Björgunarsveitir
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 45 ›
Viðbúnaður vegna leka í vélarúmi fiskiskips Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á hæsta forgangi síðdegis í gær vegna leka í vélarrúmi fiskiskips í Húnaflóa. Áhöfn skipsins tókst þó að stöðva lekann og sigla því til hafnar. Innlent 28.10.2023 09:40
Björguðu smalahundi úr sjálfheldu Björgunarsveitin Bára á Djúpavogi bjargaði smalahundi sem var í sjálfheldu og fastur í klettum í Hofsdal í gærkvöldi. Innlent 27.10.2023 11:25
Göngufólk villtist á Ingólfsfjalli Í gærkvöldi barst björgunarsveitum beiðni um aðstoð frá fólki sem gengið hafði á Ingólfsfjall milli Hveragerðis og Selfoss, og villst. Niðamyrkur var komið og fólkið treysti sér ekki til að halda áfram. Innlent 24.10.2023 13:50
Ferðamenn fastir í Hólmsá Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöldi til að aðstoða ferðamenn sem festu jeppa í Hólmsá. Vel gekk að losa bílinn og var aðgerðum lokið rétt fyrir miðnætti. Innlent 22.10.2023 13:51
Björgunarsveitir kallaðar út vegna fastra bíla Fjöldi bíla er fastur í Hveradalabrekku á Suðurlandsvegi og í Þrengslum vegna færðar. Björgunarsveitir á Suðurlandi eru á leið á vettvang. Innlent 12.10.2023 08:10
Átak að losa bílinn sem var „frosinn niður“ Aðstæður voru erfiðar í aftakaveðri að Fjallabaki í nótt þar sem björgunarsveitarmenn hjálpuðu ferðamönnum sem fest höfðu bíl sinn. Átta gistu í fjöldahjálparstöð í Djúpavogi vegna veðurs. Annar hvellur er væntanlegur í nótt. Innlent 11.10.2023 16:07
Festu bíl sinn í á að Fjallabaki Björgunarsveitir voru kallaðar út víða um land í nótt vegna verkefna tengdum óveðrinu sem gekk yfir landið í gær og í nótt. Fjölmennasta verkefnið tengdist útkalli vegna tveggja manna sem höfðu fest bíl sinn að Fjallabaki. Innlent 11.10.2023 08:17
Björgunarsveitir standa í ströngu vegna veðursins Björgunarsveitir hafa farið í nokkur útköll í dag vegna óveðursins sem gengið hefur yfir landið. Innlent 10.10.2023 18:21
Þakplötur, hjólhýsi og bílskúrshurð fuku í Vestmannaeyjum Töluverður vindur er um allt land og björgunarsveitir víða við störf. Í Vestmannaeyjum sinnti björgunarfólk nokkrum útköllum vegna foks. Innlent 10.10.2023 15:18
Óveðrið byrjað og bílar fastir Björgunarsveitir eru byrjaðar að finna fyrir veðrinu. Appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi á Norðurlandi og gular viðvaranir annars staðar á landinu, utan höfuðborgarsvæðisins. Innlent 10.10.2023 12:08
Björgunarsveit aðstoðar fólk í Skálafelli Björgunarsveitarfólk er nú í Skálafelli vegna útkalls. Rólegt hefur verið hjá þeim í nótt. Veðurviðvaranir eru enn í gildi um land allt. Innlent 10.10.2023 08:42
Sótti þrjú hundruð tonna línuveiðiskip Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar var kölluð út um hálf eitt í nótt til að aðstoða þrjú hundruð tonna línuveiðiskip sem var á veiðum út af Norðfjarðarhorni. Bilun hafði þá komið upp í skrúfubúnaði skipsins. Innlent 9.10.2023 10:06
Áheitaganga með hátalara og rusl í sjúkrabörum Þeir voru einstaklega duglegir unglingarnir í Björgunarsveit Biskupstungna í gær þegar þau tóku þátt í áheitagöngu frá Reykholti í Bláskógabyggð á Borg í Grímsnesi. Innlent 7.10.2023 08:31
Snjóbíll valt við björgun bíls sem valt Stór breyttur jeppi á vegum Útivistar valt á Fimmvörðuhálsi, skammt frá Fimmvörðuskála, í gær. Snjóbíll sem sendur var frá Hvolsvelli til að bjarga fólki um borð valt líka. Báðir bílar eru enn á hliðinni. Innlent 1.10.2023 10:28
Stefna á að hjálpa öðrum háhyrningi úr Gilsfirði á morgun Háhyrningur hefur setið fastur í Gilsfirði í nokkra daga, en stefnt er að því að flytja hann úr firðinum og sleppa honum lausum á morgun. Ekki er um að ræða sama háhyrning og festist í firðinum um liðna helgi, þótt líklegt sé að dýrin tilheyri sama hópi. Innlent 27.9.2023 21:35
Björgunarsveitin kölluð út vegna barna í feluleik Björgunarsveitir voru kallaðar út við leikskóla í Skerjafirði í Reykjavík eftir að tvö börn fundust ekki. Reyndust þau vera í feluleik í útikennslu á nærliggjandi leikvelli. Innlent 25.9.2023 12:17
„Ég er búinn að vera á leiðinni í fimmtán ár“ Georg Holm, bassaleikari Sigur Rósar, ákvað að slá til og gerast nýliði hjá björgunarsveitinni Ársæli. Í honum hefur lengi blundað björgunarsveitarmaður en það hefur aldrei gefist tími fyrr en nú. Þó það sé rólegt hjá Sigur Rós þessa dagana getur vel verið að hljómsveitin þvælist fyrir nýliðastarfinu. Lífið 23.9.2023 18:46
Einn í húsinu sem sprakk og annar fékk plötu inn í stofu Fólk var inni í húsum sem fóru illa í óveðri í gær og í nótt. Íbúi húss sem sprakk í öflugri vindhviðu fékk að gista björgunarmiðstöð í nótt eftir að hafa komist óhultur úr húsinu. Innlent 19.9.2023 11:12
Þrír fluttir með þyrlunni til Reykjavíkur og fjórir með sjúkraflugi Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur eftir alvarlegt slys skammt frá Blönduósi. Nokkrir aðrir voru fluttir með sjúkrabifreiðum til Akureyrar en þar voru fjórir settir í sjúkraflug til Reykjavíkur og nokkrir lagðir inn á Sjúkrahúsið á Akureyri. Innlent 8.9.2023 09:04
Þrír fluttir á sjúkrahús með þyrlu Gæslunnar eftir alvarlegt slys Þyrla Landhelgisgæslunnar og aðrir viðbragðsaðilar voru kallaðir út rétt eftir klukkan fimm í morgun eftir að tilkynning barst um mjög alvarlegt umferðarslys á þjóðveginum sunnan við Blönduós. Innlent 8.9.2023 06:39
Töldu í fyrstu að kona væri í húsinu Björgunarsveitir á Suðurnjesjum voru kallaðar út í gærkvöldi þegar varnargarður brast og sjór umlukkti íbúðarhús. Í fyrstu var talið að kona væri föst í húsinu en svo reyndist ekki vera. Innlent 3.9.2023 11:53
Var látinn þegar náðist til hans Gangnamaður sem slasaðist í Eyjafirði í gær var látinn þegar björgunarsveitarfólk komst að honum hátt í hlíðum Hagárdals, inn í Eyjafirði. Erfiðlega gekk að komast til mannsins og var ekki hægt að nota þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna sviptivinda. Innlent 3.9.2023 08:17
Golfvöllurinn á kafi og manni bjargað úr húsi í Sandgerði Björgunarsveitir á Suðurnesjum komu manni til bjargar eftir að sjór flæddi yfir sjóvarnargarða í Sandgerði. Sjórinn umlukti hús hans en það er sömuleiðis allt á floti á golfvelli bæjarins. Innlent 2.9.2023 23:20
Slasaður í brattri hlíð og þyrlan komst ekki að Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst tilkynning um klukkan þrjú í dag um slasaðan gangnamann í Eyjafirði. Björgunarsveitir voru kallaðar á staðinn ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar sem komst ekki að manninum vegna sviptivinda. Innlent 2.9.2023 19:25
Fljúgandi trampólín og hefðbundin fokverkefni Verkefnum björgunarsveita fækkaði eftir því sem leið á gærkvöldið. Upplýsingafulltrúa Landsbjargar er ekki kunnugt um að nein stórtjón hafi orðið í hefðbundnum skilningi. Á meðal verkefna voru fljúgandi trampólín og ferðavagnar sem fóru á hliðina. Innlent 2.9.2023 09:57
Sóttu örmagna göngumann í Jökultungur Hópur Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem sinnir hálendisvakt í Landmannalaugum fékk seint í gær boð frá Neyðarlínu um hóp fjögurra göngumanna á Laugaveginum. Þau þurftu aðstoð þar sem einn í hópnum hafði örmagnast og treysti hann sér ekki til að halda áfram. Innlent 2.9.2023 09:27
Alls kyns foktjón í fyrstu haustlægðinni Annasamt hefur verið hjá björgunarsveitum í kvöld á meðan fyrsta haustlægðin gengur yfir með miklu hvassviðri. Stærsta verkefnið var á hálendinu þar sem sækja þurfti örmagna göngumann. Innlent 1.9.2023 23:33
„Það verður stormur um mestallt land“ Fyrsta haustlægðin fer yfir landið í kvöld og gular viðvaranir tóku víða gildi klukkan sjö. Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út víða. Veður 1.9.2023 21:15
Sóttu unglingsstrák í sjálfheldu í Eyrarhlíð Björgunarsveitir voru boðaðar út í dag vegna vegna unglingspilts, farþega af skemmtiferðaskipi sem var á Ísafirði, sem hafði klifið upp Eyrarhlíð og var kominn í sjálfheldu í Gleiðarhjalla. Innlent 1.9.2023 18:50
Björguðu ungum manni í sjálfheldu í Fáskrúðsfirði Björgunarsveitarmenn á Austurlandi og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar björguðu ungum manni sem hafði lent í sjálfheldu í Tungutröð, klettabelti milli Daladals og Tungudals inn af Fáskrúðsfirði, í gærkvöldi. Innlent 1.9.2023 07:57