Fíkn
19 20 21 22 23 24 … 24 ›
Spænsk kona tekin með kókaín í Leifsstöð: „Þetta er algjör sprenging“ Sjö eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum í sjö aðskildum málum fyrir smygl á hörðum fíkniefnum til landsins. Embættið hefur aldrei lagt hald á eins mikið af sterkum efnum og í ár, eða 63 kíló. Innlent 17.12.2019 18:24
2,7 milljóna króna sekt fyrir brot undir stýri Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða 2.689.000 krónur í sekt innan fjögurra vikna ella sitja í fangelsi í 68 daga. Maðurinn hefur ítrekað gerst brotlegur á lögum fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot. Innlent 16.12.2019 15:35
Leynilegar greiðslur í Heiðmörk, rafmagni stolið og gjaldeyrir keyptur fyrir hátt í fimmtíu milljónir króna Fimm karlmenn frá Litháen hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir kannabisræktun, sölu á efnum og peningaþvætti á Suðurlandi. Tveir mannanna eru bræður en mennirnir fá allt frá sex til fimmtán mánaða fangelsi fyrir brot sín. Þrír mánuðir eru óskilorðsbundnir í öllum tilfellum. Innlent 12.12.2019 17:08
Erfitt að horfa upp á fangana í neyslu Spice Kallað var til fundar fangelsismálayfirvalda og Landlæknis um mikla neyslu Spice í fangelsum landsins í vikunni. Innlent 8.12.2019 22:26
Fleiri grunnskólabörn tekin með fíkniefnið Spice Neysla grunnskólabarna á fíkniefninu Spice er mun meiri en áður var talið. Þó nokkur mál eru til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 6.12.2019 19:01
Vilja skaðaminnkun á sérgang á Litla-Hrauni Afstaða, félag fanga, leggur til að sérstakur skaðaminnkunargangur verði á Litla-Hrauni. Félagið segir þá sem neyta vímuefna í flestum tilvikum vera sjúklinga en ekki afbrotamenn og því viðfangsefni heilbrigðiskerfisins. Innlent 30.11.2019 03:04
Fimmtugar hollenskar konur neita sök í kókaínmáli Tvær rúmlega fimmtugar hollenskar konur neita sök í máli héraðssaksóknara á hendur þeim fyrir innflutning á rúmlega kílói af kókaíni til landsins þann 29. ágúst síðastliðinn. Konurnar eru par og voru með stóran hluta efnisins innvortis. Innlent 28.11.2019 11:14
Enn einu sinni undir áhrifum við akstur en nú á vespu Kona á fertugsaldri hefur verið dæmd í þrjátíu daga fangelsi og svipt ökuréttindum ævilangt eftir að hafa verið stöðvuð endurtekið án réttinda eða undir áhrifum við akstur. Innlent 27.11.2019 11:06
Skaðaminnkun Frú Ragnheiðar bergmálar í bíó Skaðaminnkunarúrræðið Frú Ragnheiður kemur við örsögu í Bergmáli eftir Rúnar Rúnarsson. Atriðið snart aðstandendur myndarinnar svo djúpt að þau ákváðu að styrkja sprautubílinn góða með sérstakri sýningu í Háskólabíói annað kvöld. Lífið 26.11.2019 07:26
Náðist með tvö kíló af kókaíni í Leifsstöð Íslenskur karlmaður er nú í gæsluvarðhaldi fyrir að hafa reynt að smygla tæplega tveimur kílóum af kókaíni til landsins fyrr í mánuðinum. Lögreglan á Suðurnesjum hefur haldlagt á fimmta tug kílóa af sterkum fíkniefnum það sem af er ári. Innlent 25.11.2019 18:19
Tuttugu mánuðir í fangelsi fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning Pólskur karlmaður hefur verið dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og tolla-, lyfsölu- og lyfjalagabrot. Hann var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku fyrir innflutning á 900 millilítrum af amfetamínbasa, 95 steratengdum töflum og 120 millilítra af steravökva. Innlent 25.11.2019 16:46
Sjö hundruð bíða meðferðar á Vogi Síðustu tvö ár hafa um og yfir sjö hundruð manns verið á biðlista eftir meðferð á Vogi og þurft að bíða í allt að hálft ár. Þó greiðir SÁÁ um tvö hundruð milljónir á ári til að geta veitt hundruðum meðferð sem ríkið greiðir ekki með. Innlent 24.11.2019 16:19
Telja að fíkniefnið Spice sé í meiri dreifingu en áður hefur verið talið Rannsóknarlögreglumaður óttast að fíkniefnið Spice sé í meiri dreifingu en áður hefur verið talið. Efnið sé stórhættulegt og meðal annars valdið dauða. Hann segir áhyggjuefni að efnið hafi fundist í meðförum unglinga nýverið. Innlent 20.11.2019 16:46
Staðfesta niðurfellingu á máli ungu konunnar sem lést eftir handtöku lögreglu Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara að fella niður mál ungrar konu sem lést í apríl síðastliðnum eftir að hafa verið handtekin af lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 20.11.2019 15:55
Alþingi mátti ekki veita skólastjóra aðgang að upptökum af krökkum í kannabisneyslu Persónuvernd hefur komist að þeirri niðurstöðu að skrifstofu Alþingis hafi ekki verið heimilt að veita skólastjóra í grunnskóla nokkrum aðgang að myndefni úr eftirlitsmyndavél árið 2018. Innlent 20.11.2019 14:36
Íslenskir unglingar veipuðu spice Fíkniefnið spice fannst nýverið í rafrettum hjá unglingum á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 19.11.2019 17:50
Fleiri nota kókaín í æð: Rauði krossinn fagnar viðhorfi dómsmálaráðherra til afglæpavæðingar Skjólstæðingar Frú Ragnheiðar nota kókaín í æð í auknum mæli. Verkefnastjóri segir þá þurfa að hafa mikið fyrir því að fjármagna efnið. Gríðarlega mikilvægt sé að frumvarp um afglæpavæðingu á neysluskömmtum verði að lögum svo fólkið veigri sér ekki við að leita sér hjálpar af ótta við að efnin verði tekin af því. Innlent 18.11.2019 18:26
Sjö prósent Íslendinga hafa verið í meðferð á Vogi SÁÁ hefur gefið út viðamikið upplýsingarit um heilbrigðisþjónustu samtakanna síðustu fjörutíu ár eða frá 1977 til 2018. Innlent 18.11.2019 14:19
Karlmaður lést í vikunni vegna ofskammts af kókaíni í æð Karlmaður á fertugsaldri lést í vikunni eftir að hafa verið sprautaður með kókaíni. Lögregla og læknar á Vogi merkja fjölgun þeirra sem sprauta sig með efninu. Innlent 17.11.2019 17:42
„Bannstefnan hefur einfaldlega ekki virkað“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra kallar eftir endurskoðun á íslenskri fíkniefnalöggjöf og segir að bannstefnan hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Mikilvægt sé að líta á fíkniefnaneytendur í auknum mæli sem sjúklinga fremur en glæpamenn. Innlent 17.11.2019 15:19
Nýtt neyðarskýli opnað við Grandagarð Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, opnaði í dag nýtt neyðarskýli fyrir unga heimilislausa karlmenn sem glíma við áfengis- og vímuefnavanda. Innlent 13.11.2019 20:40
Handtekin með þrjátíu pakkningar af kókaíni innvortis Konan var úrskurðuð í gæsluvarðhald á meðan rannsókn málsins fór fram en að sögn Lögreglustjórans á Suðurnesjum er rannsóknin á lokastigum. Innlent 12.11.2019 14:17
Spice ólíkt öllum öðrum fíkniefnum Spice er eitt erfiðasta efni sem fangelsisyfirvöld og lögregla fást við. Notendurnir tala um að fara í froskinn, þegar þeir fá krampaköst af ofneyslu og margítrekað hefur þurft að kalla til sjúkrabíl. Innlent 9.11.2019 17:04
Fá rítalín eða Contalgin í skiptum fyrir að taka lyfin sín Hópur langt leiddra fíkla með alvarlega smitsjúkdóma fær að gera samning um að fá töflu af Ritalin Uno eða Contalgin í skiptum fyrir að taka veirulyfin sín. Borgarfulltrúi og sóttvarnalæknir ósammála um fyrirkomulagið. Innlent 8.11.2019 02:02
Kallar eftir því að fólk í valdastöðum vandi málflutning um vímuefnanotendur Elísabet Brynjarsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Frú Ragnheiði – skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins, gagnrýnir ummæli Baldurs Borgþórssonar varaborgarfulltrúa Miðflokksins um neyslurými. Innlent 7.11.2019 21:11
Mælt fyrir frumvarpi um neyslurými í annað sinn Landlæknir getur veitt sveitarfélagi leyfi til að stofna og reka neyslurými þar sem varsla og meðferð ávana- og fíkniefna er heimil, eða svo kölluð neyslurými, samkvæmt frumvarpi sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mælti fyrir í dag. Innlent 5.11.2019 20:36
Flugvallarstarfsmaður áfram í einangrun Gæsluvarðhald yfir starfsmanni Airport Associates sem grunaður er um aðild að stóru fíkniefnamáli sem kom upp á Suðurnesjum fyrir viku var framlengt í gær um viku auk þess honum er gert að sæta einangrun. Lögmaður mannsins hefur kært úrskurðinn til Landsréttar. Innlent 1.11.2019 11:24
Mikið af fíkniefninu Spice fannst við krufningu á fanga sem lést á Litla-Hrauni í lok sumars Óvenju mikið af fíkniefninu Spice fannst við krufningu á fanganum sem lést á Litla-Hrauni í lok sumars. Lögreglan á Suðurlandi hefur gefið út tíu ákærur vegna Spice í fangelsinu á árinu. Innlent 31.10.2019 18:10
Brosmild, traust og glaðvær manneskja þrátt fyrir veikindin Fjölskylda Guðrúnar Maríu Gunnarsdóttur hefur hrundið af stað söfnun til að fjármagna flutning Guðrúnar Maríu til Íslands og standa undir útfararkostnaði. Lífið 31.10.2019 15:10
Fundu kókaínið falið fyrir ofan loftklæðningu í íbúð mannsins Sex lítrar af amfetamínbasa fundust á geymslugólfi og tvö kíló af kókaíni fundust fyrir ofan loftklæðningu íbúðar eins mannanna sem grunaðir eru um umfangsmikið fíkniefnasmygl til landsins. Innlent 30.10.2019 22:49