
Heimilisofbeldi

Vaknaði og barnið var horfið
Kona sem þurfti vegna alvarlegs heimilisofbeldis að gangast undir aðgerð á Landakotsspítala segir að stjórnendur þar hafi ákveðið án samráðs að taka af henni kornabarn og vista á vöggustofu. Áður hafði henni verið sagt að barnið, sem var á brjósti, fengi að vera hjá henni meðan hún væri að jafna sig.

Viðhorf breytist ekki við það bara að klæða sig í lögreglubúning
Sérfræðingar frá UN Women vinna nú að því að taka út lögreglufræðikennslu á Íslandi og inntökuprófið í til dæmis sérsveitina út frá kynjajafnrétti. Verkefninu stýra þau Jane Townsley og Gerry Campbell sem bæði störfuðu áður sem lögreglumenn en vinna nú að samþættingu kynjajafnréttis innan lögreglu um allan heim. Bæði voru þau á landinu í vikunni.

150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi
Landsspítalinn hefur sinnt um 150 þolendum ofbeldis í nánu sambandi frá því að nýtt verkefni spítalans, sem kallast „Hof“ hófst í nóvember 2022 þar sem sérstakt áfallateymi er við störf á bráðamóttöku spítalans.

Fyrrverandi Marvel-illmenni slapp við fangelsi
Bandaríski leikarinn Jonathan Majors hlaut skilorðdóm og var skipað að sækja sér ráðgjöf fyrir að ráðast á fyrrverandi kærustu sína í dag. Hann átti allt að árs fangelsisdóm yfir höfði sér.

Flestir öryggishnappar vegna heimilisofbeldis
Eftir því sem næst verður komist eru 106 öryggishnappar í umferð hér á landi og eru ýmsar ástæður fyrir notkun þeirra af ýmsum toga. Fólk sem er með slíka hnappa á það þó sameiginlegt að óttast um öryggi sitt.

„Við verðum að bregðast við þegar glugginn er opinn“
Síðustu mánuði hefur Drífa Jónasdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, unnið að því að búa til samræmt verklag fyrir alla heilbrigðisstarfsmenn til að fylgja þegar til þeirra leita einstaklingar sem hafa sætt heimilisofbeldi. Verklagið er tilbúið en forritarar hanna nú rafrænt skráningarkerfi svo hægt sé að koma því í prófun og svo framkvæmd.

Segir son sinn hafa beitt konur ofbeldi í mörg ár
Móðir þýska knattspyrnumannsins Jerome Boateng segir að leikmaðurinn, sem var dæmdur fyrir heimilisofbeldi árið 2021, hafi beitt konur andlegu og líkamlegu ofbeldi í mörg ár.

Sýknaður af ákæru um að taka eiginkonu sína hálstaki og henda henni út
Maður hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Austurlands af ákæru fyrir heimilisofbeldi þar sem hann var sakaður um að hafa kyrkt fyrrverandi eiginkonu sína þannig að hún var við það að missa meðvitund.

Áralangt heimilisofbeldi náði nýjum hæðum á Spáni
Karlmaður á áttræðisaldri hefur verið dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir að ökklabrjóta konu sína til 55 ára í sumarhúsi þeirra á Spáni. Karlmaðurinn var sakfelldur fyrir að hafa fyrirvaralaust sparkað í konu sína með þeim afleiðingum að hún tvíbrotnaði á ökkla.

Ekki talið náið samband og sleppur með skilorð
Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir tvær líkamsárásir gegn konu. Hann var ákærður fyrir brot í nánu sambandi gegn konunni en dómurinn féllst ekki á að samband þeirra hefði verið náið.

Fjölskyldan lýsti áralöngu ofbeldi en ekki fallist á brot í nánu sambandi
Pólskur fjölskyldufaðir hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárásir og barnaverndarlagabrot gegn eiginkonu sinni og þremur börnum. Ekki var fallist á það með ákæruvaldinu að hann hefði gerst sekur um brot í nánu sambandi, þrátt fyrir að fjölskylda hans hafi lýst áralöngu ofbeldi af hans hálfu.

Sló maka sinn með barnastól og fær sextíu daga skilorðsbundinn dóm
Karlmaður hefur hlotið sextíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot í nánu sambandi sem áttu sér stað á heimili þeirra í síðastliðinn desember.

Tilkynningum um heimilisofbeldi til lögreglu fjölgað verulega
Ríkislögreglustjóri telur að aukin áherslu á rannsóknir heimilisofbeldismála og stuðning við brotaþola hafi leitt til mikillar fjölgunar tilkynninga um heimilisofbeldi. Þau eru nú tæplega helmingur allra ofbeldisbrota.

Kafa betur ofan í áföll kvenna og úrvinnslu þeirra
Ríflega 30 þúsund konum, sem tóku þátt í rannsókninni Áfallasaga kvenna á árunum 2018-2019, býðst nú að taka þátt í eftirfylgdarrannsókn með því að svara nýjum spurningalista um áföll, lífsstíl og heilsufar.

Nauðgað tveggja til níu ára: „Við þurfum samt líka að trúa strákunum“
„Reyndar veit ég ekki hvers vegna þetta hætti þegar ég var níu ára. Ég hef aldrei spurt hann að því.“

Áskorun '23: „Þú hefur nú alltaf verið dekruð og fengið allt upp í hendurnar“
Það er enginn einstaklingur né fjölskylda undanskilin því að þurfa að takast á við alls kyns áskoranir. Allt frá því að glíma við vanlíðan og sjálfið okkar, yfir í samskiptaörðugleika, veikindi fjölskyldumeðlims, sorg, ofbeldi, fíkn og fleira.

Um 130 skráðar komur vegna heimilisofbeldis á bráðamóttöku
Þjónusta við þolendur heimilisofbeldis hefur verið stórbætt síðasta árið á Landspítalanum. Lögum hefur verið breytt sem auðveldar samskipti við lögreglu auk þess stöðugildum í sérstöku heimilisofbeldisteymi hefur verið fjölgað.

Lykilmanni Charlotte meinuð innganga í Kanada
Leikmaður NBA-liðsins Charlotte Hornets gat ekki spilað leik með því í Kanada vegna þess að honum var meinuð innganga í landið.

Endurflytja ofbeldismál í héraði vegna seinagangs dómara
Landsréttur úrskurðaði í vikunni að endurflytja þurfi mál í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna þess að dómur var kveðinn upp meira en fjórum vikum eftir að málið var dómtekið þar.

Er mögulegt að eflast, vaxa og njóta lífsins eftir ofbeldi í nánu sambandi?
Kynbundið ofbeldi er alvarlegt og útbreitt samfélagslegt vandamál á heimsvísu og algengasta birtingarmynd þess er ofbeldi í nánu sambandi, þar sem gerandinn er núverandi eða fyrrverandi maki. Útbreiðsla og algengi ofbeldis í nánu sambandi er slíkt og neikvæðar afleiðingar þess á lýðheilsu svo alvarlegar að því hefur verið líkt við heimsfaraldur.

Tvö heimilisofbeldismál og mannlaus bifreið í Heiðmörk
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og nótt og handtók meðal annars tvo sem voru vistaðir í fangageymslum vegna rannsóknar á heimilisofbeldismálum.

Handtökuskipun gefin út á hendur NFL-stjörnunnar Von Miller
Vonnie B‘VSean Miller, betur þekktur sem Von Miller, er 34 ára gamall leikmaður Buffalo Bills í NFL-deildinni. Hann á að baki tvo meistaratitla í NFL og var valinn verðmætasti leikmaður Ofurskálarinnar árið 2016. Hann gæti nú átt yfir höfði sér fangelsisvist.

Ofbeldi á aldrei rétt á sér
Ofbeldi hefur aukist á Íslandi. Um er að ræða allar tegundir ofbeldis, heimilisofbeldi, kynferðis ofbeldi, andlegt ofbeldi og stafrænt ofbeldi svo eitthvað sé nefnt. Ofbeldi á sér ótal myndir og ekki alltaf sem þolendur átta sig á því að þeir búa við ofbeldi.

Kaffi eða jafnrétti?
Heimurinn einsetti sér að ná kynjajöfnuði fyrir árið 2030 þega Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna voru samþykkt árið 2016. Í ár var staðan tekin á framgangi þessara sautján markmiða og sýndi hún að heimurinn á mjög langt í land með að ná jafnrétti og hefur í raun brugðist konum og stúlkum í þeim efnum. Sér í lagi þegar kemur að kynbundnu ofbeldi.

„Margir fá sjokk þegar þeir heyra að ég hafi lent í þessu“
Sædís Sif Harðardóttir varð fyrir hrottalegri líkamsárás og frelsissviptingu á heimili sínu í júlí síðastliðnum. Hún tók þá ákvörðun strax í upphafi að tala opinskátt um atburðinn og vonast til þess að geta þannig hjálpað öðrum í sömu sporum.

Ungar athafnakonur ráðast á rót vandans í jafnréttismálunum
Það sammælast allir um það að einn stærsti viðburður Íslands þetta árið var haldinn í fyrradag: Kvennaverkfallið árið 2023.

Vilja aðstoða ofbeldismenn að axla ábyrgð
Ráðgjafi á Stígamótum segir mikilvægt að karlmenn fái tæki og tól til að taka þátt í umræðu um kynbundið ofbeldi. Karlmenn séu meirihluti ofbeldismanna og umræðan komi öllum körlum við. Ofbeldismenn verða ræddir á ráðstefnu Stígamóta á morgun.

Umdeild U-beygja United: Antony æfir og má spila
Brasilíumaðurinn Antony, leikmaður Manchester United, er mættur til æfinga hjá félaginu og er laus úr banni frá því að spila fyrir liðið. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.

Eigum ekkert frábært handrit til að láta ofbeldismenn axla ábyrgð
Talskona Stígamóta, Drífa Snædal, segir samfélagið ekki eiga nægilega gott handrit til að takast á við ofbeldismenn. Þessu vilja samtökin breyta og munu hefja það samtal á sérstakri ráðstefnu um ofbeldismenn sem fer fram í næsta mánuði.

Heimilisofbeldi ekki talið brot í nánu sambandi
Karlmaður hefur verið dæmdur til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir líkamsárásir í garð þáverandi sambýliskonu sinnar. Dómari taldi háttsemi hans ekki falla undir nýlegt lagaákvæði um brot í nánu sambandi.