25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. september 2026 07:02 Trump ávarpaði stóran hóp fólks við athöfn þann 8. september. EPA Undanfarnar vikur hafa ýmsar frásagnir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um hvar hann var staddur 11. september árið 2001 dregnar fram. Aldarfjórðungur er liðinn frá því að tveimur flugvélum var flogið á Tvíburaturnana í New York-borg með þeim afleiðingum að turnarnir féllu. Tæplega þrjú þúsund létust í árásinni.
Þann 11. september 2001 tóku meðlimir hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda yfir fjórar flugvélar og flugu tveimur þeirra á Tvíburaturnana sem stóðu í New York-borg. Þriðju flugvélinni var flogið á höfuðstöðvar varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna í Pentagon en sú fjórða brotlenti í Pennsylvaniu-fylki eftir að farþegarnir náðu aftur að taka yfir flugvélina. Tvær flugvélar höfnuðu á turnunum tveimur þann 11. september.Getty The Atlantic tók saman frásagnir Trumps af því hvar hann hefur sagst vera á meðan árásirnar stóðu yfir í New York-borg. Tilefnið var athöfn fyrir nokkrum dögum þar sem viðbragðsaðilar sem tóku þátt í björgunaraðgerðum 11. september og fjölskyldur þeirra voru heiðraðar. „Ég var að byggja stóra byggingu í New York og ég tók iðnaðarmenn niður eftir með mér eftir að þetta gerðist og þeir hikuðu ekki. Allir fóru með mér. Við fórum saman sem stór hópur. Í fullri hreinskilni var ekkert mikið sem við gátum gert. Þetta var hrátt, það hafði enginn séð neitt þessu líkt,“ sagði Trump í ræðunni sinni. Annar turnanna í ljósum logum eftir árásina.Getty Hann áréttaði síðar að hann hefði ekki verið nærri byggingunni þann sama dag heldur hafi mætt með hópinn nokkrum dögum síðar. Þar mætti hann í sjónvarpsviðtal sem hann birti síðan sjálfur nýlega á Truth Social eftir að fjölmiðlar vestanhafs hófu að efast um þessa frásögn hans hér að ofan. Þá birti hann langa færslu þar sem hann sakar fjölmiðlana um upplýsingaóreiðu. Í umfjöllun Atlantic er vísað í Richard Alles, sem starfaði árið 2001 hjá slökkviliði New York-borgar og var einn þeirra sem stýrði aðgerðum eftir árásirnar. Í viðtali frá 2019 segist hann aldrei hafa séð Trump á svæðinu og taldi ólíklegt að almennur borgari hefði tekið þátt á þessum tímapunkti. Fyrri flugvélin hafnaði á nyrðri turninum en hin síðari á syðri turninum.Getty „Er möguleiki á því að hann hafi verið þarna sjálfur og ég vissi ekki af því? Það er möguleiki en ég þekki engan sem segist hafa séð hann.“ Dreginn á brott eftir marr í byggingu Hundruð þúsunda tonna af eitruðum húsarústum voru á víð og dreif um Manhattan eftir árásirnar. Árið 2023 var talið að um fimm þúsund manns hefðu látist af völdum veikinda vegna árásarinnar. Mikil mengun var í borginni dagana á eftir.Getty Þá vöknuðu upp spurningar um hvort byggingin, sem var kölluð U.S. Steel en er betur þekkt sem One Liberty Plaza, myndi hrynja en hún stóð við hlið turnanna. Trump minntist á það við athöfnina. Miðað við frásögnina hljómaði það líkt og hann hefði verið í eða nærri byggingunum þegar árásirnar áttu sér stað en hann sagði seinna meir að þetta hefði gerst nokkrum dögum síðar. Það voru án efa margir límdir við sjónvarpið þennan dag.Getty „Ég mun aldrei gleyma því, tveir slökkviliðsmenn. Við héldum að byggingin væri að fara hrynja yfir okkur og tveir slökkviliðsmenn - stórir, sterkir strákar. Og ég er ekki minnsti maður í heiminum. Þeir gripu undir handakrikana mína og sögðu „við þurfum að komast héðan út“. Og þeir bókstaflega lyftu mér upp - það er ekki auðvelt; ég er stór. Þeir lyftu mér og byrjuðu að hlaupa með mig. Ég sagði „félagar, ég get hlaupið sjálfur“. En þeir voru æðislegir, en þeir héldu að byggingin væri að fara hrynja. Hún hrundi ekki: bandarískt stál.“ Hann hefur áður minnst á álíka sögu, til að mynda árið 2016. Þá hafi hann verið nærri byggingunni og tveir risastórir menn hefðu gripið hann. Fimm árum síðar sagði hann að mennirnir tveir hefðu verið slökkviliðsmenn sem gripu í hann og hlupu burt þegar marr heyrðist frá byggingunni. Fjöldi slökkviliðsmanna létust þennan dag við störf sín.Getty Fjölmiðillinn CNN hefur einnig farið yfir frásagnir Trumps og áréttað að það séu ekki til nein sönnunargögn um að Trump hafi verið í eða við U.S. Steel-bygginguna nokkrum dögum eftir árásirnar. Hvar var Trump? En þá vaknar upp spurningin, hvar var Trump þegar turnarnir féllu? Miðað við viðtal sem hann fór í samdægurs hjá fjölmiðli staðsettum í New Jersey var hann á heimili sínu í Trump-turninum. Þar lýsti hann því að hafa séð risastóra sprengingu og tekið myndband. „Í mörg ár hef ég horft beint á bygginguna, ég hef séð Empire State-bygginguna og Tvíburaturnana fyrir aftan og núna er ég að horfa á ekkert. Þetta er farið og það er erfitt að trúa því,“ sagði hann í viðtalinu samkvæmt áðurnefndri umfjöllun Atlantic. Seinna meir hefur forsetinn minnst á það að hafa séð seinni flugvélina þegar hún lenti á turninum en gerði það ekki í þessu fyrsta viðtali. Árið 2015 sagðist hann sjálfur hafa séð fólk hoppa út úr turninum en í fyrri viðtölum sagðist hann hafa rætt við einhvern sem sá fólkið hoppa út. Mikill meirihluti þeirra sem lést við fall turnanna var á hæðunum þar sem flugvélin lenti og þar fyrir ofan. Talið er að yfir tvö hundruð hafi hoppað úr turnunum, flest vegna mikils hita, elds og reyks. Fólk hoppaði niður til að komast úr turninum.Getty Margir hafa séð ljósmyndina The Falling Man sem er af manni sem virðist hafa hoppað úr turninum og stefnir niður á jörðina.
Donald Trump Bandaríkin Hryðjuverkin 11. september 2001 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira