Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Samúel Karl Ólason skrifar 11. febrúar 2026 09:21 Ekkert lát virðist ætla að verða á átökunum í Súdan í bráð. Átökin hafa komið verulega niður á óbreyttum borgurum. Getty/Giles Clarke, Avaaz Yfirvöld í Eþíópíu hafa reist leynilegar herbúðir þar sem þúsundir meðlima uppreisnarhópsins Rapid Support Forces (RSF) eru þjálfaðir fyrir átök við stjórnarherinn í Súdan. Framkvæmdirnar munu hafa verið fjármagnaðar af Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem hafa staðið þétt við bakið á RSF í átökunum blóðugu í Súdan.
Furstadæmin eru einnig sögð hafa sent herþjálfara og málaliða til búðanna þar sem þeir eiga að þjálfa RSF-liða. Í byrjun ársins munu um 4.300 RSF-liðar hafa verið í þjálfun í þessum búðum. Flestir þeirra eru sagðir vera frá Eþíópíu og fengu þeir vopn og hergögn sem komu frá furstadæmunum. Eþíópía og furstadæmin hafa um nokkuð skeið átt í nánu varnarsamstarfi. Í frétt Reuters, þar sem varpað er ljósi á tilvist búðanna, segir að þetta sé í fyrsta sinn sem yfirvöld í Eþíópíu eru bendluð við átökin í Súdan. Heimildarmenn fréttaveitunnar hafa einnig bendlað furstadæmin við herstöðina en það þvertaka yfirvöld í furstadæmunum fyrir. Furstadæmin hafa lengi verið sökuð um að styðja RSF gegn stjórnarhernum. Meðal annars með því að senda hergögn eins og vopn og dróna frá Kína til Súdan. Þar að auki hafa furstadæmin ráðið málaliða til að aðstoða RSF gegn stjórnarhernum. Sjá einnig: Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Forsvarsmenn stjórnarhersins hafa haldið þessu fram og hafa embættismenn frá Sameinuðu þjóðunum og í Bandaríkjunum og öðrum ríkjum tekið undir það. The camp was carved out of forested land in a district called Menge, about 20 miles (32 km) from the border and strategically located at the intersection of the two countries and South Sudan, according to the satellite imagery and the diplomatic cable. pic.twitter.com/BTbGHaT9Kq— Benjamin Strick (@BenDoBrown) February 10, 2026 Með þessari aðstoð tókst stjórnendum RSF að snúa vörn í sókn og hefja eitt skæðasta tímabil átakanna mannskæðu en furstadæmin eru sögð hafa notað hjálparstarf Rauða hálfmánans til að smygla vopnum til Súdan. Hergagnaflutningar til Súdan eru bannaðir samkvæmt samþykktum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Sjá einnig: Furstadæmin dæla vopnum og kínverskum drónum til Súdan Heimildarmenn Reuters segja að mennirnir sem þjálfaðir eru í búðunum eigi að berjast fyrir hönd RSF um svæði sem nefnt er eftir ánni Bláu Níl en það er svæði í suðurhluta Súdan, við landamæri Eþíópíu og Suður-Súdan. Blóðug átök Borgarastyrjöldin í Súdan hefur verið gífurlega blóðug. Fregnir þaðan benda iðulega til umfangsmikilla grimmdarverka. Fall borgarinnar El Fasher, undir lok síðasta árs, var einhver blóðugasti viðburður mjög blóðugra átaka í Súdan en borgin var eitt síðasta vígi stjórnarhersins í Darfur-héraði. Stjórn Súdan skiptist nú í raun í tvennt, þar sem stjórnarherinn heldur austurhluta landsins og RSF-liðar vesturhlutanum. Átökin hófust árið 2023. Abdel Fattah Al Burhan, leiðtogi hers Súdan, og Mohamed Hamdan Dagalo, leiðtogi RSF, tóku höndum saman árið 2021 og frömdu valdarán í Súdan. Árið 2023 stóð svo til að innleiða RSF í herinn en Dagalo var mótfallinn því og hófust átök þeirra á milli í kjölfarið. RSF var lengi með yfirhöndina í átökunum en stjórnarherinn sótti svo verulega á í fyrra og í upphafi þessa árs. Herinn rak vígamenn RSF frá Khartoum, höfuðborg Súdan, í mars. Frá mótmælum gegn Sameinuðu arabírsku furstadæmunum og afskiptum þeirra af borgarstyrjöldinni í Súdan. Mótmælin fóru fram í borginni Merowe í Súdan í lok síðasta árs.EPA RSF hefur notið stuðnings annarra ríkja eins og Rússlands og Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Herinn hefur sömuleiðis notið stuðnings annarra ríkja, eins og Rússlands, eftir að yfirvöld þar hættu að styðja RSF. Sjá einnig: Bjóða Rússum flotastöð við Rauðahafið Rússar studdu um tíma RSF og á þeim tíma sendu Úkraínumenn sérsveitir til Súdan, til aðstoðar stjórnarhernum. Sjá einnig: Stríðið í Úkraínu háð í Súdan Átökin hafa komið verulega niður á almenningi í Súdan og hafa þau verið mjög grimmileg. Milljónir hafa lengi staðið frammi fyrir hungursneyð vegna átakanna. Báðar fylkingar hafa verið sakaðar um stríðsglæpi og kynferðisofbeldi er mjög umfangsmikið. Einnig framkvæmdir á flugvelli Við greiningu á gervihnattamyndum komust blaðamenn Reuters að því að svo virðist sem framkvæmdir við herstöðina hafi byrjað í apríl í fyrra. Samkvæmt gögnum sem blaðamenn komu höndum yfir á stöðin að geta hýst allt að tíu þúsund menn. Myndir frá því í nóvember sýndu rúmlega 640 tjöld í búðunum, auk annarra bygginga. Myndir sýndu einnig 56 flutningabíla, sem notaðir eru af her Eþíópíu til að flytja menn, ekið í búðirnar. Hver bíll á að geta rúmað um fimmtíu til sextíu menn. Nokkrum dögum síðar sáust um sjötíu bílar til viðbótar. Gögnin gefa einnig til kynna að í október hafi fyrstu RSF-liðarnir og herþjálfarar á vegum furstadæmanna mætt í búðirnar á vörubílum og Land Cruiserum. Heimildarmenn Reuters segjast hafa séð bíla í búðunum sem merktir voru fyrirtækinu Gorica Group, sem er framkvæmdafyrirtæki frá furstadæmunum. Aðrar myndir sem blaðamenn og sérfræðingar skoðuðu sýna að framkvæmdir hafa átt sér stað á flugvelli sem er ekki langt frá búðunum og landamærum Súdan. Þar virðist sem búið sé að reisa nýtt flugskýli og stjórnstöð fyrir dróna. Eins og áður segir hafa furstadæmin verið sökuð um að útvega RSF kínverska dróna sem hægt er að nota til eftirlits og loftárása. Embættismenn í Eþíópíu segja flugvöllinn ætlaðan her ríkisins. Vestrænir sérfræðingar sem Reuters ræddi við segja flugvöllinn og uppbygginguna þar tengjast starfsemi RSF. Hann væri mikilvægur furstadæmunum við að flytja hergögn til RSF-liða og styðja þá. Furstadæmin hafa mikilla hagsmuna að gæta í Súdan. Abdel Fattah Al Burhan og ríkisstjórn hans hafnaði í fyrra umfangsmiklum samningi við furstadæmin um að byggja höfn við Rauðahafið í framtíðinni. Þá má finna mikið magn af gulli í jörðu í Súdan og það hefur um árabil að miklu leyti verið flutt til Dubaí. Furstadæmin hafa átt í mjög umfangsmiklum fjárfestingum í Súdan í gegnum árin.
Eþíópía Súdan Sameinuðu arabísku furstadæmin Hernaður Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Fleiri fréttir Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Sjá meira