Kia e-Soul - afar frambærilegur rafbíll í óræðum stærðarflokki Kia e-Soul er fimm manna rafhlaðbakur eða bíll af óræðri millistærð á milli hefðbundins hlaðbaks og jepplings, án þess að sé mjög hátt undir hann. Hann verður flokkaður sem hlaðbakur hér, aðallega vegna þess að hann nær ekki að vera jepplingur að mati blaðamanns. Bílar 8. maí 2021 07:01
Fleiri velja vistvæn ökutæki Flest heimili munar um 110.000 kr. á ári. Það er ýmislegt hægt að gera fyrir þá upphæð. Það er um það bil sú upphæð sem sparast í eldsneytiskostnaði við að færa sig úr dísel- eða bensínbifreið yfir í rafmagnsbifreið. Skoðun 7. maí 2021 10:00
Nýr og endurhannaður Subaru Outback frumsýndur á morgun Ný og endurhönnuð kynslóð hins vinsæla Subaru Outback verður kynntur frumsýndur hjá BL við Sævarhöfða, á morgun, laugardag, 8. maí milli kl. 12 og 16. Bílar 7. maí 2021 07:02
Umferðin jókst um þriðjung í apríl á milli ára Samkvæmt frétt á vef Vegagerðarinnar jókst umferðin á höfuðborgarsvæðinu um 32% í apríl miðað við apríl í fyrra. Mest jókst umferðin um Hafnarfjarðarveg eða um rúmlega 41% en minnst á Vesturlandsvegi eða um rúmlega 29%. Bílar 5. maí 2021 07:01
Margt annað að gera en að nýta lagalega smugu til að keyra á göngugötum Heimilt hefur verið samkvæmt lögum að keyra niður Laugaveginn á milli Frakkarstígs og Klapparstígs frá upphafi mánaðarins, eftir að tímabundin heimild til göngugötufyrirkomulags á umræddum kafla féll úr gildi. Þá heimild á að endurnýja á morgun. Innlent 3. maí 2021 19:05
Kia með flestar nýskráningar í apríl Flestar nýskráningar ökutækja í apríl voru vegna ökutækja af Kia gerð eða 149. Toyota car í öðru sæti með 117 og Volkswagen með 69. Bílar 3. maí 2021 07:01
Honda e - Þýður og líður áfram Honda e er fjögurra manna, fimm dyra rafhlaðbakur. Hann er frumraun Honda í fjöldaframleiddum rafbílum og hann er skemmtilegur og þýður hlaðbakur sem er gaman að keyra á um. Hann líður áfram og þegar gefið er inn þá þýtur hann af stað. Bílar 1. maí 2021 07:00
Volkswagen hefur byggingu þriðju MEB verksmiðjunnar í Kína Volkswagen hefur tilkynnt að bygging glænýrrar rafbílaverksmiðu í Kína sé að hefjast. Verksmiðjan verður samvinna Volkswagen og Anhui þar sem Volkswagen fer með 75% hlut. Verksmiðjan á að skila 350.000 rafbílum á ári, þegar hún verður kominn á fullt. Bílar 30. apríl 2021 07:01
Rafbíllinn Zhiji L7 státar af tæplega 1000 kílómetra drægni og þráðlausri hleðslu Zhiji L7 er kínverskur rafbíll sem vekur athygli fyrir reffilegt útlit og drægni sem er engu lík. Uppgefin drægni er 999 km. Í ofanálag er bíllinn með þráðlausri hleðslu, eitthvað sem hlýtur að verða framtíðarlausn. Bílar 28. apríl 2021 07:00
Kia Sorento vinnur Red og iF hönnunarverðlaun Kia vann bæði til Red Dot og iF hönnunarverðlauna á dögunum í flokki stórra sportjeppa fyrir hinn nýja Kia Sorento Plug-in Hybrid. Sorento hefur þegar unnið til fjölda verðlauna á undanförnum mánuðum. Sorento fékk m.a. Gullna stýrið í Þýskalandi í flokki stórra sportjeppa og verðlaun fyrir bestu hönnunina hjá Auto Bild Allrad. Bílar 26. apríl 2021 07:00
Mini Cooper SE - Skemmtilegasti rafbíllinn til þessa Mini Cooper SE er fjögurra manna, þriggja dyra rafhlaðbakur. Hann er sennilega sá bíll í vöruframboði Mini sem minnir hvað mest á hinn sígilda Austin Mini. Bílar 24. apríl 2021 07:01
Allt að 159 prósenta munur á hæsta og lægsta verði Yfir 100% munur er á hæsta og lægsta verði á dekkjaskiptum, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 48 fyrirtækjum víðs vegar um landið. Þar sem hann er hlutfallega mestur munar um 159% á verði eða 9.510 krónum. Neytendur 23. apríl 2021 13:47
Land Rover Defender kjörinn best hannaði bíll ársins Land Rover Defender var í vikunni kjörinn best hannaði bíll ársins 2021 (World Car Design of the Year 2021) á árlegri verðlaunahátíð World Car Awards í Toronto sem af sóttvarnarástæðum var send út í streymi á netinu. Bílar 23. apríl 2021 07:01
Sjö manna rafjepplingur frá Mercedes-Benz Mercedes-Benz heimsfrumsýndi nýja rafbílinn EQB á sunnudag. EQB er hreinn rafbíll og fimmti bíllinn sem Mercedes-Benz kynnir á stuttum tíma undir merkjum Mercedes-EQ. Nú á dögunum voru bæði EQA og EQS frumsýndir. Fyrsti rafbíll Mercedes-Benz var EQC, þá kom fjölnotabíllinn EQV og enn fleiri bílar undir merkjum EQ eru væntanlegir á næstunni m.a. EQE, sem og jeppaútfærslur af EQE og EQS. Bílar 21. apríl 2021 07:00
Enginn undir stýri í Teslu sem hafnaði á tré með þeim afleiðingum að tveir létust Tvær bandarískar stofnanir fara með rannsókn vegna banaslyss sem varð í Texas um helgina þar sem grunur leikur á að enginn hafi verið undir stýri í sjálfkeyrandi Teslu sem hafnaði utan vegar með þeim afleiðingum að tveir létust. Erlent 19. apríl 2021 22:13
Umferð á Suðurstrandarvegi jókst um 500 prósent vegna gossins Samkvæmt frétt á vef Vegagerðarinnar jókst umferð um Suðurstrandarveg um 500 prósent frá því að gosið hófst í Geldingadölum. Bílar 19. apríl 2021 07:00
Peugeot e-208 - Virkilega heillandi rafsnattari Peugeot e-208 er fimm manna rafhlaðbakur frá Peugeot sem þegar hefur fengið sæmdarheitið bíll ársins í Evrópu árið 2020. Ásamt því að vera besti innflutti bíllinn í Japan í fyrra. Bílar 17. apríl 2021 07:00
Hátæknivæddi lúxusrafbíllinn EQS frumsýndur Mercedes-EQ frumsýndi lúxusbílinn EQS í stafrænni heimsfrumsýningu í gær, 15. apríl. Nýr EQS er hreinn rafbíll og einn tæknivæddasti bíll heims. Bílar 16. apríl 2021 07:02
Hámarkshraði verði hvergi yfir 50 km/klst á borgargötum Dregið verður úr umferðarhraða á götum í eigu Reykjavíkurborgar og verður hámarkshraði hvergi yfir 50 km/klst samkvæmt tillögu að hámarkshraðaáætlun sem var samþykkt í skipulags- og samgönguráði borgarinnar í dag. Stefnt er að því að enginn slasist alvarlega eða látist í umferðarslysum í borginni. Innlent 14. apríl 2021 15:10
Nagladekkjadagurinn á morgun, ekki sektað strax Frá og með morgundeginum 15. apríl er notkun negldra hjólbarða óheimil á Íslandi. Þessi regla er þó háð tíðarfari og því undir löggæsluyfirvöldum komið hvenær nákvæmlega er hafist handa við að sekta fyrir notkun slíkra hjólbarða. Bílar 14. apríl 2021 07:00
Rolls-Royce átti besta ársfjórðung sögunnar Rolls-Royce hefur aldrei selt fleiri bíla á einum ársfjórðungi eins og þeim fyrsta á þessu ári. Rolls-Royce afhenti 1380 bíla á fyrsta ársfjórðungi. Fyrirtækið hefur aldrei afhent fleiri bíla í einum ársfjórðungi í 116 ára sögu framleiðandans. Bílar 14. apríl 2021 06:00
Nissan Leaf - Ekki ætlað að vera sportbíll Nissan Leaf var einn af fyrstu fjöldaframleiddu rafbílunum. Framleiðsla fyrstu kynslóðar hófst árið 2010. Árið 2017 hófst svo framleiðsla annarrar kynslóðar af Nissan Leaf. Blaðamaður reynsluók bíl af þeirri kynslóð nýlega. Bílar 10. apríl 2021 07:00
Hlutfall rafbílasölu BL á 1. ársfjórðungi aldrei hærra Í mars voru 249 fólks- og sendibílar af merkjum BL nýskráðir hér á landi, tæpum 53% fleiri en í mars 2020 þegar þeir voru 163. Mikill meirihluti bílanna, 181, fór til einstaklinga og fyrirtækja. Á markaðnum í heild voru 1.067 fólks- og sendibílar nýskráðir, sem er 8,4% samdráttur frá sama mánuði 2020 þegar þeir voru 1.165. Hlutdeild BL á markaðnum í mars nam 23,3% og var BL jafnframt stærst umboða á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði. Bílar 9. apríl 2021 07:00
Hugleiðingar: Mikið ekinn nýlegur bíll eða lítið ekinn eldri bíll Að því gefnu að aðrir þættir eins og öryggi og ástand sé svipað. Hvort er betra að kaupa fjögurra til fimm ára bíl sem er lítið ekinn eða eins til þriggja ára bíl sem er meira ekinn. Bílar 7. apríl 2021 07:00
Mercedes-Benz kynnir tæknina að baki EQS Mercedes-Benz hefur gefið út tæknilegar upplýsingar um EQS, nýtt rafdrifið flaggskip í fólksbílaflota Mercedes-Benz. Tvær gerðir rafhlaða verða í boði sem og talsverður fjöldi uppstillinga á drifrafhlöðum. Bíllinn verður heimsfrumsýndur 15. apríl, þá má vænta frekari upplýsinga um verð og annað. Bílar 5. apríl 2021 07:01
Tesla á leið í að slá eigið sölumet Nýlega birti Tesla tölur um sölur á nýliðnum ársfjórðung. Á fyrsta ársfjórðungi 2021 afhenti Tesla 184.800 bíla sem að megninu til eru Model Y og Model 3. Með þessu áframhaldi verður 2021 besta ár Tesla frá upphafi. Bílar 3. apríl 2021 07:00
Volkswagen laug til um nafnabreytingu Volkswagen í Bandaríkjunum laug að fjölmiðlum þegar sendar voru út fréttatilkynningar á mánudag og þriðjudag um að til stæði að breyta nafni starfseminnar úr „Volkswagen of America“ í „Voltswagen of America“. Var það sagt gert til að undirstrika aukna áherslu á rafbílaframleiðslu félagsins. Viðskipti innlent 31. mars 2021 09:37
KIA EV6 – rafmögnuð framtíð KIA Kia EV6 er hreinn rafbíll og fyrsti bíllinn af nýrri kynslóð rafbíla Kia. Þetta er fyrsti bíll Kia sem byggður er á nýjum og háþróuðum E-GMP undirvagni (Electric-Global Modular Platform) sem er sérstaklega hannaður fyrir rafbíla. Þessi nýi undirvagn verður notaður í næstu kynslóðir rafbíla hjá Kia. Bílar 31. mars 2021 07:00
Uppfært: Breyta ekki nafni bandarísku starfseminnar í Voltswagen Uppfært: Volkswagen laug til um nafnabreytingu. Volkswagen í Bandaríkjunum er ekki að fara að breyta nafni félagsins í Voltswagen líkt og kom fram í fréttum í gær. Um var að ræða markaðsbrellu. Viðskipti erlent 30. mars 2021 14:50
Nýr Mercedes-Benz EQS er loftflæðilega hagkvæmasti götubíllinn Mercedes-Benz EQS sem verður frumsýndur í apríl, nýtir tækni úr Mercedes-Benz S-Class og er samkvæmt Mercedes-Benz loftflæðilega hagkvæmasti götubíll sögunnar. Bílar 29. mars 2021 07:01