KA-menn heppnir að Bjössi verður ekki inni á vellinum í dag Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. júlí 2015 07:00 Sigurbjörn var fyrirliði Vals þegar liðið varð síðast bikarmeistari, árið 2005. vísir/daníel
Valur, sem berst um Íslandsmeistaratitilinn í Pepsi-deild karla í fótbolta, heimsækir 1. deildar lið KA í fyrri undanúrslitaleik Borgunarbikarsins í dag. Leikurinn fer fram á Akureyrarvelli klukkan 18.00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. KA, sem styrkti lið sitt gífurlega fyrir tímabilið og ætlar sér upp úr 1. deildinni, hefur valdið miklum vonbrigðum í sumar ef frá er talinn bikarinn. Lærisveinar Bjarna Jóhannssonar eru búnir að skella bæði Breiðabliki og Fjölni á leið sinni í undanúrslitin. Síðast þegar liðin mættust í mótsleik var í bikarkeppninni fyrir sex árum, en þá vann Valur, 3-2, eftir framlengdan leik. Dávid Disztl og Andri Fannar Stefánsson, núverandi leikmaður Vals, skoruðu mörk KA en Helgi Sigurðsson og Marel Baldvinsson fyrir Val. Það var svo Sigurbjörn Hreiðarsson, núverandi aðstoðarþjálfari Vals, sem skaut Hlíðarendaliðinu áfram með marki á 117. mínútu. Liðin hafa ekki verið saman í deild í ellefu ár, en þau léku síðast saman í úrvalsdeildinni sumarið 2003. Þegar liðin mættust það tímabilið á Akureyrarvelli vann KA, 2-1. Sigurmarkið skoraði hver? Jú, Sigurbjörn Hreiðarsson á 73. mínútu. Jóhann Hreiðarsson, bróðir Sigurbjörns, skoraði fyrra mark Valsmanna í þeim leik. KA-menn fagna því vafalítið að Bjössi eða einhver ættingi hans getur ekki orðið banabitinn inni á vellinum að þessu sinni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn Fyrrum kappaksturshetja og fjölskylda hans létust í flugslysi Sport „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Enski boltinn Hætti við að keppa út af hundinum sínum Sport Elías mættur til meistaranna Íslenski boltinn Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Íslenski boltinn Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ Fótbolti Fleiri fréttir Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Sjá meira