

Ísraelsher segist hafa gert árásir á um 600 skotmörk á síðustu 24 klukkustundum, meðal annars í nágrenni við Al-Azhar háskólanum sem stendur nærri miðborg Gasa borgar.
Hópur fólks í héraðinu Dagestan í Rússlandi réðst inn á flugvöll í leit að ísraelskum flóttamönnum. Flugvél frá Tel Aviv, höfuðborg Ísraels, lenti á flugvellinum í kvöld.
Fjölmargir lögðu leið sína að Reykjavíkurtjörn klukkan átta í kvöld til að taka þátt í kertafleytingu í minningu barna sem látið hafa lífið á Gasa. Nöfn látinna barna voru þulin upp.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var ekki höfð með í ráðum þegar tekin var ákvörðun um að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu Jórdaníu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Hún segir að afstaða þingflokks VG sé skýr.
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar, segir ömurlegt að fylgjast með alþjóðasamfélaginu bregðast Ísraelsmönnum. Hún segir hjáseta Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í samræmi við stefnur stjórnvalda. Fordæma eigi hryðjuverk Hamas en merki séu um að Ísraelar gangi of langt.
Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs skýtur föstum skotum á Ísraela og segir þá hafa gengið of langt. Hann kveðst átta sig á sjálfsvarnarrétti ríkja en telur aðgerðir ekki samræmast meðalhófi. Ísraelar vísa ummælunum á bug.
Forsvarsmenn ísraelska hersins segja bæði hægt að útrýma Hamas-samtökunum og frelsa þá gísla sem vígamenn samtakanna halda á Gasaströndinni. Leiðtogar Hamas-samtakanna sögðu í gærkvöldi að samkomulag um frelsun gísla samtakanna hafi verið í sjónmáli. Yfirvöld í Ísrael hefðu tafið samkomulag.
Ísraelar gerðu í morgun loftárásir nærri stærsta sjúkrahúsi Gasastrandarinnar, sem er fullt af sjúklingum og tugum þúsunda manna í leit að skjóli. Ísraelski herinn hefur sakað forsvarsmenn Hamas-samtakanna um að hreiðra um sig í göngum undir sjúkrahúsinu.
Formaður þingflokks VG furðar sig á því að fulltrúar Íslands í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hafi setið hjá í atkvæðagreiðslu um ályktun um vopnahlé á Gasa í gær.
Alþjóðastjórnmálafræðingur segir átökin í Ísrael og Palestínu teygja anga sína víða. Ljóst sé að ástandið hafi áhrif á alþjóðasamskipti fjölmargra ríkja. Hún telur hjásetu Íslendinga hjá Sameinuðu þjóðunum merki um fylgispekt við Bandaríkin.
„Þetta er annar fasi stríðsins. Verkefni okkar er skýrt: að eyðileggja her Hamas og koma fórnarlömbum aftur heim. Ísraelar ætla að koma í veg fyrir þessa illsku, öllu mannkyninu til góða,“ sagði Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísrael á blaðamannafundi á sjötta tímanum í dag. Hann staðfestir að hermenn Ísraela séu komnir inn á Gasa.
Nokkur hundruð manns mættu á skyndimótmæli í miðbænum í dag. Félagið Ísland-Palestína boðaði í morgun til mótmælanna við utanríkisráðuneytið í dag, vegna þess að Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hlé á árásum Ísraela á Gasaströndinni.
Abdel Fattah al-Sisi, forseti Egyptalands, líkti Mið-Austurlöndum í morgun við tifandi tímasprengju. Þá hvatti talsmaður Ísraelshers íbúa norðurhluta Gasastrandarinnar til að flýja til suðurs en Ísraelar hafa gert gífurlega umfangsmiklar árásir á svæði nótt og í dag.
Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um ályktun sem tekin var fyrir á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Utanríkisráðuneytið segir að ekki hafi náðst samstaða í þinginu um tillögu sem breytti orðalagi ályktunarinnar á þá leið að grimmdarverk Hamas-samtakanna yrðu fordæmd í leiðinni. Þingmaður Pírata segir afstöðu Íslands aumingjalega.
Utanríkisráðherra segir miður að ekki hafi náðst samstaða um að fordæma hryðjuverk á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Krafa Íslands um mannúðarhlé á Gasa sé skýr, þrátt fyrir að Ísland hafi setið hjá þegar atkvæði voru greidd um ályktun Jórdana um slíkt mannúðarhlé.
Ísraelar gerðu í gærkvöldi umfangsmestu loft- og stórskotaliðsárásir á Gasaströndina frá því stríðið milli þeirra og Hamas-samtakanna hófst. Samhliða því var rafmagn, net- og símasamband tekið af svæðinu og hermenn sendir inn.
Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu sem tekin var fyrir á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Noregur var eitt Norðurlanda sem greiddi atkvæði með tillögunni. Utanríkisráðuneytið segir að ekki hafi tekist að ná samstöðu um texta ályktunarinnar.
Ísraelski herinn er tilbúinn til innrásar á Gasaströndina en ráðamenn ríkisins og æðstu leiðtogar hersins eru ósammála um hvernig innrásin ætti að fara fram og jafnvel hvort eigi að gera hana yfir höfuð. Þá er sagt ríkja trúnaðarleysi milli ráðamanna og herforingja.
Nokkur fjöldi fólks stendur vaktina fyrir utan Ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu þar sem ríkisstjórnin fundar. Fólkið heldur á palestínskum fánum og kveikt er á friðarkertum.
Bandaríski herinn gerði loftárásir á tvö skotmörk í Sýrlandi tengd Byltingarvarðsveit Íran (e. Revolutionary Guard Corps) nú í morgun. Reuters hefur eftir heimildarmanni að um hafi verið að ræða vopna- og skotfærageymslur.
Sendiherra Palestínu gagnvart Sameinuðu þjóðunum segir þrjú þúsund börn hafa dáið í loftárásum Ísraela á Gasaströndina. Riyad Mansour, segir að stöðva þurfi sprengjuregnið.
Ísraelskir hermenn gerðu í morgun áhlaup inn á norðurhluta Gasasvæðisins og sögðu ráðamenn þar að um undirbúning fyrir mögulega innrás væri að ræða. Innrás á Gasaströndina myndi hafa miklar hörmungar í för með sér og myndi taka langan tíma.
Ísraelsher virðist hafa farið inn á Gasa í nótt, meðal annars á skriðdrekum. Samkvæmt yfirlýsingu frá hernum var um að ræða hnitmiðaða árás á nokkur skotmörk og undirbúning fyrir „næsta stig“ aðgerða.
Yfirvöld í Ísrael eru sögð hafa samþykkt beiðni frá ráðamönnum Bandaríkjanna um að bíða með innrás á Gasaströndina. Þannig vilja Bandaríkjamenn fá tíma til að auka viðbúnað sinn og þá sérstaklega loftvarnir í Mið-Austurlöndum.
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur afboðað fyrirhugaða heimsókn sína til Ísrael og kallað eftir tafarlausu vopnahléi milli Ísraelsmanna og Hamas.
Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segir aðgerðir sínar á Gasa verða lamaðar frá miðvikudagskvöldi vegna eldsneytisskorts.
Ísraelski herinn varpaði í dag blöðum úr lofti yfir Gasaströndinni. Á þeim eru íbúar beðnir um upplýsingar um gísla Hamas-samtakanna. Í skiptum fengi fólk öryggi og peninga.
Stjórnvöld í Ísrael buðu tugum erlendra blaðamanna á sérstaka kynningu í herstöð í Tel Aviv í gær þar sem sýnt var 45 mínútna langt safn myndskeiða frá deginum þegar Hamas-liðar réðust á almenna borgara í Ísrael.
Ísraelsher segist hafa gert 400 árásir á skotmörk á Gasa-ströndinni síðasta sólarhringinn en í gær voru árásirnar 320. Herinn fullyrðir að aðgerðirnar hafi beinst gegn starfstöðvum hryðjuverkamanna á svæðinu.
Háttsettur meðlimur Hamas-samtakanna segir að sprengjan sem samtökin segja Ísraela hafa varpað á sjúkrahús á Gassaströndinni í síðustu viku, hafa gufað upp. Þess vegna hafi engin sprengjubrot fundist.