

Talskona Stígamóta segir það jákvæða breytingu að gerandi stígi fram til að axla ábyrgð á sínum gjörðum eins og tónlistarmaðurinn Auður gerði í viðtali fréttastofu í vikunni. Það sé þó of snemmt að ræða hvort hvort gerendur eigi afturkvæmt í samfélagið.
Breska skákkonan Tallulah Roberts segir að karlmenn hafi ítrekað sýnt henni og fleiri skákkonum vanvirðingu á nýafstöðnu Reykjavíkurskákmóti. Þá hafi maður klipið hana um mittið þegar hún átti leið um keppnissvæðið og annar tekið hana hálstaki.
Ingibjörg Ragnarsdóttir, móðir Auðuns Lútherssonar, segist afar stolt af því að sonur hennar hafi stigið fram og greint frá sinni hlið en hann hefur mátt sæta ásökunum um kynferðisofbeldi.
Auður stígur fram í viðtali eftir að hafa dregið sig úr sviðsljósinu í u.þ.b. ár. Þar axlar hann ábyrgð á gjörðum sínum og brotum gagnvart þolendum sínum. Hann viðurkennir að hafa beitt ofbeldi á við þvinganir, suð, hafa farið yfir mörk einstaklinga og fleira.
Það er í grunninn munur á að trúa orðrómum og trúa þolendum. Ég get ekki tekið ábyrgð á því sem er ósatt, segir tónlistarmaðurinn Auður. Hann segist axla ábyrgð á ásökunum kvenna sem hafa sakað hann um að hafa brotið á sér, verið ógnandi og að hafa farið yfir mörk en hafnar algjörlega orðrómum um þöggunarsamninga og brot gegn ólögráða stúlkum.
Stórt hlutfall kvenna sem hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi eru í kjölfarið opinberlega smánaðar með fjölmiðlaumfjöllun. Það hefur viðgengist að fjölmiðlar grafi upp hluti um þolendur sem koma ofbeldinu sem þau urðu fyrir ekkert við, til þess eins að rengja sögu þeirra.
Í gegnum tíðina hafa konur verið beittar ofbeldi ýmist af fjölmiðlum eða í gegnum fjölmiðla, yfirleitt er þeim stillt upp á ákveðinn hátt í fjölmiðlum. Þeim er stillt upp líkt og þær séu minna virði og jafnvel ósýnilegar.
Það hafa eflaust margir heyrt um hópinn Öfga sem heyrt hefur hátt í á undanförnu ári en markmið hópsins er að standa með þolendum og berjast gegn kynferðislegu ofbeldi. Þessar konur liggja svo sannarlega ekki á skoðununum sínum.
Starfsfólki Stapaskóla í Reykjanesbæ var tilkynnt fyrir helgi að búið væri að ráða Leif Sigfinn Garðarsson sem nýjan deildarstjóra á unglingasviði skólans. Gróa Axelsdóttir, skólastjóri Stapaskóla, segir í samtali við Vísi að ráðningin hafi vakið áhyggjur meðal starfsmanna.
Kona sem kærði kynferðisbrot til lögreglu í október segir að mál hennar hafi verið sett neðst í málabunka kynferðisbrotadeildar vegna þess að hún hafi ekki kært málið fyrr en þremur dögum eftir að brotið var framið gegn henni. Fimm og hálfur mánuður hafi liðið frá því að hún kærði brotið þar til meintur ofbeldismaður hennar var boðaður í skýrslutöku af lögreglu.
Lektor í bókmenntum við Kaupmannahafnarháskóla hefur sakað MeToo-hreyfinguna og baráttusamtök hinsegin fólks um að vera hryðjuverkasamtök. Hún hefur sjálf verið kærð fyrir stórfelldan ritstuld og hefur nú látið af störfum við háskólann.
Á að byggja ákvarðanir sem teknar eru innan fyrirtækja á sömu hagsmunum og í refsimálum fyrir dómstólum? Er sambærilegt að missa starf og að vera dæmdur í fangelsi? Þessum spurningum veltir lögfræðingurinn Ingunn Agnes Kro upp í grein sem birtist í Lögmannablaðinu sem kom út á föstudaginn.
Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, var gestur Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag þar sem hún ræddi byrlanir en hún lagði fram fyrirspurn varðandi byrlanir til heilbrigðis- og dómsmálaráðherra á Alþingi í desember.
Vítalía Lazareva ætlar að kæra Þórð Má Jóhannesson, Ara Edwald og Hreggvið Jónsson til lögreglu fyrir kynferðisbrot. Hún hefur bókað tíma hjá kærumóttöku lögreglu til að leggja kæruna fram. Vítalía hefur sakað þá um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi í sumarbústaðarferð í desember 2020.
Síðasta tæpa ár hefur reynst Ingólfi Þórarinssyni tónlistarmanni þungbært en hann hefur setið undir ásökunum um margvíslegt kynferðislegt ofbeldi. Ingólfur vísar ásökunum alfarið á bug og hefur nú skrifað grein þar sem hann fer ítarlega yfir sína hlið mála.
Undanfarna mánuði hef ég verið borinn þungum sökum sem ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum og setið undir ósannindum af ýmsu tagi. Ég hef til að mynda verið kallaður ofbeldismaður, nauðgari og barnaníðingur þó það gæti ekki verið fjær sannleikanum.
Frosti Logason, dagskrárgerðarmaður og sjónvarpsmaður á Stöð 2, er kominn í ótímabundið leyfi frá störfum sínum hjá Stöð 2. Þetta segir Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóra miðla Stöðvar 2, í samtali við fréttastofu.
Frosti Logason, dagskrárgerðarmaður og sjónvarpsmaður á Stöð 2, segist gangast við ásökunum fyrrverandi kærustu sinnar um andlegt ofbeldi en viðtal við hana birtist í Stundinni í morgun. Hann er kominn í leyfi frá störfum hjá Stöð 2.
Með réttarvitund almennings er átt við ríkjandi viðhorf þorra manna í samfélaginu á hverjum tíma um það hvernig gildandi réttur er eða eigi að vera í ákveðnu tilviki eða tilvikum. Um er að ræða hugmyndir hvers einstaklings um lög og réttlæti. Ef réttarvitund helst stöðug og henni er fylgt, getur hún orðið að venju. Sumir halda því fram að sú niðurstaða sé eðlilegust sem er í samræmi við réttarvitund almennings á hverjum tíma.
Fyrirtækjamenning verður ekki til af sjálfu sér, menning er ákvörðun og að gera ekkert er líka ákvörðun. Margt af því sem við upplifum sem náttúrulögmál er mannanna verk og þeim má breyta. Við mótum það samfélag sem við lifum í sem svo mótar okkur.
Félagasamtökin Öfgar neituðu beiðni Róberts Wessman um aðstoð við verkefni sem sneri að opnun nýs úrræðis fyrir þolendur ofbeldis. Öfgar segja að Róbert sé ekki einstaklingur sem samræmist þeirra gildum.
„KKÍ vísar öllum ásökunum Aþenu á bug“ er fyrirsögnin þar sem yfirlýsing stjórnar KKÍ var birt og þeir árétta ásakanirnar. Það fyrsta sem þeir árétta er að árið 2009 hafi þjálfara kvennalandsliðsins í körfubolta verið sagt upp vegna trúnaðarbrests og með því halda þeir áfram þöggunartilburðum.
Gott fólk hefur nú ólmast við það áratugum saman að teygja hugtakið „kynferðisbrot” út og suður svo það hefur nánast glatað merkingu sinni. Tilgangurinn er göfugur. Kona sem verður fyrir barðinu á kynlífsfrekju skal fá atvikið viðurkennt sem svívirðilegan glæp.
Tónlistarmanninum Pétri Erni Guðmundssyni hefur verið vísað úr hljómsveitunum Buff og Dúndurfréttum. Pétur var söngvari í báðum sveitunum.
Við trúum frásögnum þolenda kynferðisofbeldis. Ef einstaklingur stígur fram með sína sögu þá veljum við ekki hverjum er trúað og hverjum ekki trúað. Við viljum einfaldlega lýsa stuðningi við hvern þann karl eða konu eða kván sem kemur fram með reynslu af kynferðisofbeldi.
Ágúst S. Björgvinsson er hættur störfum fyrir Körfuknattleikssamband Íslands að eigin ósk. Þetta kemur fram í yfirlýsingu hjá Körfuknattleikssambandi Íslands. Ágúst hafði sinnt fjölbreyttum verkefnum hjá sambandinu undanfarin sex ár.
Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ásakana Aþenu um þöggun og aðgerðarleysi vegna kynbundins ofbeldis innan körfuboltahreyfingarinnar á Íslandi.
Aþena íþróttafélag krefst aðgerða af hálfu Körfuknattleikssambands Íslands. Forráðamenn félagsins telja stöðuna óásættanlega og stúlkur ekki öruggar innan vébanda sambandsins vegna óuppgerðra mála og aðgerðarleysis varðandi kynbundið ofbeldi.
75 prósent svarenda í skoðanakönnun Prósents sögðust hlynnt því að einstaklingum sem hefðu verið ásakaðir um kynferðisbrot væri vikið frá störfum. Fimmtán prósent svarenda sögðust hvorki vera hlynnt því né ekki en aðeins 10 prósent voru andvíg.
Flest ef ekki öll erum við sammála um það að vilja búa í samfélagi án ofbeldis. Við viljum samfélag þar sem umburðarlyndi og jafnrétti ríkir og þar sem ofbeldi er einfaldlega ekki liðið.