Má lækka skatta? Helgi Brynjarsson skrifar 3. apríl 2026 07:01 Í vikunni kynnti Sjálfstæðisflokkurinn tillögur sínar að umbótum í efnahagsmálum, sem innihélt hugmyndir flokksins um víðtækar skattalækkanir, hagræðingar og takmörkun á umsvifum hins opinbera. Það var kærkomin tilbreyting að sjá slíkar tillögur, sérstaklega fyrir okkur sem hafa rennt yfir fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar þar sem allt önnur hugmyndafræði ræður ríkjum. Þó var ekki öllum skemmt. Geðshræring á stjórnarheimilinu Ákveðin taugaveiklun virðist hafa gripið um sig á meðal stjórnarliða á Alþingi vegna tillagna Sjálfstæðisflokksins, þá sérstaklega hjá Samfylkingunni. Hugarástand þeirra kemur líklega skýrast fram í ræðu þingmanns flokksins, Örnu Láru Jónsdóttur, á Alþingi í seinustu viku, þar sem hún sagði að „kaldur hrollur“ hefði hríslast um hana þegar hún las tillögur Sjálfstæðisflokksins um skattalækkanir sem birtust á flokksráðsfundi flokksins helgina áður. Verandi hægri sinnaður get ég ómögulega tengt við þessa upplifun hennar og finnst í raun stórmerkilegt að hægt sé að vera svo mikið til vinstri að maður upplifi líkamleg einkenni við það eitt að lesa um hugmyndir um lækkun skatta á fólk og fyrirtæki. Síðan þá hefur hver innanbúðarmaður ríkisstjórnarinnar á fætur öðrum fundið sig knúinn til að stíga fram á ritvöllinn til að býsnast yfir tillögum Sjálfstæðisflokksins og telja flokkinn „marklausan“ fyrir að leggja til að skattalækkanir upp á 140 milljarða kr. Þessi hneykslan virkar þó aðeins í aðra áttina, því þegar ríkisstjórnin jók útgjöld ríkisins um 143 milljarða kr. í seinustu fjárlögum fagnaði sami hópur þeirri útgjaldaaukningu ákaft. Þá voru rúmir 140 milljarðar bara smáaurar. Í hugum vinstri manna er útgjaldaaukning nefnilega sjálfsögð og eðlileg, en samsvarandi skattalækkanir hins vegar forkastanlegar með öllu. Þeir sem vilja lækka skatta og þeir sem vilja hækka þá Öll þessi harmakvein stjórnarliða yfir tillögum um skattalækkanir kom þó ekki óvart í sjálfum sér, enda viðbúið frá flokkum sem ekkert hafa til málanna að leggja í efnahagsmálum annað en skattahækkanir. Ég tek því reyndar fagnandi að ríkisstjórnarflokkarnir séu loksins farnir að gangast við því í orði sem þau hafa gert á borði alveg síðan að þau tóku við völdum, þ.e. að einu breytingarnar sem þau munu gera á sköttum og gjöldum verða til hækkunar. Það sást glögglega á þeim ríflegu skattahækkunum sem boðaðar hafa verið í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Þar eru m.a. áætluð aukin skattheimta á ferðaþjónustuna, fjármálafyrirtæki og byggingarframkvæmdir. Á sama tíma eru mörg nágrannalönd okkar, svo sem Svíþjóð og Noregur, að grípa til skattalækkana til að bregðast við áhrifum stríðsins í Mið-Austurlöndum á eldsneytisverð. Viðbrögð ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur við aukinni verðbólgu, atvinnuleysi og vaxtahækkunum er hins vegar sú sama og venjulega: Skattahækkanir. Svokölluð „patent“ lausn ríkisstjórnarinnar. Nú getur almenningur þó séð svart á hvítu hvar áherslur flokkana liggja. Ríkisstjórnin velur aukin útgjöld og skattahækkanir á fólk og fyrirtæki, en Sjálfstæðisflokkurinn býður upp á aðhald og skattalækkanir. Það er ágætt að sem flestir séu meðvitaðir um það. Höfundur er lögfræðingur og starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Brynjarsson Sjálfstæðisflokkurinn Skattar, tollar og gjöld Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Sjá meira
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar