Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. ágúst 2026 11:32 Arséne Wenger fagnar ákvörðun Giannis Infantino að hætta við að selja hlut í heimsmeistaramótinu til einkafjárfesta. epa/ENNIO LEANZA Ýmsir hafa undrað sig á þögn Arsénes Wenger, yfirmanns alþjóðlegrar fótboltaþróunar hjá FIFA, síðustu daga. Hann hefur nú loks tjáð sig um umdeildar fyrirætlanir Giannis Infantino, forseta FIFA, og segist ekkert hafa komið að þeim né vitað af þeim.
Í yfirlýsingu sinni fagnar Wenger ákvörðun Infantinos að falla frá mjög svo umdeildum áætlunum um að selja innviði FIFA til einkafjárfesta. Fyrirætlanir Infantinos mættu strax mikilli mótstöðu. Meðal annars samþykktu öll 55 aðildarríki UEFA að sniðganga heimsmeistaramótið ef hugmyndir Infantinos næðu fram að ganga. Í kjölfarið dró Infantino í land og hætti við allt saman. Wenger er yfirmaður alþjóðlegrar fótboltaþróunar hjá FIFA og ýmsum þótti sérstakt að ekkert hefði heyrst í honum varðandi hugmyndir Infantinos og allt havaríið í kringum þær. Wenger fann sig loks knúinn til að tjá sig um málið og í yfirlýsingu segist hann ekkert hafa haft með það að gera. „Hjá FIFA er ég yfirmaður alþjóðlegrar fótboltaþróunar. Með teymi mínu hef ég yfirumsjón með gagnagreiningu leiksins, netþjálfunarmiðstöð FIFA, þróun menntunar ungmenna í gegnum sextíu akademíur í sextíu löndum þar sem þeirra er mest þörf og unglingakeppnum um allan heim. Auk þess er ég tæknilegur ráðgjafi IFAB [Reglugerðarsambands fótboltans],“ segir Wenger í yfirlýsingunni. Hann sneri sér svo að fyrirætlunum Infantinos sem hann segist ekkert hafa verið með puttana í. „Ég kom ekki að þessari stefnumótun og varð fyrst var við verkefnið í gegnum fjölmiðla,“ segir Wenger.„Ákvörðunin um að draga verkefnið til baka var algjörlega nauðsynleg og óumdeilanleg því ég hef staðfasta trú á sjálfstæðu FIFA sem þjónar leiknum okkar af alúð, gagnsæi og heilindum.“ Wenger hefur starfað fyrir FIFA síðan í nóvember 2019, rúmu ári eftir að hann hætti sem knattspyrnustjóri Arsenal.
FIFA Deilur um Gianni Infantino Tengdar fréttir FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, þvertekur fyrir að forseti þess, Gianni Infantino, hafi hringt í Donald Trump Bandaríkjaforseta eða aðra í ríkisstjórn hans til að biðja um aðstoð. 4. ágúst 2026 10:01 Infantino sagður biðla til Trump um hjálp Knattspyrnusambönd Wales og Svíþjóðar hafa riðið á vaðið með því að draga formlega stuðning sinn við forseta FIFA til baka en forsetinn umdeildi vill nú að sjálfur Bandaríkjaforseti komi sér til bjargar. 3. ágúst 2026 14:47 England dregur stuðning sinn við Infantino til baka Enska knattspyrnusambandið dregur til baka stuðning sinn við endurkjör Gianni Infantino sem forseta FIFA, samkvæmt enskum miðlum. 3. ágúst 2026 10:23 Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Framtíð Gianni Infantino sem forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins er í miklu uppnámi en margir af forsprökkum í alþjóðlegum fótbolta vilja að hann yfirgefi forsetastólinn. 3. ágúst 2026 10:01 UEFA hótar FIFA með lögsókn UEFA hefur hótað FIFAmeð því að lögsækja Alþjóðaknattspyrnusambandið fyrir að reyna að selja hlut í heimsmeistaramótinu til einkaaðila. 2. ágúst 2026 22:57 Á enn hauka í horni: Marokkó og Katar lýsa yfir stuðningi við Infantino Ekki hafa öll aðildarríki FIFA snúið baki við Gianni Infantino, forseta sambandsins, vegna umdeildra áætlana hans um að selja hlut í því til einkafjárfesta. Katar og Marokkó hafa meðal annars lýst yfir stuðningi við Infantino. 2. ágúst 2026 15:19 „Rangur maður til að leiða þessi samtök“ Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, kallar eftir afsögn Gianni Infantino, forseta FIFA, í ljósi áætlana hans um að selja hlut í sambandinu til einkafjárfesta. 1. ágúst 2026 14:01 UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, kallar eftir nýrri forystu hjá FIFA í ljósi áætlana hans um einkafjárfestingu í sambandinu, sem hætt hefur verið við. Forsetakosningar fara fram í mars. 1. ágúst 2026 12:00 JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fjárfestingabankinn JP Morgan safnaði fé fyrir fyrirætlanir Gianni Infantino um einkavæðingu Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Bankinn var áður stór hluti af plönum um evrópska ofurdeild. 1. ágúst 2026 10:30 Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Sjá meira
FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, þvertekur fyrir að forseti þess, Gianni Infantino, hafi hringt í Donald Trump Bandaríkjaforseta eða aðra í ríkisstjórn hans til að biðja um aðstoð. 4. ágúst 2026 10:01
Infantino sagður biðla til Trump um hjálp Knattspyrnusambönd Wales og Svíþjóðar hafa riðið á vaðið með því að draga formlega stuðning sinn við forseta FIFA til baka en forsetinn umdeildi vill nú að sjálfur Bandaríkjaforseti komi sér til bjargar. 3. ágúst 2026 14:47
England dregur stuðning sinn við Infantino til baka Enska knattspyrnusambandið dregur til baka stuðning sinn við endurkjör Gianni Infantino sem forseta FIFA, samkvæmt enskum miðlum. 3. ágúst 2026 10:23
Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Framtíð Gianni Infantino sem forseta Alþjóðaknattspyrnusambandsins er í miklu uppnámi en margir af forsprökkum í alþjóðlegum fótbolta vilja að hann yfirgefi forsetastólinn. 3. ágúst 2026 10:01
UEFA hótar FIFA með lögsókn UEFA hefur hótað FIFAmeð því að lögsækja Alþjóðaknattspyrnusambandið fyrir að reyna að selja hlut í heimsmeistaramótinu til einkaaðila. 2. ágúst 2026 22:57
Á enn hauka í horni: Marokkó og Katar lýsa yfir stuðningi við Infantino Ekki hafa öll aðildarríki FIFA snúið baki við Gianni Infantino, forseta sambandsins, vegna umdeildra áætlana hans um að selja hlut í því til einkafjárfesta. Katar og Marokkó hafa meðal annars lýst yfir stuðningi við Infantino. 2. ágúst 2026 15:19
„Rangur maður til að leiða þessi samtök“ Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, kallar eftir afsögn Gianni Infantino, forseta FIFA, í ljósi áætlana hans um að selja hlut í sambandinu til einkafjárfesta. 1. ágúst 2026 14:01
UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, kallar eftir nýrri forystu hjá FIFA í ljósi áætlana hans um einkafjárfestingu í sambandinu, sem hætt hefur verið við. Forsetakosningar fara fram í mars. 1. ágúst 2026 12:00
JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fjárfestingabankinn JP Morgan safnaði fé fyrir fyrirætlanir Gianni Infantino um einkavæðingu Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Bankinn var áður stór hluti af plönum um evrópska ofurdeild. 1. ágúst 2026 10:30