Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Lovísa Arnardóttir skrifar 1. september 2026 08:51 Guðrún Hafsteinsdóttir segir það eðlilegt að draga umsóknina til baka nú þegar þjóðin hefur fengið að segja sitt. Vísir/Vilhelm Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn, Miðflokk og Framsóknarflokk ætla að leggja fram þingsályktunartillögu þegar þing kemur saman eftir helgi um að draga umsókn Íslands í Evrópusambandið formlega til baka dragi ríkisstjórnin umsóknina ekki til baka. Rætt var við Guðrúnu um málið í kvöldfréttum Sýnar í gær.
Þar sagði Guðrún að þó svo að umsókninni hefði verið haldið opinni í gegnum ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokksins síðustu ár þá sé breytt staða í dag nú þegar þjóðin hefur sagt sína skoðun á málinu. Þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram um helgina um áframhaldandi viðræður og höfnuðu tæp 53 prósent því. Enn er óljóst hvað ríkisstjórnin hyggst fyrir með umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra sagði í gær eðlilegt að málið yrði rætt áfram í utanríkismálanefnd og forsætisráðherra að skoða þyrfti hvernig eðlilegast væri að loka ferlinu. „Það var mjög ánægjulegt að sjá og heyra í Silfrinu í gær að allir formenn stjórnmálaflokka á Íslandi virða þessa niðurstöðu,“ sagði Guðrún í kvöldfréttunum og að formenn ríkisstjórnarflokkanna hefðu einnig tekið undir það. „Ég tel að ef þær ætla að vera sannar í því þá sé einboðið að þessi umsókn verði dregin til baka. Vilji þjóðarinnar er skýr, þjóðin var kölluð að borðinu til að segja sitt á málinu, þjóðin er búin að því og þá finnst mér liggja í hlutarins eðli að við eigum ekki virka umsókn í bandalag sem þjóðin er búin að hafna núna, inni í einhverri framtíð.“ Eðlilegt að draga nú umsókn til baka Guðrún segir Þorgerði Katrínu ekki hafa verið skýra á fundi utanríkismálanefndar í gær um þetta mál og hvort að umsóknin yrði dregin til baka. Ætli ríkisstjórnin ekki að gera það muni formenn stjórnarandstöðu leggja til að það verði gert. Guðrún var spurð út í það í kvöldfréttunum hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn hefði ekki dregið þessa umsókn til baka fyrr, flokkurinn hafi nærri sleitulaust frá því að viðræðurnar hófust og þeim lauk 2013 verið í ríkisstjórn. Guðrún sagði nú búið að spyrja þjóðina. Það hafi verið álitaefni hvort umsóknin hafi verið dregin til baka eða ekki en Evrópusambandið hafi sjálft skorið úr um það í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar og gefið út að umsóknin væri enn opin. „Það eru auðvitað stóru tíðindin, þjóðin hefur sagt sitt álit, og þess vegna endurtek ég þá mér finnst eðlilegt að þessi umsókn verði með formlegum hætti dregin til baka.“ Guðrún telur Sjálfstæðisflokkinn ekki hafa sofið á verðinum. Einhverjir vilji meina að umsóknin hafi verið dregin til baka en umsóknin hafi svo reynst enn virk og henni þyki óeðlilegt að vera með virka umsókn í bandalag sem meirihluti þjóðar hefur ekki áhuga á. Guðrún telur þetta ekki vonlausa baráttu, heldur eðlilegan farveg málsins. „Við höfum talað um þetta mál í nokkuð mörg ár, og nú finnst mér einboðið að það sé rekinn lokahnykkur og það hlýtur að vera með þessari aðgerð.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Tengdar fréttir Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Þýski utanríkisráðherrann Johann Wadepuhl segist harma það að Íslendingar hafi hafnað í atkvæðagreiðslu að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann telur þetta til marks um að Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi. 31. ágúst 2026 18:38 Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Utanríkisráðherra segir að ekkert hafi verið á ákveðið á fundi utanríkismálanefndar, sem boðað var til í morgun. Til umræðu var hvort draga ætti umsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka og bókun 35. Formaður Miðflokksins segir að það væri með ólíkindum ef bókunin yrði keyrð í gegnum þingið í kjölfar afgerandi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um helgina. 31. ágúst 2026 15:49 Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Valkyrjur hafa tapað kosningunum sem fram fóru í gær, þær séu ekki með nokkru móti sigurvegarar. Hún segir kosningabaráttu SJÁ hafa verið á skjön við það sem forsætisráðherra hefur áður sagt í þinginu. Sú síðarnefnda biðlar til stjórnarandstöðunnar að sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr um hvað málið snúist. 30. ágúst 2026 22:27 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira
Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Þýski utanríkisráðherrann Johann Wadepuhl segist harma það að Íslendingar hafi hafnað í atkvæðagreiðslu að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann telur þetta til marks um að Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi. 31. ágúst 2026 18:38
Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Utanríkisráðherra segir að ekkert hafi verið á ákveðið á fundi utanríkismálanefndar, sem boðað var til í morgun. Til umræðu var hvort draga ætti umsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka og bókun 35. Formaður Miðflokksins segir að það væri með ólíkindum ef bókunin yrði keyrð í gegnum þingið í kjölfar afgerandi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um helgina. 31. ágúst 2026 15:49
Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Formaður Sjálfstæðisflokksins segir Valkyrjur hafa tapað kosningunum sem fram fóru í gær, þær séu ekki með nokkru móti sigurvegarar. Hún segir kosningabaráttu SJÁ hafa verið á skjön við það sem forsætisráðherra hefur áður sagt í þinginu. Sú síðarnefnda biðlar til stjórnarandstöðunnar að sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr um hvað málið snúist. 30. ágúst 2026 22:27