Óvænt tap Juventus á heimavelli Ítalska stórveldið Juventus er í alls kyns vandræðum, innan vallar sem utan, þessa dagana og í dag fékk liðið skell á heimavelli. Fótbolti 29. janúar 2023 16:16
West Ham áfram eftir frábæra innkomu Dagnýjar Dagný Brynjarsdóttir hóf leik Wolves og West Ham United í ensku bikarkeppninni á varamannabekknum. Hún kom inn af bekknum þegar 25 mínútur lifðu leiks og staðan var enn markalaus, leiknum lauk með 2-0 sigri Hamranna. Enski boltinn 29. janúar 2023 16:01
Magnað mark Mitoma skaut Brighton áfram og kom í veg fyrir að Liverpool verji titil sinn Brighton og Liverpool mætast í annað sinn á skömmum tíma. Síðast unnu Mávarnir frá suðurströndinni þriggja marka sigur. Enski boltinn 29. janúar 2023 15:30
Tvö mörk dæmd af Milan sem steinlá á heimavelli AC Milan tapaði 5-2 fyrir Sassuolo í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. AC Milan hefur fengið á sig þrjú mörk eða meira í þremur leikjum í röð. Fótbolti 29. janúar 2023 14:00
Arsenal neitar að selja McCabe til Englandsmeistaranna Englandsmeistarar Chelsea vilja ólmir fá Katie McCabe, leikmann Arsenal í sínar raðir. Skytturnar, sem eru í harðri baráttu við Chelsea um titilinn í ár, neita að selja. Enski boltinn 29. janúar 2023 12:30
Chelsea áfram með veskið opið Hinn 19 ára gamli Malo Gusto er búinn að skrifa undir samning við Chelsea. Hann mun þó ekki ganga í raðir Lundúnafélagsins fyrr en í sumar. Enski boltinn 29. janúar 2023 11:30
Eriksen yfirgaf Old Trafford á hækjum Christian Eriksen yfirgaf Old Trafford, heimavöll Manchester United, á hækjum eftir sigurinn á B-deildarliði Reading í ensku bikarkeppninni í gærkvöld. Eriksen var í byrjunarliði Man United en var tekinn af velli skömmu eftir glannalega tæklingu Andy Carroll. Enski boltinn 29. janúar 2023 11:01
„Casemiro hefur bætt liðið og móralinn“ „Við fengum fjöldann allan af færum. Við ræddum um það í hálfleik að vera þolinmæðir og þá myndi fyrsta markið koma,“ sagði Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, eftir 3-1 sigur liðsins á B-deildarliði Reading í 4. umferð ensku bikarkeppninnar, FA Cup. Enski boltinn 29. janúar 2023 08:01
Brasilískt þema á Old Trafford: Sjáðu mörkin Manchester United vann Reading 3-1 í síðasta leik dagsins í 4. umferð ensku bikarkeppninnar. Staðan var markalaus í hálfleik en þrjú mörk í síðari hálfleik skutu heimamönnum áfram. Öll mörk kvöldsins voru skoruð af Brasilíumönnum. Enski boltinn 28. janúar 2023 21:55
Jón Dagur skoraði í jafntefli Jón Dagur Þorsteinsson skoraði eina mark Leuven í 1-1 jafntefli liðsins gegn St. Truiden í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 28. janúar 2023 21:31
Enn eitt jafntefli Bæjara Þriðja leikinn í röð gerðu Þýskalandsmeistarar Bayern München 1-1 jafntefli. Að þessu sinni gegn Eintracht Frankfurt á heimavelli. Fótbolti 28. janúar 2023 20:31
Son gekk frá Preston í seinni hálfleik Son Heung-Min skaut Tottenham Hotspur áfram í ensku bikarkeppninni með tveimur mörkum í síðari hálfleik þegar Spurs vann Preston North End 3-0 á útivelli. Þriðja markið skoraði nýi maðurinn Arnaut Danjuma. Enski boltinn 28. janúar 2023 19:55
Martínez skaut Inter í annað sæti Heimsmeistarinn Lautaro Martínez, framherji Inter og argentíska landsliðsins, skoraði bæði mörk Inter þegar liðið kom til baka og vann 2-1 sigur á Cremonese í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 28. janúar 2023 19:31
Markalaust í Íslendingaslagnum á Ítalíu | Jökull hélt hreinu Albert Guðmundsson og Hjörtur Hermannsson mættust í Serie B, næstefstu deild ítalskrar knattspyrnu í dag. Willum Þór Willumsson lék 72 mínútur í 0-2 tapi Go Ahead Eagles gegn PSV í Hollandi. Þá hélt Jökull Andrésson hreinu í endurkomu sinni hjá Exeter City í ensku C-deildinni. Fótbolti 28. janúar 2023 18:00
Pedri jók forystu Börsunga á toppnum Ungstirnið Pedri tryggði Barcelona 1-0 útisigur á Girona í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 28. janúar 2023 17:16
Stjarnan hirti Þungavigtarbronsið eftir sigur í vítaspyrnukeppni Bestu deildar liðin Stjarnan og Keflavík mættust í leiknum um þriðja sætið í Þungavigtarbikarnum í fótbolta í dag. Fótbolti 28. janúar 2023 15:45
Guðný spilaði þegar AC Milan steinlá fyrir Inter Það var boðið upp á nágrannaslag í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og var einnig um Íslendingaslag að ræða þegar AC Milan og Inter áttust við. Fótbolti 28. janúar 2023 15:30
Mikael Egill á bekknum og vandræði Venezia halda áfram Mikael Egill Ellertsson var ónotaður varamaður í fyrsta leik sínum með ítalska B-deildarliðinu Venezia í dag. Fótbolti 28. janúar 2023 15:00
Trippier framlengir við Newcastle Enski knattspyrnumaðurinn Kieran Trippier hefur verið einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu. Fótbolti 28. janúar 2023 13:11
Birkir kom inn af bekknum í sigri Birkir Bjarnason og félagar í Adana Demirspor eru í harðri toppbaráttu í tyrknesku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 28. janúar 2023 12:32
Slitin hásin frestar frumraun Natöshu með Brann Knattspyrnukonan Natasha Anasi mun ekki þreyta frumraun sína með norska úrvalsdeildarliðinu Brann í bráð, en hún er tiltölulega nýgengin í raðir félagsins frá Breiðabliki. Fótbolti 28. janúar 2023 11:31
Bielsea vildi taka við U-21 ára liði Everton fyrst og aðalliðinu næsta sumar Marcelo Bielsa er einstakur á margan hátt. Hann var orðaður við þjálfarastöðuna hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Everton en var á endanum ekki ráðinn. Ástæðan virðist vera sú að hann vildi láta starfslið sitt taka við aðalliði félagsins á meðan hann myndi stýra U-21 ára liði Everton. Enski boltinn 28. janúar 2023 09:01
„Við hefðum getað fengið miklu meira út úr leiknum“ „Mjög vonsvikinn,“ sagði Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, eftir 1-0 tap sinna manna gegn Manchester City í ensku bikarkeppninni í fótbolta. Enski boltinn 28. janúar 2023 08:00
Aké skaut Man City áfram í bikarnum Nathan Aké skoraði eina markið þegar Manchester City vann Arsenal 1-0 í fyrsta leik 4. umferðar ensku bikarkeppninnar. Enski boltinn 27. janúar 2023 22:10
Nökkvi Þeyr lagði upp markið sem kom Beerschot á toppinn Eftir að lenda 0-2 undir þó komu Nökkvi Þeyr Þórisson og félagar í Beerschot til baka gegn Genk U23 í belgísku B-deildinni í kvöld og unnu dramatískan 3-2 sigur. Fótbolti 27. janúar 2023 21:00
Svava Rós í raðir Gotham Svava Rós Guðmundsdóttir, landsliðskona í fótbolta, var í dag kynnt sem nýjasti leikmaður bandaríska félagsins Gotham sem er með bækistöðvar sínar í New Jersey. Fótbolti 27. janúar 2023 18:30
Stigafrádráttur hjá Juventus og Mourinho vill þrjú stig í stórafmælisgjöf Þeir hafa rekið upp stór augu sem hafa skoðað stöðuna í ítölsku A deildinni í vikunni án þess að lesa fréttir undangenginna daga. Juventus, sem áður var helsti keppinautur Napoli um titilinn og virtist vera á góðri siglingu um 10 stigum á eftir toppliðinu, hafði allt í einu misst 15 stig og var fallið niður í 10. sæti, rétt á eftir Empoli. Fótbolti 27. janúar 2023 17:01
Aðeins einn leikmaður fékk sneið af afmælisköku Mourinhos José Mourinho, knattspyrnustjóri Roma, varð sextugur í gær. Leikmenn og starfslið Roma fögnuðu með Portúgalanum á þessum tímamótum. Fótbolti 27. janúar 2023 12:31
Bíða enn eftir fyrsta marki Ronaldo og nú var liðið slegið út úr bikarnum Al Nassr er að borga Cristiano Ronaldo langhæstu launin í fótboltaheiminum en það er ekki alveg að skila árangri inn á vellinum. Fótbolti 27. janúar 2023 10:31
Eftirmaður Erik ten Hag entist ekki út janúarmánuð Hollensku meistararnir í Ajax Amsterdam hafa ákveðið að reka þjálfara sinn Alfred Schreuder en lokaleikur hans var jafnteflisleikur á móti Volendam í gærkvöldi. Fótbolti 27. janúar 2023 09:31