Erlent

Níu látnir eftir skot­á­rás í Austur­ríki

Agnar Már Másson skrifar
Lögregluna í Austurríki grunar að árásarmaðurinn sé nemandi.
Lögregluna í Austurríki grunar að árásarmaðurinn sé nemandi. Vísir/Getty

Að minnsta kosti níu eru látnir og fleiri særðir eftir skotárás í menntaskóla í Graz í Austurríki í morgun. Árásarmaðurinn er talinn vera látinn.

Kronen Zeitung greinir frá því að umfangsmikil lögregluaðgerð standi yfir við skóla í borginni, sem er sú næststærsta í landinu. Miðillinn segir árásina eina verstu skotárás í sögu Austurríkis. 

Að sögn lögreglu voru bæði nemendur og kennarar skotnir. Lögreglu grunar að árásarmaðurinn sé nemandi sem taldi sig vera þolanda eineltis. Níu eru sagðir látnir; átta nemendur, árásarmaðurinn þar með talinn, og einn fullorðinn. Fleiri en tíu eru alvarlega særðir.

Árásarmaðurinn er sagður hafa hafið skothríð inni í tveimur skólastofum. 

Skotárásin var í Graz, sem er í suðaustanverðu Austurríki og er næststærsta borg landsins.Elif Acar/Getty

Um 160 sjúkraliðar eru á vettvangi, að sögn Kronen Zeitung, og 65 sjúkraflutningabílar hafa verið kallaðir út. Christoph Wiederkehr, menntamálaráðherra Austurríkis er á leiðinni til Graz vegna árásarinnar.

Árásarmaðurinn er talinn hafa svipt sig lífi. Hann er sagður hafa fundist látinn inni á salerni skólans. Leit stendur yfir í skólabyggingunni, sem stendur við götuna Dreierschützengasse. Íbúar eru beðnir um að forðast svæðið.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×