Svíþjóð

Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans?
Tilkynnt verður hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nobel í ár á fréttamannafundi klukkan 9:45.

Abdulrazak Gurnah hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels
Tansaníski skáldsagnahöfundurinn Abdulrazak Gurnah hlaut í dag bókmenntaverðlaun Nóbels.

Frændi Íslendings sem fannst látinn í Svíþjóð: Mikill léttir en líka sorg
„Þetta er mikill léttir eftir að hafa verið í óvissu núna í rúma viku, en á sama tíma mikil sorg.“ Þetta segir Víðir Víðisson í samtali við Vísi, en frændi hans, Rósinkrans Már Konráðsson, fannst látinn í sjónum við Öland í Svíþjóð í morgun eftir að hafa verið leitað síðan 25. september.

Íslendingurinn fannst látinn í Svíþjóð
Íslendingurinn sem leitað hefur verið í Svíþjóð síðan 25. september fannst látinn í sjónum í Köpingsvik á Öland nú rétt fyrir hádegi.

Grunaður sprengjumaður í Gautaborg fannst látinn
Maður sem grunaður er um að hafa borið ábyrgð á sprengingu í fjölbýlishúsi í Gautaborg í Svíþjóð á þriðjudaginn í síðustu viku hefur fundist látinn.

Fá Nóbelsverðlaun fyrir þróun ósamhverfra lífrænna efnahvata
Þjóðverjinn Benjamin List og Bandaríkjamaðurinn David W.C. MacMillan fengu í morgun Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir þróun á ósamhverfum lífrænum efnahvötum (e. assymetric organocatalysis).

Fá Nóbelinn í eðlisfræði fyrir loftslagsrannsóknir
Bandaríkjamaðurinn Syukuro Manabe, Þjóðverjinn Klaus Hasselmann og Ítalinn Giorgio Parisi hafa fengið Nóbelsverðlaun í eðlisfræði í ár fyrir smíði líkana og loftslagsrannsóknir sínar.

Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvanir sínar um jónarásir
Bandarísku vísindamennirnir David Julius og Ardem Patapoutian hafa hlotið Nóbelsverðlaun í lífefnafræði og læknisfræði fyrir uppgötvanir sínar þegar kemur jónarásum sem opnast eða lokast við hita eða þenslu.

Allt bendir til að um slys hafi verið að ræða en ætla að leita af sér allan grun
Lögregla í Svíþjóð segir allt benda til að um slys hafi verið að ræða þegar bíll með listamanninn Lars Vilks og tvo lögreglumenn um borð, rakst á vörubíl á hraðbraut í sænsku Smálöndunum í gær. Vilks og lögreglumennirnir sem gættu hans, létust í árekstrinum, en ökumaður vörubílsins var fluttur á sjúkrahús.

Umdeildi listamaðurinn Lars Vilks lést í bílslysi
Sænski listamaðurinn Lars Vilks lést í bílslysi í dag ásamt tveimur lögregluþjónum. Vilks hafði undanfarin ár notið verndar lögreglu vegna fjölda líflátshótana sem honum höfðu borist vegna teikninga hans af Múhameð spámanni.

Leita enn að íslenskum manni í Svíþjóð
Til stóð að halda áfram leit að íslenskum karlmanni á fimmtugsaldri sem hefur verið saknað frá því að hann hélt frá landi á sæþotu í Svíþjóð á laugardag. Frændi mannsins segist standa fyrir leit að honum.

Leita karlmanns á sextugsaldri vegna sprengingarinnar í Gautaborg
Lögreglan í Gautaborg leitar nú karlmanns á sextugsaldri í tengslum við öfluga sprengingu í fjölbýlishúsi í miðborginni á þriðjudag. Til stóð að bera manninn út úr íbúð sinni í húsinu sama dag.

Tilnefna Andersson sem nýjan formann sænskra Jafnaðarmanna
Undirbúningsnefnd á vegum sænskra Jafnaðarmanna hefur tilnefnt fjármálaráðherrann Magdalenu Andersson til að verða næsti formaður flokksins. Framundan er landsþing flokksins í byrjun nóvember þar sem arftaki Stefans Löfven forsætisráðherra verður kjörinn.

Lögregla hættir leit að Íslendingnum á Öland
Lögregla á Öland í Svíþjóð hefur hætt leit að fertugum Íslendingi sem féll af sæþotu í Köpingsvik við bæinn Borgholm á laugardag.

Kanna hvort sprengju hafi verið komið fyrir í Gautaborg
Lögreglan í Gautaborg rannsakar nú hvort að sprengju kunni að hafa verið komið fyrir við fjölbýlishús þar sem mikil sprenging varð snemma í morgun. Fjórir íbúar hússins eru alvarlega slasaðir en að minnsta kosti sextán voru fluttir á sjúkrahús.

Á þriðja tug á sjúkrahús eftir sprengingu í íbúðahúsi í Gautaborg
Fjöldi fólks er alvarlega slasaður eftir að mikil sprenging varð í íbúðahúsi í hverfinu Annedal í miðsvæðis í sænsku borginni Gautaborg snemma í morgun.

Íslendings leitað sem féll af sæþotu í Svíþjóð á laugardag
Íslendings er leitað sem féll af sæþotu undan strönd sænsku borgarinnar Borgholm á Öland á laugardag.

Hefur loks náð endanlegum sættum við íslenska fræðasamfélagið
Fornsagnafræðingurinn Lars Lönnroth var gerður að heiðursdoktor við Háskóla Ísland í dag. Hann segist þakklátur fyrir að íslenska fræðasamfélagið hafi tekið sig í sátt og sér eftir að hafa stutt rangan málstað í einu mesta deilumáli síðustu aldar.

Google taldi mikla eftirspurn eftir íslensku appi vera netárás og lokaði
Íslenska appið Lightsnap hefur gert gott mót í Svíþjóð en þjónustan gerir notendum kleift að taka ljósmyndir sem þeir fá ekki að sjá fyrr en prentuð eintök eru send heim að dyrum.

Guðlaugur um samstarf við Svíþjóð í öryggis- og varnarmálum: „Höfum mikið fram að færa“
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, og Peter Hultqvist, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, undirrituðu í dag sameiginlega yfirlýsingu um samstarf Íslands og Svíþjóðar í öryggis- og varnarmálum.

Svíþjóðardemókrati handtekinn grunaður um morð
Karlmaður hefur verið handtekinn í Svíþjóð grunaður um að hafa myrt konu í suðurhluta Vestur-Gautlands í síðustu viku. Maðurinn er sagður stjórnmálamaður í flokki Svíþjóðardemókrata og sinnir mikilvægum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn.

Svíar ætla að hætta að niðurgreiða stóra tengitvinnbíla og dýra rafbíla
Sænsk stjórnvöld ætla að herða verulega losunarskilyrði fyrir ívilnunum til kaupa á vistvænni bifreiðum. Hætt verður að niðurgreiða stærri tengitvinnbíla og dýra rafbíla.

Fjögur ný ABBA lög og plata í nóvember
Superbandið ABBA tilkynnti útkomu nýrrar plötu í dag eftir fjörtíu ára hlé og tónleika í leikvangi sem byggður verður sérstaklega fyrir ABBA í Lundúnum. Fyrsta lagið var frumflutt um allan heim á YouTube í dag.

„Einar Áskell er einhvern veginn erkitýpískt barn“
„Einar Áskell er einhvern veginn erkitýpískt barn. Hann er hið týpiska barn. Ég held að það sé þess vegna sem maður sem foreldri hefur svo gaman af því að lesa bækurnar um Einar Áskel. Maður kannast við svo ótrúlega margt frá þeim börnum sem maður þekkir í fari hans.“

Hljómsveitin ABBA lofar því að biðin sé á enda
Hljómsveitin ABBA opnaði í dag síðuna ABBA Voyage og tilkynnti að biðin er næstum því á enda.

Höfundur bókanna um Einar Áskel er látinn
Sænski rithöfundurinn Gunilla Bergström, sem þekktust er fyrir bækurnar um Einar Áskel, er látin 79 ára að aldri.

Strangari reglur fyrir ferðamenn hér en á hinum Norðurlöndunum
Kröfur á ferðamenn, bæði íslenska og erlenda, sem koma hingað til lands eru mun harðari en á ferðamenn á hinum Norðurlöndunum. Bólusettir farþegar þar þurfa ekki að fara í skimun, hvorki fyrir heimferð eða eftir komuna til landsins.

„Nískasti fjármálaráðherra ESB“ líklegastur til að taka við
Stefan Löfven greindi frá því um síðustu helgi hann ætli sér að láta af störfum sem forsætisráðherra Svíþjóðar í haust. Hann muni ekki bjóða sig fram til áframhaldandi formennsku í Jafnaðarmannaflokknum á landsþingi í nóvember. Skiljanlega eru farnar af stað miklar umræður um hver muni taka við formennsku í flokknum og yrði þá í kjörstöðu til að taka einnig við embætti forsætisráðherra landsins.

Hættir sem forsætisráðherra og formaður
Stefan Löfven forsætisráðherra Svíþjóðar hyggst segja af sér embætti sem forsætisráðherra og sem formaður Jafnaðarmannaflokksins í haust. Þetta tilkynnti Löfven í ávarpi nú fyrir hádegi.

Mikil flóð eftir úrhelli í sænsku Dölunum
Skemmdir hafa orðið á vegum og brúm og flætt hefur inn í íbúðarhús í miklum flóðum í kjölfar úrhellisúrkomu í Gävleborg og Dölunum í austanverðri Svíþjóð. Íbúar á svæðinu eru varaðir við því að vera á ferðinni nema alger nauðsyn krefji.