Stjórnsýsla

Gúanólýðveldið Ísland
Allsstaðar í heiminum er gengið út frá því sem vísu að fyrirtæki starfi undir eigin lögheiti - nema bara ekki á Íslandi. Þar gilda engin lög um slíkt og því engin viðurlög í gildi fyrir óheimila notkun á firmaheitum eða vörumerkjum annarra.

Útspil Svandísar
Það blasir við öllum að staða Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, er mjög veik. Það er auðvitað með talsverðum ólíkindum að undanfarnar vikur hefur ráðherra setið í meirihlutastjórn án þess að njóta stuðnings samstarfsflokkanna.

Skoðar hvað gæti gerst ef ríkið myndi kaupa Grindavík
Hildur Margrét Jóhannsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir að ef stjórnvöld ákveði að láta hið opinbera kaupa íbúðir Grindvíkinga myndi það að öllum líkindum auka eftirspurn á íbúðamarkaði sem gæti hækkað íbúðaverð.

Kærir ráðherra fyrir að skipa Ástráð sem ríkissáttasemjara
Dr. Aldís G. Sigurðardóttir hefur lagt fram kæru til kærunefndar jafnréttismála vegna ákvörðunar Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um að skipa Ástráð Haraldsson í embætti ríkissáttasemjara.

Vill þjálla nafn á hreppinn
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur samþykkt að kjósa um hvort breyta eigi nafni sveitarfélagsins, og hvert nýtt nafn ætti að vera. Sveitarstjóri telur að nýrra nafn verði að vera þjálla.

Umbi skammar Vinnumálastofnun
Umboðsmaður Alþingis hefur atyrt Vinnumálastofnun fyrir seinagang við afgreiðslu fjölda beiðna um endurútreikning hlutabóta.

Tólf sagt upp og ellefu öðrum stöðugildum breytt
Breytingar á 23 stöðugildum hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar voru kynntar í dag. Í breytingunum felast 12 uppsagnir, en í 11 tilvikum verða samningar ekki endurnýjaðir eða ekki ráðið í lausar stöður.

Tómas settur ráðuneytisstjóri
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur sett Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóra skrifstofu efnahagsmála, í embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins til 31. mars næstkomandi.

Einn hundrað áhrifamestu manna heims óttast laxeldi á Íslandi
Rúmlega 160 umsagnir hafa borist um frumvarp matvælaráðherra um lagareldi. Ein þessara umsagna barst í fyrradag og kemur frá hinum 85 ára gamla Yvon Chouinard, stofnanda útivistarmerkisins Patagonia.

Ákvörðun Svandísar hafi verið í samræmi við mat sérfræðinga
Ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur, matvælaráðherra, um tímabundna frestun upphafs hvalveiða var í samræmi við mat og ráðgjöf sérfræðinga matvælaráðuneytisins.

Málskotsbeiðni hafnað og Björn fær ekki krónu
Málskotsbeiðni Björns Þorlákssonar, í máli sem hann höfðaði á hendur ríkinu vegna uppsagnar hans úr starfi upplýsingafulltrúa Umhverfisstofnunar, hefur verið hafnað.

Ný ríkisstofnun með engar höfuðstöðvar
Ný ríkisstofnun, Land og skógur varð til um áramótin en hún tekur við hlutverkum Landgræðslunnar og Skógræktarinnar, sem hafa verið lagðar niður. Um 140 starfsmenn starfa hjá nýju stofnuninni á átján starfsstöðvum um land allt.

Sjálfstæðismenn felli mögulega vantrauststillögu „með óbragð í munni“
Prófessor í stjórnmálafræði telur ekki að ríkisstjórnin springi vegna álits Umboðsmanns Alþingis í hvalveiðamálinu og Sjálfstæðismenn myndu verja Svandísi mögulegu vantrausti með æluna upp í kok.

Katrín segir álit Umboðsmanns ekki tilefni til afsagnar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir álit Umboðsmanns ekki tilefni til afsagnar Svandísar Svavardóttur matvælaráðherra. Hún segir að mikilvægt sé að taka niðurstöðu Umboðsmanns alvarlega og draga af henni lærdóm en að hún gefi ekki tilefni til róttækra aðgerða.

Álit umboðsmanns nákvæmlega það sem varað hafi verið við
Formaður atvinnuveganefndar Alþingis segir sláandi að hvalveiðibann hafi ekki átt sér lagastoð. Varað hafi verið við því síðan í sumar. Ráðherra verði að gera upp við sig sjálfur hvernig hann hyggist axla ábyrgð á málinu, sem eigi ekki að hafa úrslitaáhrif á framhald ríkisstjórnarsamstarfsins.

Kristján segir Hval ætla að krefjast skaðabóta
Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf. segir fyrirtækið ætla að sækja bætur vegna þess stórfellda tjóns sem ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur um tímabundna stöðvun hvalveiða síðasta sumar hafi valdið félaginu og starfsmönnum þess, í ljósi álits Umboðsmanns Alþingis.

Framlengja aftur við Söru Lind
Setningartími Söru Lindar Guðbergsdóttur sem settur forstjóri Ríkiskaupa hefur verið framlengdur til 1. mars. Þetta er í annað skiptið á innan við hálfu ári sem tímabundinn setningartími hennar er framlengdur.

Frestun hvalveiða átti sér ekki nægilega skýra stoð í lögum
Álit Umboðsmanns Alþingis er að reglugerð um frestun upphafs hvalveiða í sumar hafi ekki átt sér nægilega skýra stoð í lögum um hvalveiðar.

Ein hópuppsögn í desember
Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í desember þar sem 48 starfsmönnum var sagt upp störfum í opinberri stjórnsýslu.

Mátti synja meintum nasista um inngöngu í lögregluskólann
Umboðsmaður Alþingis hefur með áliti lagt blessun sína yfir ákvörðun Ríkislögreglustjóra um að synja manni um inngöngu í starfsnám hjá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglu. Í ákvörðun sinni leit Ríkislögreglustjóri meðal annars til þess að starfsfólk framhaldsskóla, sem maðurinn gekk í, hafi lýst yfir áhyggjum af ummælum hans um múslima og að hann væri hliðhollur nasistum.

Tryggjum mannréttindi fyrir öll!
Félagsráðgjafafélag Íslands (FÍ) var með aðventufund 11. desember sl. í tilefni af alþjóða mannréttindadeginum 10. desember. Að þessu sinni var sjónum beint að málefnum fólks sem glímir við geðrænar áskoranir, sem segja má að hafi verið framhald aðventufundar árið 2022 þar sem horft var til fólks með færniskerðingar almennt út frá þátttöku í samfélaginu er varðar nám og starf. Fundurinn var haldinn í samstarfi við fagdeild félagsráðgjafa í heilbrigðisþjónustu.

Brutu ekki lög með því að ráða ekki fatlaðan mann í prófarkalestur
Ríkisútvarpið gerðist ekki brotlegt við lög um um jafna meðferð á vinnumarkaði með því að ráða ekki fatlaðan mann í hlutastarf við prófarkalestur. Ekki þótti sýnt fram á að ákvörðun RÚV byggðist á fötlun mannsins.

Óréttmætum hindrunum hafi enn ekki verið rutt úr vegi
Stjórnendur Hopp leigubíla telja stjórnvöld ekki hafa fjarlægt að fullu óréttmætar hindranir til aksturs leigubíla hér á landi. Erfiðlega hefur gengið að fá bílstjóra til aksturs og vill fyrirtækið að innviðaráðuneytið geri heildstæða úttekt á lögum um markaðinn.

Hulda Elsa aðstoðar dómsmálaráðuneytið
Hulda Elsa Björgvinsdóttir, fyrrverandi aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið fengin til að miðla af sérþekkingu sinni innan dómsmálaráðuneytisins.

Auðunn látinn taka skellinn
Auðunn Atlason, sem gegndi stöðu sérfræðings í alþjóðamálum í forsætisráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur, var látinn súpa seyðið af samskiptaleysi því sem leiddi til þess að Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna.

Dómarinn vann í Hæstarétti og ríkið situr í súpunni
Hæstiréttur hefur dæmt Ástríði Grímsdóttur héraðsdómara í vil í launadeilu hennar við íslenska ríkið. Hæstiréttur taldi að ríkið hafi ekki mátt krefja Ástríði, og um 260 æðstu embættismenn landsins, um endurgreiðslu launa. Meintar ofgreiðslur námu ríflega hundrað milljónum króna í heildina.

Nægar ástæður fyrir Willum að auglýsa stöðu Markúsar
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mátti auglýsa stöðu forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í september síðastliðnum. Fráfarandi forstjóri stofnunarinnar stefndi íslenska ríkinu vegna ákvörðunar ráðherra og krafðist þess að hún yrði felld úr gildi. Þá vildi hann bætur frá ríkinu. Ríkið var sýknað í málinu og er niðurstaðan afdráttarlaus.

Sparar sér hundruð þúsunda vegna tómlætis leigusala
Kærunefnd húsamála hefur fallist á kröfu leigutaka um viðurkenningu á því að honum beri ekki að greiða kröfu leigusala um vísitöluhækkun á leigu, sem var gerð tæpum níu mánuðum eftir að leigutíma lauk.

Undrandi á tillögum Bjarna sem gangi gegn öllum hefðum
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði kveðst undrandi yfir tillögum Bjarna Benediktssonar um að Svanhildur Hólm Valsdóttir og Guðmundur Árnason verði skipuð sendiherrar.

Bjarni segir væntanlega sendiherra mikinn feng fyrir utanríkisþjónustuna
Utanríkisráðherra segir mikinn feng fyrir utanríkisþjónustuna að fá fyrrverandi aðstoðarmann hans og ráðuneytisstjóra til starfa í utanríkisþjónustunni. Þingflokksformaður Pírata segir ráðherra nýta glufu í lögum til að skipa vini og gamla samstarfsmenn í sendiherrastöður.