
Stéttarfélög

Verslunarmenn boða atkvæðagreiðslu um verkfall á Keflavíkurflugvelli
Samninganefnd VR hefur ákveðið að boða til atkvæðagreiðslu um verkfall félagsmanna í farþega- og hleðsluþjónustu hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Með aðgerðunum á að þrýsta á breytingar á vaktafyrirkomulagi starfsfólksins á flugvellinum.

Bein útsending: Niðurstöður könnunar um stöðu launafólks kynntar
Varða – rannsóknarstofnun Vinnumarkaðarins mun kynna niðurstöður nýrrar spurningakönnunar um stöðu launafólks á Íslandi á fundi í Þjóðmenningarhúsinu sem hefst klukkan 12.

Endurskoða þarf reglur Varasjóðs VR
Stjórnarkjör VR hefst á hádegi þann 6. mars n.k. og óska ég eftir stuðningi í kosningunni þar sem ég hef brennandi áhuga á málefnum félagsins og jafnframt langar mig að láta gott af mér leiða.

Lokakröfur Eflingar: Uppsagnarvernd, trúnaðarmenn og orðalag um ræstingarfólk
Formaður Eflingar segir einkum þrennt standa út af í samningsviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Náist sátt um þau atriði ætti að vera hægt að undirrita kjarasamninga á næstu einum til tveimur sólarhringum.

Telja hóflegar launahækkanir ekki duga einar og sér
Viðræðunefnd VR og Landssambands íslenskra verzlunarmanna (LÍV) hafa formlega óskað eftir að ríkissáttasemjari hlutist til um viðræður við Samtök atvinnulífsins. Nefndin telur að í viðræðunum dugi hóflegar launahækkanir ekki einar og sér.

Kjósa einnig um verkfall hjá ræstingarfólki
Ákveðið var á fundi samninganefndar Verkalýðsfélags Akraness í dag að halda atkvæðagreiðslu um hvort ræstingarfólk sem tilheyrir VLFA vilji í verkfall. Vilhjálmur Birgisson, formaður verkalýðsfélagsins, segir að verði verkfall samþykkt geti það líklega hafist 25. mars.

Segir verkfallsaðgerðir ekki viðeigandi
Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segist þykja það mjög miður að samninganefnd Eflingar upplifi að trúnaðarbrestur hafi orðið í viðræðunum og skoði verkfallsaðgerðir.

Ríkur verkfallsvilji hjá ræstingafólki sem greiðir atkvæði á mánudag
Fulltrúar breiðfylkingarinnar svokölluðu og Samtaka atvinnulífsins hafa verið boðuð til fundar í fyrramálið en í gærkvöldi ákvað samninganefnd Eflingar að boða til atkvæðagreiðslu um verkfall hjá félagsfólki Eflingar sem starfar við ræstingar. Formaður Eflingar telur að ríkur verkfallsvilji sé í þeim hópi.

Funda ekki í dag
Breiðfylkingin svokallaða og Samtök atvinnulífsins funda ekki í dag. Boðað hefur verið til fundar í fyrramálið.

Sér fram á verkfallsboðun
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist sjá fram á að samninganefnd Eflingar muni á fundi sínum í kvöld samþykkja verkfallsboðun.

„Gjörsamlega misboðið yfir stöðunni“
Fundi dagsins í Karphúsinu er lokið og ekki hefur verið formlega boðað til þess næsta. Gert er þó ráð fyrir að fundað verði aftur á morgun. Formenn Starfsgreinasambandsins og Samiðnar eru sammála um að staðan sé flókin og erfið.

Fundar með samninganefnd um mögulega verkfallsboðun
Samninganefnd Eflingar mun funda í kvöld í ljósi þess að Samtök atvinnulífsins opnuðu á viðræður um launaliðinn við aðra en láglaunafólk. Formaður Eflingar segir vel koma til greina að boðað verði til verkfallsaðgerða.

Tæplega sjötíu prósent íslenskra fanga hafa aldrei greitt í stéttarfélag eða lífeyrissjóð
Tæplega sjötíu prósent íslenskra fanga hafa aldrei greitt í stéttarfélag eða lífeyrissjóð og fæstir þeirra sem ljúka afplánun taka virkan þátt á vinnumarkaði. Þetta eru helstu niðurstöður úr könnun sem Afstaða, félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, gerði í íslenskum fangelsum.

Bjartsýni og góður gangur í kjaraviðræðum
Fulltrúar nánast allra félaga innan Alþýðusambandsins annarra en verslunarmanna hafa haldið áfram viðræðum við Samtök atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í dag.

Drög að sátt lögð fyrir ríkisstjórn á næstu dögum
Fulltrúar Starfsgreinasambandsins, Samiðnar og Eflingar hafa fundað með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í allan dag. Reiknað er með að heildarpakki kjarasamninga verði lagður fyrir ríkisstjórn um eða upp úr miðri viku og ríkisstjórnin kynni þá þær aðgerðir sem hún er reiðubúin að grípa til í skiptum fyrir sátt á vinnumarkaði.

Tíðinda að vænta í kjaraviðræðum um miðja vikuna
Vonir eru bundnar við að niðurstaða fáist í kjaraviðræður um eða upp úr miðri þessari viku. Brotthvarf VR og Landssambands verslunarmanna úr breiðfylkingu stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins hefur hins vegar flækt stöðuna.

Til allra stéttarfélaga og atvinnurekenda
Vissuð þið að 1 af hverjum 6 pörum glímir við frjósemisvanda? Vissuð þið að sú tala fer hækkandi? Vissuð þið að frjósemisvandi margra er svo flókin að ekki fæst lausn mála á Íslandi svo fólk leitar út fyrir landsteinana?

Funda aftur í hádeginu á morgun
Fundi breiðfylkingar stéttarfélaga innan ASÍ og Samtaka atvinnulífsins lauk nú um klukkan hálf sex. Boðað hefur verið til annars fundar klukkan tólf á morgun.

Hissa og sorgmædd yfir ákvörðun VR
Framkvæmdastjóri SA segir það miður að VR hafi slitið viðræðum í ljósi þess að félagið var búið að samþykkja launaliðinn og að horft væri til verðbólguviðmiða. Það væri sorglegt að 0,2 prósentustiga munur hafi gert útslagið.

Telur sig geta náð betri samningi utan breiðfylkingarinnar
Formaður VR telur sig geta náð betri samningi við Samtök atvinnulífsins með því að slíta félagið frá samstarfi við breiðfylkingu stéttarfélaga. Það gerði hann í dag vegna ágreinings innan fylkingarinnar um forsenduákvæði sem snýr að verðbólgu.

Fagfélögin undirbúa verkfallsaðgerðir
Fagfélögin, sem innihalda Rafiðnaðarsamband Íslands, Félag vélstjóra og málmtæknimanna og MATVÍS, samþykktu á fjölmennum fundi í dag að stofna aðgerðahóp til að undirbúa verkfallsaðgerðir.

VR klýfur sig frá breiðfylkingunni
Forsvarsmenn VR hafa klofið sig frá breiðfylkingu stéttafélaga í samningaviðræðunum við Samtök atvinnulífsins.

Ragnar Þór fundar með sínu baklandi í dag
Breiðfylking ASÍ og Samtök atvinnulífsins funda klukkan níu. Fram kom í fréttum í gær að náðst hefði samkomulag á fundi þeirra í gær um forsenduákvæði um þróun verðbólgu.

Enn fundað í Karphúsinu um forsenduákvæðið
Breiðfylking stéttarfélaga innan ASÍ og Samtök atvinnulífsins funda hjá ríkissáttasemjara. Fundur hófst klukkan níu í morgun og stendur enn að sögn Elísabetar Ólafsdóttur aðstoðarríkissáttasemjara.

BHM og Friðrik Jónsson sýknuð af kröfu fyrrverandi framkvæmdastjóra
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Bandalag háskólamanna og Friðrik Jónsson, fyrrverandi formann BHM, af kröfum fyrrverandi framkvæmdastjóra sem sakaði Friðrik um að hafa brotið gegn trúnaðarskilyrðum starfslokasamnings.

Hótar aðgerðum fari hjólin ekki að snúast fyrir helgi
Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands segir að Samtök atvinnulífsins hafi fram á föstudag til þess að koma með eitthvað að samningaborðinu. Ellegar neyðist Fagfélögin til þess að grípa til aðgerða í kjaradeilunni.

Funda aftur á morgun
Fundi breiðfylkingar stéttarfélaga Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins lauk án niðurstöðu síðdegis í dag. Aftur verður fundað á morgun.

Sólveig Anna sjálfkjörin formaður næstu tvö árin
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar er sjálfkjörinn formaður Eflingar kjörtímabilið 2024 til 2026.

Aftur að borðinu eftir viðræðuslit
Boðað hefur verið til fundar hjá breiðfylkingu stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í fyrramálið.

Sparar yfirlýsingar á ögurstundu
Ögurstund er runnin upp í kjaraviðræðum breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins að mati formanns VR. Það skýrist á allra næstu dögum hvort viðræðum verði haldið áfram eða ekki.