Palestína
19 20 21 22 23 24 25 26 27 … 36 ›
Segja íbúum á suðurhluta Gasa nú að flýja Ísraelar hafa varpað dreifimiðum á Gasaströndina þar sem íbúar eru beðnir um að flýja frá hlutum svæðisins. Þykir það til marks um að forsvarsmenn ísraelska hersins ætli að útvíkka hernaðinn á jörðu niðri en hundruð þúsunda Palestínumanna hafa flúið frá norðurhluta Gasastrandarinnar til suðurhlutans. Erlent 16.11.2023 13:03
Eru mannréttindi einungis orð á blaði? Við þekkjum flest orðið mannréttindi, og getum við flest verið sammála um að grundvallar mannréttindi eru hornsteinn góðra lífskjara. Orðið mannréttindi er skilgreint í íslenskri orðabók á eftirfarandi hátt; tiltekin grundvallarréttindi hverrar manneskju, óháð þjóðerni, kyni, kynhneigð, trú og skoðana. Skoðun 16.11.2023 09:30
Biden ver afstöðu Bandaríkjanna og segir Hamas ekki munu hætta Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur varið ákvörðun stjórnvalda vestanhafs að kalla ekki eftir vopnahléi á Gasa og segir Hamas viðvarandi ógn fyrir Ísrael. Þá hafi Ísraelsmenn freistað þess að forðast mannfall meðal almennings í aðgerðum sínum. Erlent 16.11.2023 06:52
Segja ekki hafa komið til „samstuðs“ milli hermanna og sjúklinga eða starfsfólks Talið er að um 1.200 sjúklingar og heilbrigðisstarfsmenn séu nú á al Shifa-sjúkrahúsinu á Gasa en Ísraelsher fór inn á sjúkrahússvæðið í morgun í „hnitmiðaðri aðgerð“ sem virðist beinast gegn meintum höfuðstöðvum Hamas undir sjúkrahúsinu. Erlent 15.11.2023 11:54
Ísraelsmenn komnir inn á al Shifa-sjúkrahúsið Ísraelsher segist standa í hernaðaraðgerð gegn Hamas innan al Shifa-sjúkrahússvæðisins. Um sé að ræða hnitmiðaða aðgerð á afmörkuðu svæði. Talsmaður heilbrigðisyfirvalda á Gasa, sem eru undir stjórn Hamas, segir herinn við leit í kjallara sjúkrahúsbyggingarinnar. Erlent 15.11.2023 06:43
Líkin hrannast upp og læknir segir ástandið á al Shifa „ómannlegt“ „Við erum ekki með rafmagn. Það er ekkert vatn á spítalanum,“ sagði læknir á vegum Lækna án landamæra á al Shifa-sjúkrahúsinu á Gasa þegar samtökin náðu sambandi við hann í gær. Erlent 14.11.2023 07:26
Firring Jódís Skúladóttir þingmaður skrifar í Vísi þann 11. nóvember pistil sem ber yfirskriftina "Keisaraskurður án deyfingar". Jódís hefur pistilinn á að minnast á "Þær hryllilegu árásir sem við horfum upp á dag eftir dag" og "fylla okkur viðbjóði og vanmætti”. Skoðun 14.11.2023 07:00
Þúsundir flýja umkringd sjúkrahús Harðir bardagar við sjúkrahús í norðurhluta Gasastrandarinnar hafa þvingað þúsundir Pelstínumanna til að flýja síðustu skjól svæðisins. Hundruð eru enn fastir á sjúkrahúsunum en þar á meðal eru sjúklingar í alvarlegri stöðu og nýfædd börn en birgðir eru að klárast og ljósavélar eldsneytislausar. Erlent 13.11.2023 15:54
Ályktun um vopnahlé samþykkt – en hvað svo? Eftir mánuð af endurteknum mótmælum, fjölda samstöðufunda og stöðugum þrýstingi frá almenningi á þingfólk, eftir áskoranir frá mannréttindasamtökum og fagfélögum sem og undirskriftalista sem þúsundir Íslendinga settu nafni sitt við, brást Alþingi loksins við þeim þjóðernishreinsunum sem eiga sér nú stað á Gaza og ályktaði þann 9. nóvember s.l. samhljóða um að kalla eftir vopnahléi í árásum Ísraelsríkis á Palestínu. Skoðun 13.11.2023 07:00
Segir al Shifa orðið vettvang dauða, eyðileggingar og örvæntingar Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir al Shifa-sjúkrahúsið á Gasa ekki lengur starfhæft en þrír dagar séu nú liðnir án rafmagns og vatns. Stöðugar sprengingar og skotárásir hafi gert bága stöðu ómögulega. Erlent 13.11.2023 01:31
Flytja nýbura af spítalanum sem enn er án rafmagns Starfsfólk á stærsta spítala Gasa, al-Shifa, segja sjúklinga og fólk á flótta fast í hræðilegu ástandi á meðan átök fara fram í nærliggjandi götum. Ísraelsher segist ætla að aðstoða við flutning nýbura af spítalanum í dag. Átök hafa geisað við spítalann í tvo daga. Erlent 12.11.2023 08:25
Spítalinn rafmagnslaus og án matar og vatns Al-Shifa spítalinn á Gasa er nú án rafmagns, matar og vatns. Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, segir að Ísrael verði að hætta að sprengja börn í loft upp. Erlent 11.11.2023 10:33
Ekkert bendir til að blaðamenn á Gasa hafi vitað af árásunum Framkvæmdastjóri HonestReporting segir samtökin aðeins hafa verið að velta upp spurningum þegar þau ýjuðu að því að palestínskir blaðaljósmyndarar hafi vitað af árás Hamas á Ísrael þann 7. október fyrir fram. Ekkert bendi til að ljósmyndararnir hafi vitað af árásinni fyrirfram. Erlent 10.11.2023 17:10
Hamas og aðrir vopnaðir hópar verði að leysa gísla úr haldi Amnesty International ítrekar ákall sitt um að óbreyttir borgarar í gíslingu á hernumdum svæðum á Gaza verði leystir úr haldi án tafar og skilyrðislaust. Á meðal gísla eru börn. Hamas og aðrir vopnaðir hópar hafa haldið þeim í gíslingu í mánuð eða frá 7. október. Erlent 10.11.2023 11:07
Blaðamenn á Gasa grunaðir um að hafa vitað af árásunum Samskiptaráðherra Ísrael hefur sakað blaðamenn á Gasa sem vinna í verktakavinnu fyrir erlenda miðla um að hafa haft vitneskju um árásir Hamas-liða 7. október síðastliðinn, áður en þeir létu til skarar skríða. Erlent 10.11.2023 08:40
Netanyahu segir Ísraela hvorki vilja sigra, hernema né stjórna Gasa Benjamin Netanyahu segir Ísrael ekki hafa í hyggju að sigra, hernema né stjórna Gasa eftir að stríðinu við Hamas lýkur. Hins vegar þurfi að tryggja að hægt sé að senda „trúverðugt afl“ inn á svæðið ef nauðsyn krefur, til að hindra uppgang hryðjuverkasamtaka. Erlent 10.11.2023 06:54
Segja Ísraela hafa samþykkt tímabundin hlé Ríkisstjórn Ísrael hefur samþykkt að hætta árásum á Gasaströndina í fjórar klukkustundir á degi hverjum. Með þessu er vonast til þess að fleiri óbreyttir borgarar geti flúið frá norðurhluta Gasa, þar sem barist er á götum Gasaborgar og annarra byggða. Erlent 9.11.2023 20:01
Forsætisráðherra Palestínu biðlar til alþjóðasamfélagsins að stilla til friðar Forsætisráðherra Palestínu biðlaði til alþjóðasamfélagsins í dag að þrýsta á endalok stríðsátaka á Gaza og spurði hversu margir þyrftu að deyja og hvað eyðileggingin þyrfti að verða mikil áður nóg væri komið. Alþingi samþykkti ályktun utanríkismálanefndar um átökin á Gaza í dag með öllum greiddum atkvæðum. Erlent 9.11.2023 19:21
Fjölmennt á mótmælum við bandaríska sendiráðið Dágóður fjöldi fólks mætti að bandaríska sendiráðinu við Engjateig seinni partinn í dag á mótmælastöðu undir yfirskriftinni „vopnahlé strax“. Innlent 9.11.2023 17:56
Skora á íslensk stjórnvöld að bregðast við krísunni á Gasa Íslenskir læknar og hjúkrunarfræðingar hafa sent íslenskum stjórnvöldum sitthvort opinbera bréfið vegna ástandsins á Gasa. Undirrituð krefjast þess að íslensk stjórnvöld bregðist við atburðunum og krefjist þar vopnahlés og þrýsti á Ísrael um að stöðva árásir. Erlent 9.11.2023 13:47
Leggja lokadrög að samkomulagi um mannúðarhlé gegn lausn gísla Viðræður standa yfir um þriggja daga mannúðarhlé á árásum Ísraelshers á Gasa gegn því að Hamas sleppi um tug gísla sem samtökin hafa í haldi. Frá þessu greinir Associated Press og hefur eftir fjórum ónafngreindum heimildarmönnum. Erlent 9.11.2023 06:52
Samstaða um Gasa á Alþingi en pattstaða í átökum Fulltrúar stjórnar- og stjórnarandstöðu náðu óvænt í dag samkomulagi um sameiginlega ályktun vegna átakanna á Gasaströndinni. Utanríkisráðherrar sjö helstu iðnríkja heims kalla eftir að Gasa verði áfram undir stjórn Palestínumanna en án Hamas. Innlent 8.11.2023 19:22
Ísraelskur fáni í Ráðhúsi Kaupmannahafnar umdeildur Fólki sem átti leið hjá ráðhúsi Kaupmannahafnar í morgun sagðist hafa brugðið við að sjá ísraelskan fána hanga í glugga ráðhússins sem vísar út á H.C Andersensbreiðgötuna, eina mest förnu götu Kaupmannahafnar. Erlent 8.11.2023 12:07
Nauðsynlegt að stöðva stríðsglæpi á Gaza strax Þingflokksformaður Pírata segir mikilvægt að afstaða Alþingis gagnvart átökunum á Gaza liggi fyrir sem allra fyrst. Það liggi ljóst fyrir að stríðsglæpir hafi verið framdir á Gaza og þá verði að stöðva ekki síðar en strax. Innlent 8.11.2023 12:01
G7-ríkin kalla eftir mannúðarhléi en Blinken útilokar vopnahlé Utanríkisráðherrar G7-ríkjanna hafa sameinast um yfirlýsingu þar sem kallað er eftir mannúðarhléi á átökum milli Ísraela og Hamas til að greiða fyrir neyðaraðstoð til íbúa. Erlent 8.11.2023 10:58
Þingkona í Bandaríkjunum ávítt fyrir meintan stuðning við hryðjuverk Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti í gær að ávíta þingkonuna Rashidu Tlaib, Demókrata frá Michigan, fyrir meinta vörn hennar á hryðjuverkum Hamas og stuðning hennar við slagorðin „Frá á til sjávar!“. Erlent 8.11.2023 08:01
Biden ekki sammála Netanyahu um yfirtöku Ísraelsmanna á Gasa Joe Biden Bandaríkjaforseti styður ekki yfirtöku Ísraelsmanna á Gasa, eins og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur gefið til kynna að muni gerast að átökum loknum. Erlent 8.11.2023 06:43
Segja hermenn berjast í „hjarta Gasaborgar“ Ísraelskir hermenn eru sagðir komnir langt inn í Gasaborg. Mikill fjöldi óbreyttra borgara hefur flúið borgina í dag og farið til suðurhluta Gasastrandarinnar. Erlent 7.11.2023 22:30
Guðlaugur Þór segir öllum ofbjóða hryllingurinn á Gaza Hátt á þriðja hundrað mótmælenda kröfðust þess við Ráðherrabústaðinn í dag að ríkisstjórnin krefðist tafarlauss vopnahlés á Gaza. Fyrrverandi utanríkisráðherra segir öllum ofbjóða ástandið og óska þess að átökunum ljúki. Innlent 7.11.2023 19:26
Segir alþjóðasamfélagið stara niður í hyldýpið Francesca Albanese, sérstakur sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í málefnum Palestínu, segir tilraunir Ísraelsmanna til að tortíma Hamas-samtökunum í kjölfar árásanna 7. október muni aðeins verða til þess að magna upp öfgahyggju. Erlent 7.11.2023 11:41