkjanna sem átti að binda enda á tollastríð Bandaríkjaforsetans og Evrópusambandsins. Leiðtogar á Evrópuþinginu hafa hver á fætur öðrum lýst því yfir að þeir muni ekki samþykkja samninginn í bili. Samningurinn var undirritaður af Trump og Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í Turnberry í Skotlandi í júní. Trump hampaði samningnum sem þeim „stærsta í sögunni“ en hann þar hafði Evrópusambandið lofað að verja 750 milljörðum Bandaríkjadala í bandaríska orku og 600 milljörðum aukalega í fjárfestingar á bandarískum markaði. Manfred Weber, formaður kristilegra Demókrata í EPP sem er stærsta flokkahópsins á Evrópuþinginu, lýsti því yfir í dag að vegna hótana Trump vildi flokkurinn ekki samþykkja verslunarsamning sem ESB og Bandaríkjastjórn komust að síðasta sumar. Samkomulagið er vissulega þegar umdeilt á þinginu þar sem það þótti halla á Evrópumenn enda kveður það á um 15 prósenta toll á langflestar evrópskar útflutningsvörur, en ákveðnar bandarískar útflutningsvörur til Evrópu sluppu hins vegar við toll, sem var nýlunda. „EPP er í raun fylgjandi viðskiptasamningnum, en í ljósi hótana Donalds Trumps í garð Grænlands getum við ekki lengur samþykkt hann. Gera verður hlé á núllprósenta tolli á bandarískar vörur,“ skrifaði Weber úr EPP í færslu á X í dag, en íhaldsfylking hans er stærsti flokkurinn á Evrópuþinginu. Kathleen Van Brempt, varaforseti fylkingar sósíaldemókrata, sem er næststærti flokkahópurinn, hefur einnig gefið út að viðskiptasamningurinn verði ekki staðfestur undir þessum kringumstæðum, samkvæmt umfjöllun Guardian. Valérie Hayer, formaður flokksins Endurnýjum Evrópu, fylkingar frjálslyndra mið-hægri manna, tekur undir og segir hótnair Trumps vera óásættanlegar. „Fyrir vikið getur Endurnýjum Evrópu ekki kosið með Turnberry-verslunarsamningi ESB og Bandaríkjanna.“ Á sama tíma er fjöldi flokkahópa í minnihluta á þinginu sem ekki styður samningin yfir höfuð og því má ráða að hann fái ekki samþykki en til stóð að greiða atkvæði um samninginn 26. janúar. Á morgun, sunnudag, hefur verið boðað til aukafundar í ráði Evrópusambandsins klukkan 17 vegna hótana Bandaríkjaforseta.
Grænland Skattar, tollar og gjöld Evrópusambandið Donald Trump Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? Innlent Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting Innlent Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Innlent Fleiri fréttir Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Sjá meira