Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Agnar Már Másson skrifar 7. september 2026 22:16 Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins ásamt Jens-Frederik Nielsen, formanni grænlensku landstjórnarinnar, og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur. AP Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins boðar 200 milljarða evra samning við Grænland sem felur í sér fjárfestingar á sviði menntamála, fjarskipta og jarðmálmagraftar. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir álit Grænlendinga til ESB hafa bæst frá því að Bandaríkjaforseti hótaði að leggja eyjuna undir sig.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hefur síðustu tvo daga verið í heimsókn á Grænlandi en hún greindi frá því á blaðamannafundi í Nuuk í dag að sambandið væri reiðubúið að verja allt að 200 milljónum evra (28 ma. kr.) til fjárfestinga á Grænlandi á næstu tveimur árum. Grænlenski miðillinn Sermitisiaq greinir frá. Samningurinn skiptist í þrennt: fjarskipti, auðlindir og menntamál. Sambandið hyggst fjárfesta í fjarskiptainnviðum í gegnum Tusass, sem er grænlenskt póst- og símafyrirtæki með einkaleyfi á rekstri síma- og internetþjónustu á Grænlandi, til að tryggja betri tengingu víða á landinu. Þá eigi einnig að koma með fjárfestingar er varða námugröft á jarðmálmum á Grænlandi sem eigi að tryggja þróun, störf á Grænlandi og meiri verðmæti í landinu. Jafnframt sé ESB reiðubúið að fjárfesta í grænni orku á Grænlandi. Svo er fjárfesting í menntamálum. „Hún á að tryggja að ungt fólk fái tækifæri til menntunar erlendis í gegnum Erasmus plús og þar með tryggja hátt menntunarstig í landinu,“ sagði Von der Leyen og bætti við að ESB stæði með Grænlandi og að sambandið styddi ósk Grænlands um að ráða eigin framtíð. Tímasetningin heimsóknarinnar þykir engin tilviljun og hefur hún verið sett í samhengi við hótanir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að leggja undir sig Grænland. Í byrjun mánaðar sagði Trump að Grænland myndi í janúar árið 2029 vera undir stjórn Bandaríkjanna, en Grænlendingar hafa ítrekað sagt að framtíð Grænlands eigi að vera í höndum Grænlendinga. Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur var til tals í Reykjavík síðdegis til þess að ræða tíðindin á Grænlandi. Hún sagði að Grænlendingar væru almennt mjög jákvæðir gagnvart auknu samstarfi við Evrópusambandið, þótt ekki væri endilega vilji fyrir fullri aðild. Grænlendingar gengu úr Evrópusambandinu, sem þá hét Evrópubandalagið, árið 1982 en það gerðist níu árum eftir að þeir gengu inn í sambandið í samfloti við Dani. Aftur á móti hafði það áhrif þegar Donald Trump, þáverandi Bandaríkjaforseti, lýsti því yfir að Bandaríkin ættu að fá yfirráð yfir Grænlandi. Hún segir að viðhorf Grænlendinga til Evrópusambandsins hafi breyst eftir að sambandið lýsti stuðningi við Danmörku og Grænland. „Það hefur aukið jákvæða sýn gagnvart Evrópusambandinu af því að Evrópa stóð þarna með Danmörku og Grænlandi í þessum hræringum öllum.“ Hjálpa svona fjárfestingar frá ESB? Maður spyr sig hvort þær hjálpi Grænlandi að verða efnahagslega sjálfstæðara frá Danmörku, getur það verið? „Já, þetta hjálpar allt klárlega og ég held að almennt sé sýnin bara mjög jákvæð gagnvart þessu, af því að þetta er auðvitað liður í því að gera Grænland efnahagslega sjálfstæðara.“ Ef þú horfir kannski svona tíu ár fram í tímann, mun þá Grænland standa nær Evrópu eða Bandaríkjunum eða hvernig horfir þetta við þér núna? „Grænlendingar sjá sig svolítið bara þarna í miðjunni, að þeir þurfi að eiga áfram í nánu samstarfi við Bandaríkin, fyrst og fremst á sviði öryggis- og varnarmála, en vilja ríkt samstarf við Evrópu.“ Það hafi skapast umræða í grænlenska þinginu síðastliðið haust um það að gera skýrslu um kosti og galla aðildar Grænlands að Evrópusambandinu, en hún komst ekki lengra en í gegnum fyrstu umræðu. „Ég held í rauninni að næsta skref verði einmitt að auka sjálfstæði sitt gagnvart Danmörku.“
Grænland Donald Trump Evrópusambandið Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Bandaríkin Danmörk Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira