Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Valur Páll Eiríksson skrifar 11. mars 2026 11:30 Infantino átti fund með Trump og segir allt klárt fyrir komu Írans, þrátt fyrir árásir Bandaríkjanna. Hvernig sú koma eigi að takast til í raunheimum er svo annað mál. Vísir/Getty Gianni Infantino, forseti FIFA, segir Donald Trump Bandaríkjaforseta hafa fullvissað sig um að landslið Írans sé velkomið til Bandaríkjanna á HM í sumar og að mótið muni sameina heiminn. Orð hans virka hjákátleg á meðan gestgjafinn ræðst á eitt þátttökuríkjanna og útilokar stuðningsmenn frá því að sjá þar leiki.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hafa staðið yfir síðan 28. febrúar og átökin hafa teygt sig víðar um Miðausturlönd vegna gagnárása Írana á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjum. Flugsamgöngur og olíuflutningur á svæðinu eru þá í lamasessi. Árásirnar eru taldar gera það að verkum að Íranar taki ekki þátt á HM í sumar en þeir eiga að spila alla þrjá leiki sína í árásarríkinu, Bandaríkjunum. Donald Trump sagði fyrr í þessum mánuði að honum væri nokk sama um það hvort Íran tæki þátt á HM. Gianni Infantino fullyrðir aftur á móti, eftir fund með forsetanum í gær, að Trump styðji komu Írans á mótið. „Í kvöld hitti ég Bandaríkjaforseta, Donald Trump, til að ræða undirbúning fyrir komandi heimsmeistaramót og aukna spennu fyrir móti sem hefst eftir aðeins 93 daga,“ skrifaði Infantino á Instagram-síðu sína. „Við ræddum núverandi ástand í Íran og þá staðreynd að Íran hafi unnið sér inn sæti á HM 2026. Trump áréttaði þá stöðu sína að íranska liðið sé að sjálfsögðu velkomið að koma og keppa á mótinu í Bandaríkjunum,“ segir Infantino jafnframt. „Við þurfum öll viðburð líkt og HM karla í fótbolta til að sameina fólk, nú meira en nokkru sinni, og ég vil þakka forseta Bandaríkjanna sérstaklega fyrir hans stuðning, þar sem þetta sýnir enn á ný að fótbolti sameinar heiminn,“ segir Infantino að endingu. Furðuleg ummæli í ljósi aðstæðna En hvað má lesa í þessa yfirlýsingu Infantino? Ekki er langt síðan hann stofnaði sérstök friðarverðlaun FIFA til að veita Trump, og samband forsetanna tveggja orðið sífellt nánara eftir því sem dregið hefur nær HM. Infantino flutti til að mynda stóran hluta starfsemi FIFA í nýjar skrifstofur í Trump-turni í New York. Það er hins vegar erfitt að sjá hvernig það gangi upp að Íran mæti til leiks í Bandaríkjunum og fótboltinn verki sem það sameiningarafl sem Infantino vísar til. Og það á heimavelli Bandaríkjanna sem stunda þessi dægrin ítrekaðar árásir á eina af þátttökuþjóðum komandi móts. Í samhengi hlutanna virkar yfirlýsing Infantino því hálf hjákátleg og ekki í samræmi við veruleikann sem blasir við. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson sagði í fréttum Sýnar á dögunum að nánast engar líkur væru á því að Íran tæki þátt á komandi móti. Líklegt væri að yfirmenn hjá FIFA biðu þess í ofvæni að Íranar segðu sig sjálfir úr keppni og myndu þar af leiðandi leysa stjórnarmenn alþjóðasambandsins úr þeirri klípu sem árásir Bandaríkjanna setur sambandið í. „Það verður hins vegar mjög vandræðalegt fyrir FIFA ef sambandið þarf að refsa landi sem er ráðist inn í með því að reka það úr keppni. Ég er viss það að á þeim bænum eru menn biðjandi til æðri máttarvalda að Íranar leysi þá úr snörunni og taki þá ákvörðun sjálfir að mæta ekki til leiks,“ sagði Stefán meðal annars í viðtalinu. Fjórar þjóðir á bannlista Trumps Íranskir ríkisborgarar eru þá almennt á meðal þeirra sem eru á bannlista Bandaríkjanna hvað vegabréfsáritanir varðar, samkvæmt forsetatilskipun 10998. Því geta engir íranskir stuðningsmenn mætt til Bandaríkjanna til að fylgja liðinu. Frá 1. janúar síðastliðnum hafa 39 ríki verið á bannlista bandarískra stjórnvalda hvað vegabréfsáritanir varðar. Mjög sérstakar undanþágur þarf til að ríkisborgarar frá umræddum 39 ríkjum fái að koma til Bandaríkjanna. En þátttaka á komandi HM er á meðal þeirra undanþága. Auk Írans eru þrjú önnur þátttökuríki á listanum; Haíti, Senegal og Fílabeinsströndin. Liðsmenn, starfsfólk og nánustu fjölskyldumeðlimir leikmanna frá þessum fjórum ríkjum fengju undanþágu. Samkvæmt fulltrúa bandaríska utanríkisráðuneytisins eru undanþágur „afar sjaldgæfar“ enda séu vegabréfsáritanir í Bandaríkjunum „forréttindi en ekki réttur fólks“ samkvæmt svari sambandsins við fyrirspurn ESPN í febrúar. Stuðningsmenn frá Íran, Fílabeinsströndinni, Haíti og Senegal mega því ekki fylgja liðum sínum á þann sameinandi viðburð sem Infantino vísar til.
HM 2026 í fótbolta FIFA Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Bandaríkin Utan vallar Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Barcola kominn til Liverpool Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Fótbolti Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Enski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjáðu skalla Hjartar og allt tryllast Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Stjörnur Real Madrid léku sér í stórsigri á Malaga Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Sjá meira