
Fjölnir

Leikmaður Fjölnis virðist vilja burt og er kominn í verkfall
Lúkas Logi Heimisson, leikmaður Fjölnis í Lengjudeild karla í fótbolta, er farinn í verkfall. Hann hefur verið orðaður við lið í Bestu deildinni, þar á meðal Val, og virðist ekki ætla að spila í Grafarvogi í sumar.

Sigrún snýr aftur til Hauka
Körfuboltakonan Sigrún Sjöfn Ámundadóttir mun leika með Haukum út yfirstandandi keppnistímabil eftir að hafa ákveðið að hætta hjá Fjölni, þar sem hún var spilandi aðstoðarþjálfari.

Stórsigrar hjá Njarðvík og Val
Njarðvík og Valur unnu stóra sigra í leikjum sínum í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Njarðvík náði þar með fjórða sætinu aftur af Grindvíkingum.

Sigrúnu vantar bara sjö leiki til að bæta leikjametið í efstu deild
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Fjölni eftir ósætti á milli hennar og aðalþjálfara liðsins Kristjönu Jónsdóttur.

Sigrún segir upp hjá Fjölni: „Við Kristjana náðum ekki takti saman“
Körfuboltakonan reynslumikla Sigrún Sjöfn Ámundadóttir er hætt hjá Fjölni eftir að hafa verið spilandi aðstoðarþjálfari deildarmeistaranna. Hún segir ástæðuna „ólíka sýn“ hennar og þjálfarans Kristjönu Eirar Jónsdóttur á leik liðsins.

Myndaveisla: Grafarvogsbúar fögnuðu saman í gær
Þorrablót Grafarvogs var haldið hátíðlegt í gærkvöldi í Fjölnishöllinni í Egilshöll. Þorramatur var á boðstólum og frábær skemmtiatriði.

ÍR vann loks leik | Öruggt hjá toppliðinu
ÍR, botnlið Subway deildar kvenna í körfubolta, vann sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar það mætti Fjölni í kvöld. Þá vann topplið Keflavíkur öruggan tuttugu stiga sigur á Breiðabliki.

Fjölnir vann óvæntan sigur á Val | Fram fór létt með Leikni
Tveir leikir fóru fram í Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu í kvöld. Fjölnir vann einkar óvæntan sigur á Val að Hlíðarenda á meðan Fram vann öruggan sigur á Leikni Reykjavík.

Þorleifur: Mér fannst eiginlega galið hvað ég var ósáttur með mikið í hálfleik en við vorum samt að spila vel
Grindavík vann nokkuð öruggan sigur á Fjölni í Subway-deild kvenna í kvöld. Eftir frekar jafnan fyrri hálfleik keyrðu Grindvíkingar hreinlega yfir gestina og munurinn orðinn 30 stig þegar mest var. Þessi leikur var eiginlega bara búinn í þriðja leikhluta.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Fjölnir 94-79 | Þægilegur Grindavíkursigur
Grindavík vann þægilegan sigur á Fjölni í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Heimastúlkur náðu mest þrjátíu stiga forskoti og unnu að lokum 94-79 sigur.

„Þurfum bara að fara að drullast til að spila vörn“
Það voru skýr skilaboð sem Kristjana Jónsdóttir hafði fyrir sínar konur eftir tap í kvöld gegn Keflavík 107-78. Þær þurfa einfaldlega að drullast til að fara að spila vörn. Sóknarleikur Fjölnis var nefnilega alls ekki galinn á köflum þrátt fyrir stífa pressu Keflvíkinga allan leikinn.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Fjölnir 107-78 | Þægilegur Keflavíkursigur í tilþrifalitlum leik
Það var óvenju rólegt kvöld í Blue höllinni í kvöld þar sem Fjölniskonur sóttu Keflavík heim. Stúkan nánast tóm þar til rétt fyrir leik, en rættist þó aðeins úr þegar leið á kvöldið. Mögulega voru áhorfendur enn að melta jólasteikina, því á köflum mátti heyra saumnál detta í húsinu. Leikurinn var svo sem aldrei sérstaklega spennandi svo að stemmingin á pöllunum kannski einfaldlega í takt við það. Lokatölur 107-78 Keflavík í vil.

Dagný Lísa handleggsbrotin: „Það er ákveðinn skellur“
Kristjana Eir Jónsdóttir, þjálfari Fjölnis, var svekkt með tapið gegn Haukum í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld en stolt samt sem áður af sínu liði enda tveir erlendir leikmenn liðsins fárveikur og þá handleggsbrotnaði Dagný Lísa Davíðsdóttir í leiknum.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Fjölnir 92-77 | Haukar ekki í neinum vandræðum
Haukar unnu flottan sigur á Fjölni í Subway-deild kvenna í kvöld; 92-77 voru lokatölurnar í Ólafssal. Sigurinn þýðir að Haukar halda í við topplið Keflavíkur

Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - Breiðablik 93-51 | Breiðablik fékk skell með nýjan þjálfara
Fjölnir valtaði yfir Breiðablik í fyrsta leik Jeremy Smith sem tók við Breiðabliki eftir að Yngva Gunnlaugssyni var sagt upp störfum. Fjölnir fór hægt af stað og var þremur stigum undir eftir fyrsta fjórðung en tók síðan yfir leikinn í öðrum leikhluta og keyrði yfir Breiðablik það sem eftir var leiks. Fjölnir vann á endanum 42 stiga sigur 93-51.

Valur rétt marði ÍR en Njarðvík burstaði Fjölni
Valur vann nauman sigur á botnliði ÍR í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í dag. Kiana Johnson skoraði sigurkörfuna þegar þrjár sekúndur voru eftir en ÍR hefur ekki unnið leik í deildinni í vetur. Þá vann Njarðvík stórsigur á Fjölni suður með sjó.

Grindavík vann í Grafarvogi og ÍR skoraði eitt stig í fyrsta leikhluta gegn Haukum
Grindavík gerði góða ferð í Grafarvog í Subway-deild kvenna í kvöld. Þær unnu þar 84-80 sigur gegn Fjölni. Þá unnu Haukar stórsigur gegn botnliði ÍR.

Stressið aldrei verið meira
Sextán liða úrslitin í Kviss héldu áfram á laugardagskvöldið á Stöð 2. Þar mættust lið Fjölnis og Víkings.

Keflavíkurkonur áfram með fullt hús stiga
Grindavík tókst ekki að stöðva sigurgöngu Keflavíkur í Subway deildinni í körfubolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - Haukar 58-71 | Haukar fóru illa með Fjölni
Haukar fóru illa með Fjölni og unnu þrettán stiga sigur. Fyrsti leikhluti var jafn og spennandi en eftir að gestirnir komust tíu stigum yfir um miðjan annan leikhluta litu Haukar aldrei um öxl og rúlluðu yfir Fjölni 58-71.

Umfjöllun: Breiðablik 65-69 Fjölnir | Fjölnissigur í hnífjöfnum leik í Smáranum
Deildarmeistarar Fjölnis unnu fjögurra stiga sigur á Breiðablik í Kópavoginum í kvöld, 65-69.

Kristjana: Sendum beiðni þann 20.júní um að færa þennan leik en KKÍ sagði nei
„Við þurfum klárlega að stíga upp varnarlega, við vorum góðar í vörn í síðasta leik en þetta hefur háð okkur í þessum tveimur leikjum sem við höfum tapað. Þegar við spilum góða vörn þá vinnum við, svo einfalt er þetta,“ sagði Kristjana Jónsdóttir þjálfari Fjölnis eftir tap gegn Njarðvík í Subway deild kvenna í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fjölnir - Njarðvík 84-95 | Íslandsmeistararnir höfðu betur í Grafarvoginum
Íslandsmeistarar Njarðvíkur unnu annan leik sinn í Subway deild kvenna á tímabilinu þegar þær lögðu Fjölni í Grafarvogi nú í kvöld. Lokatölur 95-84 og Njarðvík því með fjögur stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar en Fjölniskonur tvö.

Keflavík vann stórsigur | Fjölnir lagði ÍR
Keflavík vann Breiðablik með 30 stiga mun í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld, lokatölur 58-88 í Smáranum. Fjölnir lagði ÍR í Breiðholti, lokatölur 50-58.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Fjölnir 87-75 | Grindavík meinar viðskipti
Grindavík setti tóninn fyrir tímabilið með því að valta yfir Fjölni í 1. umferð Subway-deildar kvenna. Danielle Rodriguez snéri aftur á parketið og fór á kostum. Grindavík vann tólf stiga sigur, 87-75.

Aflýsa Októberfest vegna skyndilegra andláta Fjölnismanna
Íþróttafélagið Fjölnir hefur ákveðið að aflýsa Oktoberfest sem átti að fara fram næstkomandi laugardag. Ástæðan er skyndilegt fráfall tveggja Fjölnismanna.

HK tryggði sér sæti í Bestu-deildinni: Myndir
HK-ingar eru komnir aftur upp í deild þeirra bestu eftir 3-1 sigur gegn Fjölni í 20. umferð Lengjudeildar karla í kvöld.

Botnliðin þrjú töpuðu öll í Lengjudeild kvenna
Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í kvöld þar sem botnliðin þrjú, Haukar, Fjölnir og Augnablik, töpuðu öll. Haukar máttu þola 0-2 tap gegn Víking, Fjölnir steinlá á heimavelli gegn Fylki, 1-4, og Augnablik tapaði 0-3 gegn Grindavík.

Fjölnir vann stórsigur og Grótta kom til baka
Tveir leikir fóru fram í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld þegar Fjölnir vann öruggan 1-4 útisigur gegn KV og Grótta vann 4-2 sigur gegn Aftureldingu.

HK stefnir upp í Bestu á meðan Haukar og Fjölnir eru í vondum málum
Tveir leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í fótbolta í kvöld. HK vann 4-1 sigur á Haukum og Grindavík vann 2-0 sigur á Fjölni.