Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Forsala 2.000 miða á KALEO- tónleikana Vor í Vaglaskógi hófst klukkan 12.00 á hádegi í dag og seldust allir miðarnir upp á innan við einni mínútu. Tónlist 1. júlí 2025 14:26
Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag og stendur til að halda fjölda viðburða um allan landshlutann. Verkefnastjóri menningarmála hjá Akureyrarbæ vill auka sýnileika hinsegin samfélagsins á svæðinu. Innlent 18. júní 2025 14:27
Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu Hluta af útsýnispalli við Dettifoss hefur verið lokað vegna aurskriðu sem féll í gær. Innlent 6. júní 2025 19:28
Gestum ráðið frá að heimsækja Dettifoss vegna stórrar skriðu Þjóðgarðsverðir í Vatnajökulsþjóðgarði ráða gestum frá því að heimsækja Dettifoss. Stór aurskriða féll úr klettabrúnum Jökulsárgljúfra við útsýnispalla rétt norðvestan við fossinn. Innlent 5. júní 2025 21:15
Vorhret í Vaglaskógi: Gasgrillið í fullum gangi svo að fortjaldið sligist ekki undan snjónum Það er fátt sem minnir á vorið í Vaglaskógi um þessar mundir en töluverð snjóþyngsli eru á svæðinu. Fréttastofa náði af tali af konu sem er í útilegu með eiginmanni sínum. Hún segir bæði gasgrill og -hitara á fullum krafti til að bjarga fortjaldinu undan þungum snjónum. Innlent 3. júní 2025 09:21
GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum GeoSilica mun hefna starfsemi í nýju húsi á fjölnýtingarlóð Landsvirkjunar á Þeistareykjum komandi haust. Viðskipti innlent 30. maí 2025 14:02
Bað um 12 milljónir til að halda tónlistarhátíð í öðru sveitarfélagi Félagið Melody Man ehf., sem er í eigu Jökuls Júlíussonar söngvara Kaleo, fær ekki fjárstuðning frá Akureyrarbæ til þess að halda tónlistarviðburð í Vaglaskógi í sumar. Umsókn um 12 milljóna króna styrk frá bænum var hafnað af bæjarráði. Innlent 30. maí 2025 12:10
Sást ekki til sólar fyrir mýi Vistfræðingur sem staddur var á Mývatni þegar mýflugnager vaknaði til lísins segir annað eins ekki hafa sést í yfir hálfa öld. Að hans sögn sást ekki til sólar þrátt fyrir að það væri heiðskírt. Innlent 23. maí 2025 20:02
Skjálfti 4,8 að stærð í Bárðarbungu Skjálfti af stærð M4,8 varð í Bárðarbungu klukkan 21:14 í kvöld og nokkrir minni eftirskjálftar fylgdu í kjölfarið. Skjálftinn fannst meðal annars í Suðursveit en engin merki eru um gosóróa. Innlent 5. maí 2025 21:50
Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Íslenska stórhljómsveitin Kaleo hefur spilað víða um heim síðastliðinn áratug og stefnir á að vera loksins aftur með tónleika í Vaglaskógi í sumar. Þeir eru að gefa út plötuna Mixed Emotions næstkomandi föstudag og ætla að fylgja henni eftir með stæl bæði erlendis og hérlendis. Er um að ræða fyrstu tónleika sveitarinnar á Íslandi síðan 2015. Tónlist 5. maí 2025 14:06
Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira Beint flug milli Akureyrar og útlanda hefur aldrei verið meira og voru sjö áætlunarflug á viku út í heim að jafnaði frá Akureyrarflugvelli í síðasta mánuði auk leiguflugs. Akureyri nálgast núna Reykjavíkurflugvöll í heildarfjölda flugfarþega. Innlent 22. apríl 2025 22:11
Misstu bílinn af veginum og þorðu ekki að bíða í honum Björgunarsveitir á Norðurlandi voru kallaðar út í tvö aðskilin útköll í gærkvöldi vegna ferðafólks sem var í vandræðum vegna færðar og veðurs. Hríðarveður gekk yfir norðan- og vestanvert landið í gær og er gul viðvörun í gangi á Norður- og Vesturlandi þar til á morgun og til klukkan 22 við Faxaflóa. Veður 14. apríl 2025 10:14
Njósnir Kínverja á Íslandi viðkvæmt mál sem nauðsynlegt sé að ræða Yfirmaður öryggis- og greiningarsviðs ríkislögreglustjóra segir tímabært að opna umræðuna um njósnir Kínverja á Íslandi þótt þær séu viðkvæmt mál. Í nýju stöðumati um öryggisáskoranir er óvissa sögð ríkja um starfsemi kínverskrar norðurljósarannsóknarstöðvar í Þingeyjarsýslu. Innlent 27. mars 2025 12:06
Vannýttur vegkafli í G-dúr Það var mikið ánægjuefni árið 2021 þegar opnaður var hinn nýi og glæsilegi Dettifossvegur sem tengir saman Mývatnsöræfi og Ásbyrgi. Skoðun 21. mars 2025 10:33
Snarpur skjálfti í Bárðarbungu Klukkan 08:21 í morgun varð jarðskjálfti af stærðinni 4,2 í Bárðarbungu. Skömmu áður, eða klukkan 08:06 varð annar skjálfti af stærðinni 2,9 á sama stað. Innlent 19. mars 2025 09:11
Um fimmtíu viðburðir í boði á Vetrarhátíð við Mývatn Það mun allt iða af lífi og fjöri í Þingeyjarsveit um helgina og næstu daga því þar stendur nú yfir Vetrarhátíð við Mývatn með um fimmtíu viðburðum víðs vegar um sveitarfélagið. Dorgað verður meðal annars á Mývatni og hægt verður að fara í sleðahundaferðir svo eitthvað sé nefnt. Lífið 1. mars 2025 15:05
Segja ekki um neitt „tilfinningaklám“ að ræða Tíu bæjar- og sveitarstjórar mótmæla lokun flugbrautar á Reykjavíkurflugvelli og krefjast þess að hún verði opnuð strax auk þess að tré í Öskjuhlíð, sem skyggja á flugbrautina, verði felld. Þau segja að ekki sé um neitt „tilfinningaklám“ að ræða, líkt og Helga Vala Helgadóttir lögmaður sagði í Silfrinu á RÚV. Innlent 19. febrúar 2025 20:58
Reykjavík er höfuðborg okkar allra Við undirrituð, bæjar- og sveitarstjórar á Íslandi, mótmælum öll lokun annarrar af tveimur flugbrautum Reykjavíkurflugvallar með tilheyrandi skerðingu á þjónustu og ógn við innanlandsflug sem þar af hlýst. Skoðun 19. febrúar 2025 20:32
„Við erum að sjá þarna hluti sem hafa ekki sést áður í heiminum“ Öflugusta skjálftahrinan í áratug reið yfir í Bárðarbungu í morgun og er talið að hún tengist kvikuinnskoti. Prófessor í jarðeðlisfræði segir skjálftahrinuna óvanalega. Innlent 14. janúar 2025 20:17
Getur ekki fullyrt að gosið hafi áður í Bárðarbungu Eldfjallafræðingur telur að skjálftahrina í Bárðarbungu „deyi út í augnablikinu.“ Það sé ekki víst hvort að það hafi nokkurn tímann gosið þar síðan jökla leysti. Innlent 14. janúar 2025 17:38
Óvissustig vegna skjálfta í Bárðarbungu Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna aukinna skjálftavirkni í Bárðarbungu. Öflug jarðskjálftahrina hófst þar klukkan morgun og hafa um 130 skjálftar mælst. Sá stærsti var 5,1 að stærð. Innlent 14. janúar 2025 12:10
Ekki sést síðan í aðdraganda gossins í Holuhrauni 2014 Skjálftavirknin í Bárðarbungu datt hratt niður um klukkan níu eftir að hafa hafist af miklum þunga upp úr klukkan sex í morgun. Viðlíka skjálftavirkni hefur þó ekki sést á svæðinu síðan í aðdraganda eldgossins í Holuhrauni 2014. Innlent 14. janúar 2025 10:35
Óvenjuleg skjálftahrina í Bárðarbungu Jarðskjálftahrina hófst í Bárðarbungu nú í morgun klukkan 06:08. Stærsti skjálftinn mældist 4,4 að stærð klukkan 6:29. Þrír skjálftanna hafa verið yfir 3 að stærð. Innlent 14. janúar 2025 07:19
Afturkalla átta friðlýsingar Friðlýsingar átta svæða á Íslandi hafa verið afturkallaðar. Var það gert vegna úrskurðar Hæstaréttar Íslands frá því í mars um að friðlýsing verndarsvæðis Jökulsár á Fjöllum frá árinu 2019 hefði verið ólögmæt. Innlent 3. desember 2024 20:01
Þakplötur fuku af hlöðu í Aðaldal Hjálparsveitir skáta Aðaldal og Reykjadal voru ásamt Björgunarsvetinni Garðari á Húsavík kallaðar út í morgun þar sem þakplötur á hlöðu á bæ í Aðaldal voru farnar að fjúka af. Innlent 13. nóvember 2024 13:23
Stærsti skjálftinn við Öskju frá ársbyrjun 2022 Jarðskjálfti að stærð 3,0 varð klukkan 08:13 í morgun á austurbakka Öskjuvatns, 1,6 kílómetra frá Víti sem er stærsti sprengigígurinn í Öskju. Þetta er stærsti skjálftinn sem hefur mælst á svæðinu síðan í janúar 2022. Innlent 10. nóvember 2024 10:14
Um 200 tilkynningar um tjón vegna rafmagnsleysis Hátt í 200 manns hafa tilkynnt tjón til Rarik vegna rafmagnsleysis sem varð á Norður- og Austurlandi þann 2. október. Þá varð truflun á í flutningsneti Landsnets í kjölfar útleysingar hjá Norðuráli með þeim afleiðingum að víða var rafmagnslaust í nokkra klukkutíma. Innlent 15. október 2024 15:14
Tveir stórir skjálftar í Bárðarbunguöskjunni Tveir stórir skjálftar urðu í Bárðarbunguöskjunni í dag. Skjálftarnir urðu um hálfellefuleytið. Sá fyrri var 3.7 að stærð og sá sem fylgdi á eftir var 3.9. Innlent 5. október 2024 11:33
Rafmagnsleysi sums staðar fram á kvöld Sjötíu mínútur þurfti til að byggja upp flutningskerfi Landsnets eftir að sló út á stórum hluta landsins rétt fyrir klukkan eitt í gær. Fólk í Mývatnssveit var sumt hvert rafmagnslaust fram á kvöld. Innlent 3. október 2024 11:31
Vetrarfærð á fjallvegum norðaustanlands Það mun ganga í strekkings norðlæga átt í nótt og fer að snjóa á fjallvegum um norðaustanvert landið eftir hádegi á morgun. Innlent 23. september 2024 14:26