Skoðun

Aftaka nútímans

Sölvi Breiðfjörð skrifar

Hvert erum við að fara og hvaðan erum við að koma, þessi fræga setning hefur aðeins verið að hringla í hausnum á mér þessa dagana, mánuði sem og allt síðasta ár reyndar.

Hér á landi er starfandi lögregla og einnig erum við með dómstóla.

Hér á landi hefur einnig tekið til starfa DÓMSTÓLL GÖTUNNAR / NETHEIMA.

Mér var kennt á árum áður að þú sért saklaus þar til sekt þín er sönnuð.

Þessum orðum virðist vera búið að pakka saman og henda á Sorpu.

Þessi nýi dómstóll virðist svífast einskis og gefur lítið fyrir siðferðið.

Siðferði er eitthvað sem við eigum að halda í eins og við getum, það er ekki gott að vera siðferðislaus

Það virðist vera nóg í dag að segja frá einhverju hugsanlegri sögu um náungan í næst húsi sem fær svo að fara á flug á netheimum og verður þess valdandi að viðkomandi getur sig hvergi hreyft nema um heimilið sitt, einnig fær fjölskyldan og aðrir ættingjar sem og vinirnir, samstarfsmenn og aðrir að kenna á því líka.

Nærgætni skal höfð í nærveru sálar stendur einhverstaðar.

Ég er allavega þeirrar skoðunnar að við eigum að fara dómsleiðina í öllum málum og lúta þeim lögmálum sem þar kemur.

Ég ætla ekki að fara út í einhver smáatriði, en lykilatriðið er að við getum ekki tekið lögin í eigin hendur og dæmt fólk án dóms og laga.

Ég finn mikið til með þeim sem hafa þurft að þola illa meðferð að einhverjum toga hvort svo sem það sé kynferðislegt, líkamlegt eða andlegt ofbeldi og óska ég engum slíka grimmd.

Ef eitthvert ykkar sem þetta lesið hafið lent í slíkri grimmd þá endilega farið með ykkar mál til lögreglu og gangið hart að því að fá réttvísinni framgegnt.

Sá eða sú sem það ekki gerir og tekur þetta í sínar eigin hendur og ætlar að setja þetta í dómstól götunnar / netheima gerir sjálfan sig að ofbeldismanni.

Eitt vil ég hinsvegar segja áður en nettröllin fara af stað.

Mig langar að biðja ykkur að lesa þessa grein aftur, áður en þið svarið ef það er eitthvað sem þið viljið gera og farið djúpt í hugsanir ykkar og veltið þessu aðeins fyrir ykkur.

Höfundur er ráðgjafi.




Skoðun

Sjá meira


×