Vill að Þjóðverjar byggi höfn í Vík Sveitarstjóri Mýrdalshrepps vill ráðast í hafnargerð í Vík í Mýrdal til að koma í veg fyrir umfangsmikla vikurflutninga um Suðurlandsveginn. Höfnin myndi skapa mikil tækifæri fyrir þorpið, sem er í dag eina hafnarlausa sjávarþorp landsins. Innlent 17. ágúst 2022 13:31
Enginn spenntur fyrir umfangsmiklum vikurflutningum um þjóðveginn Þungaflutningar yrðu mun tíðari um Suðurlandsveginn ef áform þýsks fyrirtækis ganga eftir. Vörubíll mun keyra í gegn um helstu bæi svæðisins á kortersfresti. Sveitarfélögum á svæðinu líst ekki á blikuna og setja sig upp á móti flutningunum. Innlent 17. ágúst 2022 09:58
Íbúar áhyggjufullir vegna mögulegrar efnistöku Formaður bæjarráðs Árborgar er hræddur um að vegakerfið í sveitarfélaginu þoli ekki þann þungaflutning sem fyrirhugaður er um Suðurland vegna efnistöku á vikri á Mýrdalssandi við Hafursey. Hann segir að það þurfi í mörg horn að líta. Innlent 16. ágúst 2022 15:20
„Þetta heitir að selja ömmu sína tvisvar“ Fyrirhuguð stórfelld námuvinnsla og miklir þungaflutningar um Suðurland leggjast afar illa í marga sem keppast við að fordæma fyrirætlanirnar. Innlent 15. ágúst 2022 13:53
Skjálfti í Mýrdalsjökli Rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld varð skjálfti í sunnanverðum Mýrdalsjökli. Stærð skjálftans hefur ekki verið staðfest. Innlent 30. júlí 2022 00:04
Stóð af sér vatnavextina Ekki þurfti að loka bráðabirgðabrúnni yfir Jökulsá á Sólheimasandi þrátt fyrir mikla vatnavexti síðustu sólarhringa en á þriðjudag varaði Vegagerðin við því að óljóst væri hvort brúin myndi standa af sér vatnsflauminn. Innlent 28. júlí 2022 10:51
Allt á floti á Selfossi Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Suður- og Suðausturland í dag vegna úrhellis. „Það er allt á floti“ segir eigandi tjaldsvæðis á Selfossi, sem fer einna verst út úr rigningunum í dag. Vegagerðin hefur talsverðar áhyggjur af brú á hringveginum vegna vatnavaxta. Innlent 27. júlí 2022 11:49
Óljóst hvort brúin við Jökulsá standi af sér vatnsflauminn Búast má við miklum vatnavöxtum á sunnanverðu landinu í dag vegna mikillar rigningar og er óljóst hvort bráðabirgðabrú við Jökulsá á Sólheimasandi standi af sér vatnsflauminn. Innlent 27. júlí 2022 10:11
Óvenju há rafleiðni í Jökulsá á Sólheimasandi Rafleiðni mælist óvenjulega há í Jökulsá á Sólheimasandi. Ferðafólki og ferðaþjónustuaðilum á svæðinu er ráðlagt að vera á varðbergi. Innlent 19. júlí 2022 16:32
Tók saman kort með andlátum ferðamanna á Íslandi undanfarin ár Kristján Hlynur Ingólfsson hefur undanfarin tvö ár tekið saman upplýsingar um dauðsföll ferðamanna á Íslandi og er núna búinn að búa til kortasjá sem sýnir hvar á landinu ferðamenn hafa dáið. Hann segir þrjá staði á Suður- og Suðvesturlandi vera stærstu álagssvæðin. Innlent 18. júlí 2022 15:40
Ókunnugt fólk skrái sig ítrekað til heimilis hjá honum Íbúi í Vík í Mýrdal hefur lent í því þrisvar upp á síðkastið að ókunnugt fólk skrái sig til heimilis í þinglýstri eign hans, án hans samþykkis. Hann gagnrýnir Þjóðskrá fyrir að leyfa hverjum sem er að skrá heimilisfangið sitt hvar sem er, án leyfis eiganda eignarinnar. Innlent 15. júlí 2022 18:33
Söguleg stund þegar fyrsti bjórinn var seldur úr húsi Þau voru sannarlega langþráð, viðskiptin sem urðu að veruleika í brugghúsinu Smiðjunni á Vík í dag þegar brugghúsið varð það fyrsta í sögu landsins til að selja bjór frá framleiðslustað. Innlent 14. júlí 2022 12:47
Skjálftar í Mýrdalsjökli Sex skjálftar mældust rétt fyrir klukkan fimm í dag í Mýrdalsjökli. Stærstu skjálftarnir voru 3,0 og 2,7 að stærð en hinir skjálftarnir voru minni. Innlent 10. júlí 2022 17:43
Einvígi aldarinnar 50 ára – Afmælinu fagnað í Vík í Mýrdal Kötlusetur í Vík í Mýrdal mun fagna því á morgun, 9. júlí að 50 ár eru liðin frá einvígi aldarinnar í skák með skáksýningu og hraðskákmóti í setrinu. Innlent 8. júlí 2022 11:15
Gul viðvörun gefin út fyrir Suðausturland Gul viðvörun verður í gildi á Suðausturlandi frá klukkan 11 til klukkan 23 á morgun, fimmtudag. Veður 6. júlí 2022 11:14
Hitaveita á köldum svæðum álitlegri með tækniframförum í jarðhitaleit Ísafjörður, Patreksfjörður og Grundarfjörður eru í flokki álitlegustu þéttbýlisstaða á Íslandi til að fá hitaveitu, að mati jarðfræðings hjá ÍSOR, sem segir tækniframfarir í jarðhitaleit kalla á endurmat á svokölluðum köldum svæðum hérlendis. Innlent 28. júní 2022 22:44
Grænt ljós á aðvörunarljós í Reynisfjöru sem fara upp á næstunni Unnið er að því að setja upp aðvörunarljós í Reynisfjöru. Reiknað er með því að ljósin verði kominn upp í næsta mánuði. Innlent 28. júní 2022 14:24
„Það sér það hver maður að við landeigendur erum ekki að fara að greiða úr eigin vasa“ Samráðsfundur stjórnvalda með landeigendum í Reynisfjöru var haldinn í gærkvöldi. Einn landeigenda segir mjög gott hljóð vera í hópnum og fundinn hafa gengið vel. Strax á föstudag hefst formlegt samstarf um að efla öryggi ferðamanna í Reynisfjöru. Innlent 22. júní 2022 14:35
Sammála um að ljúka uppsetningu viðvörunarkerfis í Reynisfjöru Samráðsfundur stjórnvalda með landeigendum í Reynisfjöru var haldinn í kvöld. Þeir sem sóttu fundinn voru sammála um að ljúka ætti uppsetningu viðvörunarkerfis í fjörunni. Samráðshópur hefur fengið það verkefni að útbúa tímasetta aðgerðaráætlun til að efla öryggi á svæðinu. Innlent 21. júní 2022 21:53
Erlendur ferðamaður lést í slysinu við Vík Ökumaður fólksbifreiðar, erlendur karlmaður á sjötugsaldri, lést í bílslysinu sem varð austan við Vík í Mýrdal í dag. Eiginkona hans var flutt alvarlega slösuð með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann. Innlent 16. júní 2022 22:51
Einn fluttur með þyrlu Gæslunnar á Landspítalann Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við Landspítalann með mann sem slasaðist í alvarlegu umferðarslysi austan við Vík í Mýrdal nú um klukkan 18:00. Bifreiðar úr gangstæðri átt skullu saman á þjóðvegi 1 við Kúðafljót. Innlent 16. júní 2022 18:11
Fylgjast með innlyksa fólki í Reynisfjöru Lögreglu- og björgunarsveitarfólk fylgist nú með tveimur ferðamönnum sem urðu innlyksa í Reynisfjöru á flóði. Búist er við að hægt verði að koma þeim til hjálpar þegar fjarar út í kvöld. Innlent 14. júní 2022 19:00
„Getum ekki horft á þessa stöðu mikið lengur“ „Við getum ekki horft á þessa stöðu mikið lengur,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ráðherra ferðamála, um ástandið í Reynisfjöru þegar kemur að öryggi ferðamanna. Hún hyggst ræða við landeigendur og fulltrúa ferðaþjónustunnar um málið í næstu viku og kveðst opin fyrir því að loka ströndinni tímabundið þegar sjávarföll eru talin lífshættuleg. Innlent 14. júní 2022 14:47
Skrifræði ríkisins hafi aftrað úrbótum í Reynisfjöru Talsmaður hóps landeigenda að Reynisfjöru segir að inngrip hins opinbera hafi aftrað úrbótum á öryggismálum í Reynisfjöru. Það sé sárt að heyra því haldið fram að það séu landeigendurnir sem vilji ekki bæta öryggi í fjörunni. Innlent 13. júní 2022 20:00
Ferðamenn í sjálfheldu í Reynisfjöru Ferðamenn komust í sjálfheldu í flæðarmálinu í Reynisfjöru í dag, degi eftir að erlendur ferðamaður lést þar. Hópur fólks lenti í öldu í fjörunni en öllum tókst þó að komast aftur á þurrt. Innlent 11. júní 2022 15:56
„Ekki boðlegt að fólk sé að deyja þarna við þessar aðstæður“ Erlendur ferðamaður á áttræðisaldri lést í Reynisfjöru í gær. Viðvörunarskilti eru í fjörunni en nokkur banaslys hafa orðið þar á undanförnum árum. Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir erfitt að meta hvað annað væri hægt að gera en takmarka aðgengi að fjörunni til að koma í veg fyrir slys. Innlent 11. júní 2022 12:30
Banaslys í Reynisfjöru Erlendur ferðamaður, karlmaður á áttræðisaldri lést í gær þegar alda hreif hann með sér úr Reynisfjöru og út í sjó. Innlent 11. júní 2022 09:44
Þyrla Landshelgisgæslunnar náði manni úr sjónum við Reynisfjöru Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út um fimmleytið í dag þar sem erlendur ferðamaður hafði lent í sjónum við Reynisfjöru. Þyrlan kom á vettvang tæpri klukkustund síðar og náði manninum úr sjónum. Innlent 10. júní 2022 18:56
Einar Freyr verður sveitarstjóri Mýrdalshrepps eftir sigur B-lista B-listi Framsóknar og óháðra tryggði sér þrjá fulltrúa í sveitarstjórn Mýrdalshrepps í kosningunum á laugardag og hélt þar með meirihluta sínum. A-listi Allra náði inn tveimur mönnum. Innlent 17. maí 2022 11:25
Konan sem storkaði dauðanum með bros á vör Ljósmyndarar Vísis sáu sér til skelfingar þegar brimið náði taki á konu nokkurri, bandarískum ferðamanni, en betur fór en á horfðist. Myndirnar sem þeir náðu af atvikinu eru einhvers staðar mitt á milli þess að geta talist stórfenglegar og skelfilegar. Innlent 16. mars 2022 11:05