Heilbrigðismál
211 212 213 214 215 ›
Helmingsstækkun á BUGL Nú hillir undir að hafin verði bygging húsnæðis fyrir geðheilbrigðisþjónustu barna og unglinga, að sögn Ólafs Ó. Guðmundssonar, yfirlæknis á barna- og unglingageðdeildnni við Dalbraut. Er það í fyrsta skipti í Íslandssögunni sem húsnæði er byggt hér á landi beinlínis fyrir þá þjónustu. Innlent 13.10.2005 15:08
Örorka og atvinnuleysi fylgjast að Langvarandi atvinnuleysi og aukið álag á vinnustað eru meðal orsaka örrar fjölgunar öryrkja hér á landi. Talið er nauðsynlegt að heilbrigðis- og vinnumálakerfi vinni saman þegar atvinnuleysi ber að dyrum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:06
Gruna miltisbrand í álagablettum Fornleifafræðingar leiða getum að því að miltisbrandur geti leynst í svokölluðum álagablettum. Oft séu þeir kallaðir svo vegna þess að dýr hafi drepist eftir að hafa bitið gras á þeim. Málið verður rætt á næsta aðalfundi Fornleifafélagsins. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:06
Landspítali sakaður um lögbrot Lyfjafræðingafélag Íslands sakar Landspítalann um lögbrot og hefur leitað til dómstóla með málið, en án árangurs. Félagið krefst þess nú, að Lyfjastofnun standi sig í stykkinu og taki af hörku á hinu meina lögbroti. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:06
Færri barnaslys í kennaraverkfalli Um það bil 160 færri slys urðu á börnum á þeim tíma sem kennaraverkfallið stóð yfir en á sama tíma í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu. Innlent 13.10.2005 15:05
Flensan bankar á Inflúensutilfellum hefur heldur fjölgað í nágrannalöndum okkar, að því er Haraldur Briem, sóttvarnalæknir hjá landlæknisembættinu, segir, en í litlum mæli þó. Innlent 13.10.2005 15:05
Einn látinn af alnæmi á árinu Það sem af er þessu ári hafa fimm manns greinst með HIV-smit hér á landi, fjórir karlmenn og ein kona. Þá hafa þrír sjúklingar greinst með alnæmi og einn þeirra látist af völdum sjúkdómsins. Innlent 13.10.2005 15:04
Aukið fé til heilsugæslu Virkjunar- og stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi segja til sín í aukinni heilsugæsluþjónustu. Í aukafjárlögum fær Heilbrigðisstofnun Austurlands 25 milljóna króna fjárveitingu. Innlent 13.10.2005 15:04
Hárkolla eða augabrúnir Breyting á reglugerð um styrki Tryggingastofnunar vegna hjálpartækja hefur það í för með sér að fólk fær val um að nýta styrkinn til kaupa á hárkollu eða sérsniðnum höfuðfötum, gerviaugnabrúnum eða augnhárum. Áður var skilyrt að verja honum til hárkollukaupa. Innlent 13.10.2005 15:03
Endurhæfing í stað örorku Starfsendurhæfing til að forða fólki frá örorku hefur gefið góða raun hér á landi. Tryggingastofnun vill auka þá starfsemi og jafnframt að læknar fái aukna fræðslu um almannatryggingakerfið, stöðu þess og þróun. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:03
Rannsókn á líðan lækna Hleypt hefur verið af stokkunum rannsókn á heilsu, lífsstíl og starfsskilyrðum lækna á Íslandi. Allir læknar á Íslandi með gilt lækningaleyfi þann 30. júní á þessu ári og búsettir eru hér á landi, alls 1.185 læknar, hafa fengið sent boð um þátttöku. Innlent 13.10.2005 15:02
Erfitt að hafna fólki í neyð Starfsmenn sem taka á móti áfengissjúkum á Vogi kvíða því að þurfa að vísa fólki í neyð frá og senda það annað. Nú fer í hönd einn mesti álagstími á sjúkrahúsinu, sem hefst skömmu fyrir jól og skellur af fullum þunga á eftir áramót. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:02
Bólusetning bjargar okkur Þýskum ferðamönnum á leið til Bretlands hefur verið ráðlagt að láta bólusetja sig gegn hettusótt, vegna faraldurs sem brotist hefur út meðal háskólanema þar. Þórólfur Guðnason, yfirlæknir á sóttvarnasviði Landlæknisembættisins, segir ekki ástæðu til aðgerða hér vegna faraldursins í Bretlandi. Innlent 13.10.2005 14:57
Ofbeldi gegn börnum vanmetið Umfang ofbeldis gegn börnum hér á landi er vafalítið vanmetið, að áliti Geirs Gunnlaugssonar, barnalæknis og forstöðumanns Miðstöðvar heilsuverndar barna. Hann telur gróft líkamlegt ofbeldi þó heldur á undanhaldi, en ekki gegni endilega sama máli um andlegt ofbeldi, því erfitt sé að meta umfang þess og eðli. Innlent 13.10.2005 14:56
Læknir í þremur kærumálum Formaður Læknasetursins í Mjódd hefur kært stjórnendur Landspítala - háskólasjúkrahúss svo og Heilsugæslunnar fyrir þrjú brot á samkeppnislögum. Hann segir þá reyna að grafa undan keppinautum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:56
Forsýningarágóði til Geðhjálpar Ágóði forsýningar kvikmyndarinnar Ladder 49 með Joaquin Phoenix og John Travolta í aðalhlutverkum mun renna til styrktar Geðhjálp. Innlent 13.10.2005 14:54
Þriðja hvert barn fær rör í eyru Um þriðja hvert barn fær rör í hljóðhimnu hér á landi sem er margfalt meira en þekkist hjá öðrum þjóðum. Innlent 13.10.2005 14:54
Áfengismeðferðardeild lokað Bráðlega verður áfengismeðferðardeild sem Landspítalinn hefur rekið við Flókagötu lokað. Ný deild verður sett upp í geðdeildarbyggingunni. Þá verður Arnarholti lokað um áramót og 19 einstaklingum komið fyrir annars staðar. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:53
Safnað fyrir gervihjörtum Kaup á svonefndum gervihjörtum er markmið landsöfnunar sem hafin er til styrktar hjartalækningum hér á landi. Innlent 13.10.2005 14:53
Á góðum batavegi Sr. Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur hafði fyrir nokkrum dögum ákveðið að taka að þátt í stjórn landssöfnunar til styrktar hjartalækninga, þegar hann þurfti sjálfur í bráða hjartaþræðingu og aðgerð vegna alvarlegra stíflna í hjartaæðum. Innlent 13.10.2005 14:53
Endurskoðun á sjúkraþjálfun Samninganefnd heilbrigðisráðherra boðaði á fyrsta samningafundi með sjúkraþjálfurum endurskoðun á kerfi þeirra. Sjúklingum fer stöðugt fjölgandi og kostnaður Tryggingastofnunar hefur aukist um 84% á síðustu fimm árum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:52
Einstök flensutilvik ytra Inflúensa hefur enn ekki greinst í nágrannalöndunum, nema í einstökum tilvikum, að sögn Haraldar Briem sóttvarnalæknis hjá Landlæknisembættinu. Innlent 13.10.2005 14:52
Fagna reykingabanni Lungnalæknar fagna áformum heilbrigðisráðherra um að leggja fram frumvarp til laga á Alþingi um reyklausa vinnustaði, þar á meðal veitinga- og skemmtistaði hér á landi. Innlent 13.10.2005 14:52
Baldur til Karolinska Íslenski prófessorinn, Baldur Sveinbjörnsson, sem starfað hefur við háskólann í Tromsö í Noregi hefur verið ráðinn við Karolínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi Innlent 13.10.2005 14:52
Lifrarbólgufaraldur í rénun Lifrarbólgufaraldur hjá hommum virðist heldur vera í rénun, að því er fram kom í viðtali við Harald Briem sóttvarnalækni hjá Landlæknisembættinu. Innlent 13.10.2005 14:52
Psoriasisfólki bægt frá sundstöðum Þess eru dæmi að psoriasis-sjúklingum hafi verið meinaður aðgangur að búningsklefum og böðum svo sem í almenningssundlaugum og íþróttahúsum hér á landi, að sögn Guðnýjar Axelsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga. Innlent 13.10.2005 14:52
Krónur og brýr án endurgreiðslu Tannlæknar segja óréttlátt að Tryggingastofnun taki ekki þátt í niðurgreiðslu á tannkrónum og brúm fyrir eldri borgara, að sögn Gunnars Leifssonar, formanns upplýsinganefndar. Yfirtryggingatannlæknir hafi bent á að því þurfi að breyta. Það hefur þó ekki gerst enn. Innlent 13.10.2005 14:50
Krufning kostar 95 þúsund Það getur kostað sitt að leita sér lækninga á spítala. Sjúklingar geta þurft að reiða fram þúsundir á þúsundir ofan. Þeir sem oftast þurfa til læknis fá afslátt. Fólk sem ekki er sjúkratryggt á Íslandi þarf að borga allt að þrettán hundruð þúsund krónur fyrir aðgerð. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:50
Hæsta álagnings tannlæknis 103% Hæsta álagning sem vitað er til að tannlæknir noti er 103% umfram gjaldskrá heilbrigðisráðherra. Meðaltalshækkun er 15 - 20%. Tryggingayfirtannlæknir segir að gjaldskrána þurfi að hækka oftar en gert hefur verið. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:50
Veglegur styrkur til daufblindra Daufblindir geta auðveldlega einangrast. Nú hafa þeir fengið myndarlegan styrk, sem hjálpar þeim að taka betur þátt í því sem er að gerast í samfélaginu. Innlent 13.10.2005 14:50