Áform um tugi milljarða í arð ætti að vera stjórn OR „alvarlegt umhugsunarefni“ Áform Orkuveitu Reykjavíkur um að greiða út tugi milljarða í arð til eigenda sinna á næstu árum ætti að vera stjórn fyrirtækisins „alvarlegt umhugsunarefni“ með hliðsjón af versnandi afkomu og að blikur séu á lofti í efnahagsmálum, að sögn stjórnarmanns í OR. Tillaga hans um að fallið yrði frá arðgreiðslum að fjárhæð samanlagt 19 milljarðar á árunum 2024 til 2026 var felld af meirihluta stjórnar Orkuveitunnar. Innherji 11. október 2023 16:16
Nærmynd af Benedikt Sveinssyni: Óvæntur örlagavaldur í pólitísku lífi sonarins Bjarni Benediktsson tilkynnti um afsögn sína sem fjármála- og efnahagsráðherra í gær. Ástæðan varðaði kaup föður hans á hlut í Íslandsbanka, en það er ekki í fyrsta skipti sem faðir Bjarna, Benedikt Sveinsson, hefur áhrif á pólitískan feril sonarins. Benedikt hefur verið áberandi í íslensku samfélagi í áratugi. Hann hefur meðal annars verið kallaður „Stjórnarformaður Íslands“ Innlent 11. október 2023 14:57
Telur að forsætisráðherra hefði átt að óska eftir afsögn fyrir löngu Fyrrverandi fjármálaráðherra telur að forsætisráðherra hefði átt að fara fram á að Bjarni Benediktsson segði af sér ráðherraembætti um leið og kom í ljós að faðir hans var á meðal kaupenda að hlut ríkisins í Íslandsbanka. Samkvæmt lögum hefði fjármálaráðherra átt að vita af aðild föður síns þegar hann samþykkti að selja hlutinn í bankanum. Þá myndi það hvergi gerast í nágrannalöndum að ráðherra sem segir af sér embætti sé samstundis orðaður við annan ráðherrastól. Innlent 11. október 2023 12:30
Stjórnsýsluákvörðun veldur afsögn Fram kom hjá stjórnmálafræðingum í fjölmiðlum í gær (10. okt. 2023) að þeir teldu úrskurð Umboðsmanns Alþingis um vanhæfi fjármála- og viðskiptaráðherra við sölu í hlut ríkisins í Íslandsbanka veikt tilefni til afsagnar. Þarna skín í gegn hin landlæga áhersla á að úrlausnarefni í opinberu lífi séu leyst sem stjórnmálaleg mál – en ekki sem stjórnsýslumál. Skoðun 11. október 2023 10:31
„Ég útiloka það alls ekki að ég verði áfram í ríkisstjórninni“ „Ég tók eina ákvörðun í dag og ég á eftir að taka ýmsar aðrar ákvarðanir en ég útiloka það alls ekki að ég verði áfram í ríkisstjórninni,“ sagði Bjarni Benediktsson, fráfarandi fjármála- og efnahagsráðherra, í samtali við Morgunblaðið í gær. Innlent 11. október 2023 07:04
Pólitísk plott fari sjaldnast eftir handritinu Stjórnmálafræðiprófessor segir vel geta verið að afsögn Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra sé liður í pólitískri refskák. Pólitísk plott séu þó þess eðlis að þau fari sjaldnast alveg eftir handritinu. Óvenjulegt sé að Bjarni hafi aðeins greint frá afsögn sinni, en ekki hver tekur við embættinu eða hvað hann ætli sér að gera í framhaldinu. Innlent 10. október 2023 21:09
„Höfum hingað til þurft að hafa virkilega fyrir því að losna við þá“ Stjórnarandstöðuþingmenn sem fréttastofa hefur rætt við eru sammála um að ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að segja af sér embætti fjármálaráðherra hafi verið rétt. Formaður Flokks fólksins undrast hve auðveldlega hann fór frá, en formaður Samfylkingarinnar bendir á langan aðdraganda að ákvörðun Bjarna. Innlent 10. október 2023 19:42
Umdeilt hvort Bjarni sé að axla ábyrgð Hvort að Bjarni Benediktsson sé að axla pólitíska ábyrgð með afsögn sinni var á meðal þess sem var rætt í Pallborðinu á Vísi í dag. Fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins segir það eiga eftir að koma í ljós. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir Bjarna hafa axlað ábyrgð. Stjórnmálafræðingur segir það matsatriði. Innlent 10. október 2023 17:44
Katrín segir hugsanlegt að Bjarni taki annað ráðuneyti Forsætisráðherra segir ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að segja af sér ráðherraembætti vera virðingarverða og rétta. Ákvörðunin hafi þó alfarið komið frá honum sjálfum. Stjórnin standi traustum fótum og ekki sé von á kosningum. Hugsanlega komi Bjarni til með að taka við öðru ráðherraembætti. Innlent 10. október 2023 17:15
Bjarni bæði hæfur og vanhæfur í senn Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, tókust á um túlkun sína á áliti umboðsmanns Alþingis sem hefur orðið til þess að Bjarni Benediktsson hefur sagt af sér sem fjármála- og efnahagsráðherra. Innlent 10. október 2023 14:58
„Fróðlegt að sjá hver viðbrögð matvælaráðherra verða“ Ákvörðun Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að segja af sér sem fjármálaráðherra vekur gríðarlega athygli. Álitsgjafar á samfélagsmiðlum eru ýmist hvumsa yfir ákvörðuninni, fagna henni eða bæði. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir ákvörðunina marka ný viðmið um ábyrgð ráðherra. Innlent 10. október 2023 14:13
Bein útsending: Rýnt í afsögn Bjarna og framhaldið Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra, Hildur Sverrisdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, og Ólafur G. Harðarsson stjórnmálafræðingur verða gestir Pallborðsins klukkan 15 í dag. Innlent 10. október 2023 13:51
Bjarni sá ellefti til að segja af sér Bjarni Benediktsson er ellefti ráðherrann til að segja af sér embætti. Fjórir ráðherrar hafa sagt af sér embætti undanfarinn áratug en sjö árin áttatíu og þrjú þar á undan frá því Hannes Hafstein varð fyrstur ráðherra árið 1904. Innlent 10. október 2023 13:13
Málinu lokið og hefur engu við álitið að bæta Umboðsmaður Alþingis hefur engu við álit sitt að bæta nú þegar ráðherra hefur sagt af sér. Hann segir málinu lokið af hálfu embættis hans. Innlent 10. október 2023 12:02
„Þetta er rétt ákvörðun“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist telja ákvörðun Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að segja af sér sem fjármálaráðherra vera rétta. Hún segir ákvörðunina hafa komið sér á óvart. Innlent 10. október 2023 11:42
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins heyrðu tíðindin á sama tíma og þjóðin Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins heyrði fréttirnar af afsögn Bjarna Benediktssonar á sama tíma og aðrir, þegar hann tilkynnti hana á Blaðamannafundi í morgun. Hann hafði þó greint frá áliti umboðsmanns Alþingis á fundi með þingflokknum í morgun. Innlent 10. október 2023 11:37
„Bjarni maður að meiri“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir að hún telji ákvörðun Bjarna Benediktssonar að segja af sér sem fjármála- og efnahagsráðherra vera rétta ákvörðun. Hún segir álit umboðsmanns um hæfi Bjarna vera rétta og ekki koma á óvart. Innlent 10. október 2023 11:31
Bjarni segir af sér sem fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur ákveðið að stíga til hliðar sem fjármála-og efnahagsráðherra vegna mats umboðsmanns Alþingis á hæfni hans við söluna á Íslandsbanka. Í ljósi þess að faðir Bjarna var á meðal kaupenda hefði Bjarna brostið hæfi þegar hann samþykkti tillögu Bankasýslunnar um söluna. Innlent 10. október 2023 10:47
Bjarni ekki hæfur til að samþykkja sölu Íslandsbanka Umboðsmaður Alþingis telur Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, ekki hafa verið hæfan þegar hann samþykkti tillögu Bankasýslunnar um sölu á Íslandsbanka, í ljósi þess að einkahlutafélag föður hans var á meðal kaupenda að 22,5 prósenta hlut. Innlent 10. október 2023 10:02
Svona tilkynnti Bjarni afsögn sína sem fjármálaráðherra Fjármála- og efnahagsráðherra boðaði til blaðamannafundar á tíunda tímanum í morgun. Efni fundarins var ekki gefið upp en fljótlega kom í ljós hvert tilefnið var. Innlent 10. október 2023 09:45
Gabríel nýr forseti Uppreisnar Gabríel Ingimarsson var kjörinn nýr forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, á aðalfundi félagsins sem fram fór síðustu helgi. Hann hafði betur í forsetakjöri gegn Emmu Ósk Ragnarsdóttur. Innlent 10. október 2023 08:27
Bein útsending: Ræða starfsemi Samkeppniseftirlitsins Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur í dag opinn fund um framkvæmd samkeppnislaga og eftirlit með samkeppnisbrotum – umgjörð, málsmeðferð og starfsemi Samkeppniseftirlitsins. Innlent 10. október 2023 07:58
Friðlýsir Skrúð og staðfestir verndarsvæði í byggð á Ísafirði Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í á föstudag friðlýsingu vegna Skrúðs í Dýrafirði. Þá staðfesti ráðherrann að Neðstikaupstaður og Skutulsfjarðareyri á Ísafirði verði sérstakt verndarsvæði innan sveitarfélagsins. Innlent 9. október 2023 14:34
Skrifaði greinina fyrir litla strákinn í kjólnum Guðfinnur Sigurvinsson, hársnyrtir og bæjarfulltrúi í Garðabæ, fer yfir fordóma og fræðslu í grein sem hann skrifar um reynslu sína sem samkynhneigður karlmaður og þá fræðslu sem hann fékk ekki sem barn, en hefði þurft. Innlent 9. október 2023 11:52
Sjókvíeldi, með eða á móti Það má segja að stormur ríki um þessar mundir í umræðu um sjókvíeldi. Stór orð látin falla og þá skal skunda á Austurvöll og hafa hátt. Skoðun 9. október 2023 11:31
Enn um lýðræði og jaðarsetningu þess Á fallegum síðsumarsdegi eða 11 ágúst síðastliðinn sendi undirritaður grein hingað á visir.is, undir yfirskriftinni „lýðræðislegur ómöguleiki“. Grunnurinn að greininni er hugsuninn um pólitíska samsetningu ríkisstjórnarinnar frá vinstri yfir miðju til hægri = xV, xB og xD. Skoðun 9. október 2023 08:30
Á morgun kemur skólinn, hvar verða skýin þá? Það er rétt að minna á að það fá ekki öll börn fræðslu heima fyrir, og síst þau sem allra mest þurfa á henni að halda. Skoðun 9. október 2023 07:01
Fjöldi brimbrettaiðkenda mótmælti landfyllingum Félagar í Brimbrettafélagi Íslands mótmæltu í dag landfyllingarframkvæmdum í höfninni í Þorlákshöfn sem hófust í morgun. Bæjarfulltrúi segir framkvæmdirnar ólölegar og lítur málið alvarlegum augum. Innlent 8. október 2023 23:12
Utanríkisráðherra sendir flugvél til Ísrael fyrir íslenska strandaglópa Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að senda farþegaflugvél á vegum íslenska ríkisins til Ísraels í þeim tilgangi að ferja 120 Íslendinga aftur heim. Innlent 8. október 2023 15:32
Níu hundruð fallnir: „Hryllingur að horfa upp á þetta“ Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels telur að stríðið þar í landi muni vara í langan tíma. Minnst sex hundruð Ísraelsmenn, þar af 44 hermenn eru sagðir látnir. Þrjú hundruð Palestínumenn eru jafnframt sagðir hafa fallið frá því að stríð hófst í gærmorgun. Erlent 8. október 2023 12:33